Bæjarpósturinn - 07.02.1925, Side 1
jfnmnnmw M mm m m imiRH 3Vni>11“11,tB
1 Fréttir frá P Mb IMyOnCTaðOllllI sves'
! Hæni F Jllili 11 J I llt illll § eintakiö h
HLuuuujxégxna V J I UlfJilBl ttlOCEECCCCaXZrfl
ÚTGEFANDI: SIG. ARN6RÍMSS0N
1- árg.
Seyöisfiröi, 7. febr. 1925.
22. tbl.
Símfregnir.
Rvík a/a. FB.
íslendingur dæmdur til dauða.
Frá Saskachewan í Ameriku er
símað: Ingólfur Ingólfsson varfyr-
ir nokkru dæmdur til hegningar 4
febr. Maðurinn hefir verið dæmd-
ur eftir líkum. íslendingar með
Þjóðræknisfélagið í fylkingarbroddi
vinna að samskotasöfnun ogreyna
að forða manninum frá gálganum.
Loftusmálið.
Mikið er um það ritað í ensk-
um blöðum og er víða sagt að
hann svelti, sem er auðvitað
ósatt.
Frá Berlín.
Luther forsætisráðherra heldur
útlendum blaðamönnum samsæti.
Hann svarar Herriot og telurhróp-
legt ranglæti að ásaka þjóðverja,
og kveður hann tortrygnina milli
landanna skaðlega öllum.
Hveitiverðhækkun
í Chicago er sögð afskapleg, og
þegar orðin einnig í Lúndúnum
og Paris.
Hryllileg togaraströnd.
Þýzki togarinn „Wilhelm Jurgens“
strandaði aðfaranótt sunnudagsins
við Eindrang vestur af Vestmanna-
eyjum. Losnaði hann aftur, en
sökk rétt á eftir. Einn maður
druknaði. Annar togari þýzkur
bjargaði mönnunum, er komist
höfðu í björgunarbátinn við illan
leik.
Aðfaranótt 27. jan. skeði ennþá
hörmulegra slys. Fólk í Höfnum
heyrði eimpípublástur um mið-
nætti, en ekkert varð að gertsök-
um myrkurs og óveðurs. En er
birti sigu menn í Hafnarherg og
kom þá í Ijós, að mölbrotið skip
var undir berginu. Vegna brims
var ógerningur að síga svo langt,
að hægt væri að aðgæta hvort lík
hefðu rekið í hellana undir berg-
inu. Gummihylki hefir lundist rek-
ið, og er ætlað að skipið sé þýzk-
ur togari nr. 50 frá Nordham f
Þýzkalandi.
Rvík 4/a. FB.
Nýtt dagblað
er Árni óla farinn að gefa út,
sem heitir „Dagblað".
Frá Moskva: Eftirmanni Trotskys
í hermálaráðherrastöðunni er vik-
ið frá. Var hann álitinn óhollur
flokknum. Sinovieff tekur við.
Frá Paris: Varaforsæti þings-
ins ásakar Þjóðverja í blaðagrein-
um um, að þeir hafi flugvélar
þannig útbúnar, að þeim megi
breyta á svipstundu til hernaðar,
og flugæfingar og flugkensla fari
þannig fram, að líkist flughernað-