Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.2003, Side 44

Frjáls verslun - 01.06.2003, Side 44
Þríeykið sem ber ábyrgð á samvinnu og sátt við bílakaupendur. Þórður, Jón Valur og Ágúst eru samstiga og segja að viðskiptavinirnir finni sig öruggari fyrir og eftir kaup þar sem þeir upplifi að hugur fylgi máli. AUGLÝSING FYRIRTÆKI í SAMKEPPNI UM TRAUST: Samhjálp Brimborgar er nýr lykill að betri viðskiptum F[ rá árdögum bflsins hefur hann breyst úr farartæki í „öndvegi fólks og hásæti í samskiptum við annað fólk og dvalarstað þess milli staða“. Tíðarandinn hefur leikið um bílinn með straumi nýjunga sem uppfylla óskir og drauma neytenda og haldið framleiðendum og seljendum vakandi fyrir þörfum fólks og bætt búnað bílsins. Frá samlituðum hurðarhúnum upp í flókinn hátæknibúnað. Valkostirnir eru margir og geta útfærslur á hverju merki orðið tugir þúsunda sem er ekkert smáræði, segir fram- kvæmdastjóri Brimborgar, Egill Jóhannsson. Sérstaða bílsins sem neytendavöru er auðskilin en bíllinn er stór og slungin vara sem kostar, með skattlagningu, mikla peninga. Hann er sennilega mesta ijárfesting sem hver venjulegur maður ræðst í, fyrir utan íbúðarkaup. Þess vegna gera neytendur miklar kröfur um öryggi á öllum sviðum vörunnar. Framleiðendur og seljendur hafa þurft að vinna með viðskiptavinum sínum allt frá fyrsta fjöldaframleidda bílnum frá Henry Ford. Hans stefna var að bjóða bíla til sölu sem almenningur gæti keypt. Ford bauð einnig viðskiptavinum sínum alla liti svo framarlega að þeir væru svartir, en litaskipting var í þá daga mjög dýr kostur. Þarfirnar vaxa Neytendur vilja meira öryggi. Samvinna aðila endar ekki eftir að bíllinn er keyptur, heldur gera neytendur kröfur um aðgengilega og einfalda þjónustu eftir kaupin sem fýrir seljanda er í raun mjög flókin og dýr í rekstri. Neytendur vilja trygg gæði, örugga viðhaldsþjónustu, örugga viðgerðarþjónustu, öryggi fyrir farþega og ökumann og aðra vegfarendur og rétt verð. Síðast en ekki síst vilja neytendur að öryggi við gerð kaupsamninga sé pottþétt. Fólk vill eiga viðskipti við aðila sem það getur treyst algerlega til þess að koma heiðarlega fram. Ef allt þetta er uppfyllt er neytandinn loksins öruggur með sjálfan sig. Dagvenjur okkar og smekkur er mismunandi og ef vel á að takast til við að uppfylla óskir bílakaupandans þarf seljandinn að bjóða viðskiptavinum sínum inn fýrir búðarborðið. Auka samvinnuna svo um munar og vinna náið með viðskiptavinum og fjölskyldum þeirra - þeim til heilla. Slíka samvinnu komu menn vart auga á fyrir tíu, fimmtán árum enda margt einfaldara þá. „Samhjálp er nýtt lykilorð að betri viðskiptum", segja sérfræðingarnir - orð sem menn eiga væntanlega eftir að sjá og heyra oftar og í ýmsum myndum í framtíðinni og þau fyrirtæki sem skilja hvað samhjálp er, munu skera sig úr fjöldanum og laða til sín bestu og tryggustu viðskiptavinina. En hvað merkir „samhjálp“ (e: sharecare) í viðskiptum? Með orðanna hljóðan í huga, má ætla að samhjálp sé gagnkvæmt fyrirbæri veitanda og neytanda. Liggur þá beinast við að spyrja sig hvort íslenskir neytendur njóti þessara nýju stefnu. Hugtakið samhjálp skýrir ákveðna aðferðafræði í heildrænni boðskiptastefnu fyrirtækja. Hún leiðir að hluta til af hugtakinu „sigur/sigur“ (e: win/win) sem merkir að báðir aðilar eiga að koma sáttir út úr viðskiptunum. Með samhjálp er gengið miklu lengra í átt að sátt og samlyndi milli seljanda og viðskiptavina. Fyrir kaup og eftir kaup. Hvaða andi blæs um íslensku fyrirtækin? Hver er tíðarandinn í þessu? Hvaða andi blæs um íslensku fyrirtækin? Er að finna samhjálp eða gagnkvæmi í starfi þeirra? Glöggvum okkur á því bílafyrirtæki sem hvað mest sker sig úr flóru bílaumboða á Islandi þessa stundina: Brimborg við Bíldshöfða í Reykjavfk. Brimborg hefur mikið verið í fréttum með nýjungar, bæði í söluaðferðum og vörum og ekki síst vegna stór aukinnar sölu á vörum fyrirtækisins. Augljóst er að þeir hjá Brimborg eru að gera athyglisverða hluti, neytendum til góða Fyrir nokkrum vikum settu þeir m.a. met með lengstu auglýsingu allra tíma. „Sagter að í honum sé að finna ‘G’ blettinn“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.