Hænir - 08.03.1924, Qupperneq 2
HÆNI R
4»
Hveiti
Rúgmjöl
Hrísgrjón
Rúsínur
Sveskjur
Hafragrjón
Seyðisfirði
hafa fyrirliggjandi:
Kaffi
Kaffibætir
Molasykur
Strausykur
Maísmjöl
Margarine
Mjólk
Kex 3 teg.
Stángasápu
Handsápu m. teg.
Bárujárn 6, 9, 10
Appelsínur
þingi, að láta Alþingi ísiendinga
verðahéreftir háð annaðhvert ár,
9. Fækkun ráðherra.
Samþykt meö miklum meiri hluta at-
kvæða:
Fundurinn skorar á Alþingi, að
fækka ráðherrum, svo að þeir
verði ekki fleiri en tveir.
10. Embættaskipun.
Svo hljóðandi tillaga var samþykt í
einu hljóði:
Fuhdurinn skorar á Alþingi að
athuga embættaskipun landsins
vandlega, og fækka embættum,
þar sem það virðist kleyft.
Þegar hér var komið fundinum, var
orðið svo áliðið nætur, að ekki vanst
tími til að taka fyrir öll þau mál, er
sett höfðu verið á dagskrá.
Loks var svo hljóðandi yfirlýsing
samþykt:
Svo verður að álíta, að stjórn-
málafundir þeir, sem haldnir eru
í sambandi við námskeiðið hér
á Egilsstöðum, séu eða ættu að
geta verið, bæði vegna aðsóknar
úr dreiföum sveiíum kjördæm-
annaogbættraraðstöðu við undir-
búning fundarmálefna, veiga-
mestir þess háttar mannamóta í
Múlasýslu. Með tilliti til þessa,
lýsir fundurinn rnegnri óánægju
sinni yfir því, að þingmenn
sýslnanna skuli leyfa sér það
tómlæti, að mæta eigi á fundi
þessum, þrátt fyrir bein tilmæli
frá kjósendum þeim, er til fund-
arins stofnuðu. Þó undanskilur
fundurin 1. þm. Sm. Svein Ólafs-
son, er einn þingmanna hefir
forföil svo kunn séu, en jafn-
framt er þó hinn eini þeirra,
sem skjallega hefir látið fundin-
um í té aðstoð sína í tæka tíð.
Fundargerð lesin upp og sampykt.
Fundi slitið.
Asmundur Guðmundsson.
Björn Þorkelsson.
Þórhallur Jónasson.
Aths.
Fundargerð þessi barst ekki ritstj. í
hendur fyr en 3. þ. m. með e. s. „Esju“
þótt undarlegt sé, þar sem meðfylgj-
andi bréf frá fundarstj. er dags. 29. jan.
En fyr var því ekki hægt að birta hana.
"♦ —
Hræöilegt ofsaveöur
geysaði eftir endilöngum Noregi 24—
26 jan. síðastliðinn, og olli miklutjóni,
einkanlega á skipum og líftjóni fjölda
sjómanna. En hið eftirminnilega af-
spyrnurok skall hér yfir rúml. 3 dögum
seinna, 29—30. janúar. Um sama leyti
ólmaðist stormurinn í Danmörku, eink-
um vesturströnd Jótlands og olli fleiri
skipsströndum.
Grænlandsmáiið.
Samningsuppkast dansk-
norsku nefndarmannanna
Nefndirnar sátu á rökstólum í
Kristjaníu 14.—28. jan s.l. og
komu sér saman um samnings-
frumvarp sem hér segir:
„Til þess að útiloka ágreining,
sem virðist ríkjandi, hefir verið
reynt að fá lausn á hagkvæmum
vafaatriðum, sérstaklega að því er
snertir dýra- og fiskiveiðar á
Austur-Grænlandi, og hafa báðar
nefndirnar orðið á eitt sáttar um
að mæla með því, hvor við síma
stjórn, að gera svofeldan samning:
1- gr.
Ákvæði samnings þessa snerta
Austur-Grænland, sem ber að skilja
þann hluta af austurströnd Græn-
lands með aðliggjandi siglinga-
svæði, sem nær frá Lindenovsfirði
(60° 27’ norðl. breiddar), til Norð-
austuraxlarinnar (Nordöstrunding-
en)(81° norðl. breiddar) þáað und-
anskiidu Angmagsalíkhéraðinu.
2. gr.
Innan svæðis þess, er um ræð-
ir í 1. gr., er með fastbundnum
skilyrðum samings þessa, skipum
frjáis aðgangur; skipshöfn og aðr-
ir skipverjar hafa rétt til þess að
fara í land, vera þar vetrarlangt
og stunda dýra-og fiskiveiðar.
3. gr.
Dýra-og fiskiveiðar má ekki
stunda á ógætilegan hátt, svo af
geti stafað hætta á gereyðingu
sjaldgæfra eða nytsamra dýrateg-
unda.svosem moskusnauta og æö-
arfugls.
Svoframarlega, að fengin reynsla
geri æskilegt, að í hvoru landinu
fyrir sig verði gerð ákvæði, svo
sem bann gegn innfiutningi veiði-
afurðanna, til þess með því, að
koma í veg fyrir gereyðingusjald-
gæfra eða nytsamra dýrategunda,
eða til þess, að vernda og auka
viðhald slkra dýrategunda, eru báð-
ir aðiljar ásáttir um hvenær sem
er, að leita samkomulags um sam-
hljóða ákvarðanir í því tilliti.
