Skutull - 01.05.1971, Síða 4
1
S K U T U L L
4EG
H El MI LISTÆKI
Fjölbreytt úrval
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Verzl. KJARTAN R. GUÐMUNDSSON
Mánagötu 2 — Sími 3507
1. mai
Hátíðahöldin 1. maí á ísa-
firði verða með líku sniði og
undanfarin ár. Dagskráin
verður, sem hér segir:
ÚTIFUNDUR
við Alþýðuhúsið kl. 14,00
Ræður flytja:
Hallgrímur Guðfinnsson
Félag iðnnema
Halldór Ólafsson
F.O.S.Í.
Pétur Sigurðsson
forseti A.S.V.
Ómar Ragnarsson skemmtir
Lúðrasveit skólanna leikur
KVIKMYNDASÝNING
fyrir börn kl. 16,00
„Eltingaleikurinn mikli“
Aðgangur kr. 25,00
DANSLEIKUR
í Alþýðuhúsinu kl. 21—2
V.V. og Barði leika
LAUNÞEGAR!
Takið þátt í hátíðahöldun-
um. Fölmennið á útifundinn
Kaupið og berið merki
dagsins.
1. Maí-nefnd.
Bifreið til sðln
Bifreiðin 1-1110, sem er af gerðinni CITROEN
ID-19, árgerð 1964, er til sölu.
Upplýsingar gefnar í síma 3464 og 3699
eftir klukkan 19,00.
Innilegar þakkir sendum við öllum, sem auðsýndu
okkur samúð og vináttu við fráfall og jarðarför elsku-
legs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa
JÓHANNS MAGNÚSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Salóme Salómonsdóttir,
Magnús Jóhannsson, Margrét Jónasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurvegari
i firmakeppni
Skíðaráðsins
1971
Við sögðum frá úrslitum í
Firmakeppni Skíðaráðs ísa-
fjarðar í síðasta tbl.. Hér
kemur mynd af sigurvegar-
anum, Haraldi Leifssyni,
sem keppti fyrir Hamraborg
hf.
Málefnaleg
afstaða
skiptir mestu
1 4. tölubl. ísfirðings, blaði
Framsóknarmanna, erum við
fulltrúar Alþýðuflokksins í
bæjarstjórn ísafjarðar átald-
ir fyrir það ábyrgðarleysi, að
við skulum ekki í undirgefni
og þögn una þeirri happa- og
glappa stefnu, sem um tíma
hefir um of sett svipmót sitt
á bæjarmálin. En eins og
bæjarbúar vita, þá er það
óæskilega ástand rökrétt og
eðlileg afleiðing af gönu-
hlaupi og ábyrgðarlausri á-
kvörðun annars bæjarfulltrúa
Framsóknarflokksins.
Ritstjóra Isfirðings sézt yf-
ir þá staðreynd, að það eru
mun ábyrgari vinnubrögð að
taka málefnalega og raun-
hæfa minnihlutaafstöðu í
framkvæmda- cg velferðar-
málum bæjarfélagsins og
berjast fyrir framgangi
þeirra, heldur en að fljóta
sofandi og sinnulaust í ó-
göngur og úrræðaleysi í sam
floti við ráðvilltan og stefnu
lausan meirihluta, — meiri-
hluta, sem er sjálfum sér
sundurþykkur og svo óánægð
ur með tilveru sína og verk
sín, að hann notar sérhvert
tækifæri til að afneita tilvist
sinni.
Alþýðuflokksmenn eru þeirr
ar skoðunar, að okkur beri að
spyrna eftir föngum gegn
öfugþróun bæjarmálanna og
ieyna að gera bæjarbúum
grein fyrir hvert nú stefnir
í þeim málum. Með því vinn-
um við bæjarfélaginu miklu
meira gagn en að sitja af-
skiptalausir hjá og gerast
þannig samábyrgir þeim að-
ilum, sem sundruðu raun-
hæfu samstarfi vinstri flokk-
anna um bæjarmálin.
Þessi afstaða okkar virðist
koma illa við ýmsa Fram-
sóknar- og Sjálfstæðismenn,
sem lítið kæra sig um að
flokkar þeirra séu gerðir á-
byrgir verka sinna í bæjar-
málunum. Sannarlega hefði
ég vel getað unað Fram-
sóknarflokknum á ísafirði
betra hlutskiptis en þess,
sem hann hefir nú valið sér.
En það mun Framsóknarflokk
urinn sannreyna fyrr en
seinna, að í bæjarmálunum
á ísafirði verður ekki til
langframa rekin „já, já og
nei, nei“ pólitík.
íshúsfélag ísfirðinga hf. hefur þá háttu á, að bjóða
starfsfólki sínu veitingar á sumardaginn fyrsta. Síðsti
vletrardagur varð eftirminnilegri nú en áður vegna
heimkomu handritanna. í tilefni þess setti forstjóri
íshúsfélagsins, Marías Þ. Guðmundsson, upp smá sýningu
í kaffisal fyrirtækisins, er hann bauð starfsfólkinu
þangað. Lágu þar frammi Ijósprentanir af Flateyjarbók
og Konungsbók eddukvæða.
Tilkynning
frá Barnaskóla ísafjarðar.
Sundnámskeið verður haldið á vegum skólans
fyrir þau börn í skólahverfinu, sem verða skóla-
skyld á þessu ári, — þ.e. eru fædd árið 1964.
Börnin komi til viðtals við íþróttakennara skólans í
SUNDHÖLLINA mánudaginn 3. maí n.k. sem hér
segir:
DRENGIR KL. 13,30
STÚLKUR KL. 14,30
ísafirði, 21. apríl 1971.
Skólastjóri.
TELEFUNKEN
YIÐTÆKI
S J ÓN V ARPSTÆKI
FERÐATÆKI
SEGULBÖND
PLÖTUSPILARAR
GOTT VERÐ
GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
Verzl. KJARTAN R. GUÐMUNDSSON
Mánagötu 2 — Sími 3507
Björgvin Sighvatsson.