Faxi - 01.01.1966, Blaðsíða 12
JAHUUUUHUUUUUUUUUUVUUUVHHUUUVUU^
GÁRÐÁRSHÓLMI
Húsgagnaúrvalið er hjá okkur.
★
Húsgögn á tveimur hœðum.
★
Munið okkar hagkvœmu
greiðsluskilmála.
^vwwvwwwwwwwwwwwwwvwwwvwwwwwwww
GÁRÐÁRSHOL
Hafnargötu 88 — Sími 2450
'WWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWV*
GÁRÐÁRSHÓLMI
Leikföng fyrir alla fjölskylduna.
Nýjar vörur daglega.
Verzlið þar sem úrvalið er mest.
GÁRÐÁRSHÓLMI
Hafnargötu 18 — Sími 2009
«>
C.WW
?
<>
«>
«>
::
<«
«>
<>
<>
<>
<•
<•
::
<>
::
<»
i
+
<>
<>
::
::
::
<•
<•
<>
<»
<•
<>
::
::
::
<»
<•
<»
<•
<»
<•
<•
<»
::
<•
<>
<»
<•
<»
<»
<•
<•
::
<•
<>
£
VWWWWWWWWWWWWWWWWWWWVWWWWVWWA
í bylnum. Var mér þá fyrst svo brugðið,
að ég fór að skæla. Lái mér það hver sem
vill, en taka ber þá tillit til þess, sem ég
hafði gengið í gegn um, ekki eldri maður
en 16 vetra.
Eiríkur hafði þetta kvöld, ásamt fleiri
mönnum úr Grindavík, legið fyrir tófur
út með sjó og var nýkominn heim, en
allir höfðu þeir villst meira og minna.
Var ég nú á Járngerðarstöðum um nótt-
ina í góðu yfirlæti. Um kvöldið kom
þangað Einar hreppstjóri í Garðhúsum,
en hann var þá búinn að frétta af hrak-
förum mínum. Ráðlagði hann Eiríki, að
láta strax morguninn eftir góðan mann
fylgja mér til Hafna. Taldi vera útlit
fyrir gott veður og mundi þá verða hafin
leit að mér frá Höfnum, ef ég ekki skil-
aði mér í tæka tíð. Gerði Eiríkur þetta,
og snemma um morguninn lét hann
vinnumann sinn, Þorstein, fylgja mér.
Fórum við um hjá Tóftum í Grindavík,
en Þorsteinn var þar vel kunnugur og
hélt því beint strik niður í Hafnir, en
fylgdi ekki veginum. Ég var svo villtur
á þessu ferðalagi, að ég hafði ekki hug-
mynd um, hvert hann fór með mig og átt-
aði mig ekki fyrr en við komum heim
undir Hafnir. Var þá komið hífandi rok
á landsunnan og leit út fyrir vont veður.
Við komum til Hafna rétt undir rökkrið
og var þá pabbi sálugi búinn að fara til
Keflavíkur að leita þar síns týnda sonar.
Reyndar hafði hann skroppið þangað strax
kvöldið, sem mín var þaðan von og frétti
þá að ég var þaðan farinn. Einnig hafði
hann þá um morguninn spurst fyrir um
mig aftur í Keflavík og Njarðvíkum og
var nú að undirbúa leit að mér, en sakir
veðurs varð nokkur töf á að leitarflokk-
urinn legði af stað. Þótti því vel úr ræt-
ast, er ég birtist þar heill á húfi.
Um ljósið í Grindavík, sem ég nefndi
og hélt vera í Þórkötlustaðahverfinu, er
það að segja, að það var alls ekki þar,
heldur á Járngerðarstöðum. Hvergi í
Grindavík, nema á þeim bæ, sneri gluggi
til heiðarinnar, og svo einkennilega vildi
til þetta kvöld, að gardínan fyrir þennan
glugga fannst hvergi, svo ekki var unnt
að breiða fyrir hann. En það varð mér til
lífs. Strax og ég var kominn inn, fannst
gardínan. Var það því álit manna, að
þetta kynlega atvik væri yfirnáttúrlegt.
Daginn eftir þennan minnisverða at-
burð, fóru Grindvíkingar að smala fé
sínu þarna um heiðina og komu þá á
förin mín, sem lágu þar yfir allar vatns-
gjárnar, sem í hrauninu eru og furðuðu
sig á því, hvernig ég gat komist þetta
um nóttina.
Þetta ljós, sem ég tel að hafi bjargaÖ
lífi mínu á þessari dimmu hríðarnóttu,
hefir verið fyrir augum mér alla tíð síðan,
bæði á sjó og landi. — Þetta er ljósið, sem
ég trúi á til æviloka.
H. Th. B.
■Leiðrétting.
í formannavísum nú í síðasta tbl. brengluð-
ust nokkur vísuorð, sem hér verða leiðrétt:
11. vísan er rétt þannig:
Hann með gengur hugrekki,
hrausta drengi hvetjandi.
A stökkulsengi stríðandi
stýrir lengi „Hreggviði".
12. vísa:
Jóhann þrekinn burði ber,
borðadreka vel stýrir.
Drós frá hnikars djarft sækir,
dröfn þó veki stormamir.
Tilgáta hefur komið fram um að fyrsta
hending síðustu vísu muni geta verið þannig:
Vísugreyin vangerðar — og yrði þá öll vísan
þannig:
Vísugreyin vangerðar
vænta eigi miskunnar.
Blaðinu fleygja bezt því var
á breiða veginn glötunar.
12 — FAXI