4. gr.
Innan svæðis þess, er um ræð-
ir í 1. gr., er heimilt einstakling-
um eða félögum, að taka lóðir
dil umráða og notkunar, þegar það
svæði, sem tekið er, á verulega
að vinna eða nytfæra sér til bú-
staðar eða reksturs, eða á annan
þarflegan hátt, og það ekki er áð-
ur tekið til notkunar af öðrum.
Rétturinn fyrnist, þegar ábúandi
eða fulltrúi hans ekki hefir kom-
ið á staðinn fimm ár í röð.
5. gr.
Innan svæðis þess, er um ræð-
ir í 1. gr., er heimilt að setja á
fót stöðvar til veðurathugana,
skeytasendinga og talsíma, og
koma upp stofnunum í vísindalegu
og líknarsömu augnamiði.
6. gr.
Ef tii þess kemur, að hið fyrir-
hugaða Eskimóaþorp við Scores-
bysund myndist, skulu ákvæði
þessa samnings ekki verða því til
fyrirstöðu, að til þess fáist nægi-
legt landrými afskamtað, og að
hægt sé að koma að sérákvæðum
þeim sem útheimtjst með tilliti til
hinna sérstöku lifnaðarhátta hinn-
ar innfæddu grænlenzku þjóðar
7. gr.
Aðiljarnir áskilja sér eftir sam-
Símskeyti
frá Fréttastofu íslands.
Rvík a9/a
(Sfmsbilun. Móttekið 2. m«rz).
Belgastjórn fallin. Verkbanniö norska vex, 12000 manns viðbætst.
Mussoline vill auka ítalaflota, vegna aukningar Bretaflota í Miðjarð-
arhafinu. Henderson, innanríkisráöherra, hefir ráðist á friðarsamning-
ana; telur þá tálma viðskiftalífi heimsins.
Þingfréttir:
Kjöttollsmálið rætt á leynifundi í gær, ekki útrætt enn. Eftirlits-
starfi banka og sparisjóða veittur Jakobi Möller.
Fangahús ísafjarðar brann í nótt. Unglingsmaður brann inni.
Rvík '/«•
Andstæðingar Sovjetsjórnar hafa áráðist Sinovief, sakandi hann um
hafa eytt þriðjungi gullforða ríkisins til undirróðurs í Suðuramerríku
og Suðurafríku. Kameneff og fleiri háttstandandi menn hersins afsett-
ir fyrir fylgi við andstæðinga. Þjóðernissinnar í Þýzkalandi æskja
forsetakosninga jafnframt þingkosningum ogframbjóða sonarson. Bis-
marcks. Bandaríkjastjórn vill selja kaupskip ríkisins, alls 1333. Hen-
erson hefir náð kosningu í Burnley. Neöri málstofa Breta hefir sam-
þykt jafnan kosningarrétt kvenna og karla yfir 21 árs. Tyrkir veitt
stórfé til aukningar flotanum. Slríð yfirvofandi milli Jugoslava og
Bulgara. Engar þingfréttir.
Rvík 4/».
Formaður strandgæzlu Bandaríkjanna hefir óskað 10 miljón doll-
ara fjárveitingu til aukningar gæzlu vegna smyglaranna, og skýrir frá,
að smyglararnir hafi 34 hafgeng gufuskip, 132 seglskip, auk fjölda
afarhraðskreiöra vélbáta til smyglunarinnar hafa þeir síðustu 26
mánuði smyglað inn 1246000 spriítkössum frá Norður-Evrópu.
Skýrslan vekur feiknaathygli í Ameríku. Póiverjastjórn hefir veðsett
ríkisskógana Frökkum fyrir 400 miljón franka láni til hervarnar.
Rvík 5/«.
Tyrkjastjórn afsett kalífann. Búist við þingrofi í Bretlandi og nýj-
um kosningum í maí.
„Fylla“ handtók þýzkan togara, er hét „Berlín“, og var hann
dæmdur í 10 þús. kr. sekt.
Þingfréttir:
Jónas Jónsson og GuðmundurÓlafsson bera fram þingsályktun um
skipun sparnadanefndar, sem eigi að rannsaka möguleika til sparn-
aðar í starfsmannahaldi, einkum í Reykjavík. Stjdrnarfráför yfirvof-
andi.
Rvík b/b.
Forsætisráðherra tilkynti í dag að kóngur hefði veitt stjórninni
lausn í gær. Óvissa um viðtakendur; einkum eru tilnefndir Jón Þor-
láksson og Jón Magnússon. Bernhard framber frumvarp um bygðar-
leyfi, bannaidi mönnum að setjast að í hreppi eða kaupstað, nema
með leyfi sveitastjórnar. Átta íhaldsmenn í efri deild frambera frum-
varp um að hœtta að prenta umræðupart Alþingistíðinda.
Vélbátur, „Björg“, sökk Vestmannaeyjum í nótt. Togari bjargaði
áhöfninni.
Útlent:
Svartidauði geysar við Kaspiahaf. Fjárlagafrumvarp Breta ráðgerir
37338145 sterlingspund sparnað.