Frón - 26.09.1937, Síða 2

Frón - 26.09.1937, Síða 2
Það er nú orðíð íjóst öíítmi almenn- íngí hér, að „Nýr dagar“ er gefínn út fyrfr peninga hínna lægst latmtiðií i þessttm bæ, og s^o fyrír öflugan stttðníng þó nokfetið margra, jfafnvel áhrífamanna ínnan Sjálfstæðísflofeks- íns. Og sfetilu nú færð nofefeur röfe að þessu. I FRÓN I kemur fyrst um sinn út i | annanhvern sunnudag. f Ritstjórn annast Ritnefnd I f Pélags Þjóðernissinna Vest- f | mannaeyjum. | Abyrgðarmaður: Sig. Eyjóifsson. f Verð: 2,50 árgangurinn. f \ 10 aurar eintakið í lausa- f sölu. ! | Utanáskrift blaðsins er : Blaðið Frón, Pósthólf 14 f Vestmannaeyjum f Eyjaprentsmiðjan h.f. flllMIIIIIIIIIHIIIIItllHIIIIIIIIMIIIIIilllllllll.. Til lesenda Með þessu blaði byrjar Prón að koma út aftur. Er meiningin að það komi út annan hvern sunnudag eftirleiðis. Sú breyt- ing verður gerð á blaðinu, að það verður framvegis alt að helmingi stærra en það var áð- ur. Ennfremur verður tekið á .móíi áskrifendum að blaðinu. Verður blaðið borið heim til á- skrifenda strax og það er kom- ið út. Verð blaðsins höfum vér ákveðið kr. 2,50 árganginn. Ætlunin er að greitt sé fyr- irfram fyrir einn árgang í einu og höfum vér ákveðið verð blaðsins svo lágt, með hliðsjón af því. Væntum vér þess, að hinir mörgu vinir blaðsins bregði nú skjótt við og gerist áskrifendur. Til allra unnenda Þjóðernis- stefnunnar beinum vér þeirri áskorun að gera blaðið sem allra útbreiddast. Það er nú svo komið hér í Vestmannaeyjum, að Þjóðernis- sinnar munu fá kosna fulltrúa í bæjarstjórn við næstu kosningar. Bendir alt til þess, að þeir muni ná úrslitasætunum. Vegna þessa er það nauðsynlegt fyrir flokk- inn að geta gefið út blaðið að staðaldri, svo almenningi gefist sem bestur kostur á, að kynn- ast stefnu flokksina í bæjarmál- unum. Vér Þjóðernissinnar munum nú, kröftuglegar en nokkru sinni fyrr, hefja' baráttu gegn marx- isma, íhaldi og stéttastríði, fyrir einingu, bættum kjörum og þjóðhollri menningu, í fylking- arröðum Þjóðernissinna eiga því allir sannir íslendingar að vera, og óðuin fjölgar þeim, er skylja það. Sígra mtmtí þeír, sem viima Íslandí aíít. Ritnefndin. Fyrirtæki hér í bænum er nefnt K.f. Verkamanna, og hef- ir það starfað hér í nokkur undanfarin ár, Tilveru sína á það því að þakka, að stjórn- anda þess, ísleif Högnason kommúnista, vantaði atvinnu, eftir að hafa hröklast frá öðru kaupfélagi, við lítinn orðstír. K.f. Verkamanna befir aldiei verið hrósað fyrir liðlegheit í garð verkamanna, en aftur á móti heíir það ekki ósjaldan borið við, að ef þeir fáu útvöldu sem fá vörur í rekning hjá fé- laginu, hafa ekki afdráttarlaust verið búnir að gera skil fyrir 10. hvers mánaðar, hafa þeir fengið tilkynningu um lokun reikningsins. Þetta hefir aðal- lega bitnað á atvinnulitlum eða alveg atvinnulausum verka- mönnum, sem stundum hafa eðlilega haft lítið til að borga með, þrátt fyrir það þó þetta haíi vei'ið þrautheiðarlegir menn sem engan vilja svíkja, en aft- ur hinir, sem álitnir eru sæmi- lega efnum búnir, eða hafa fasta vellaunaða atvinnu, hafa ekk- ert orðið varir við þessháttar tilkynningar. En einmitt flestir af þes3um góðu „kúnnumu kauplélagsins, sem ekki fá tilkynningarnar um lokun reikningsins, teljast til Sjálfatæðisflokksins, — þess flokk3, sem þykist berjast gegn Marxisma og Kommúnisma. En Sjálfstæðisflokkurinn er vægast sagt, neikvæður í þeirri baráttu, því með sínu vanalega aðgerð- arleysi, elur hann beinlínis upp Kommúnisma. SjálfstæðÍBfiokkur- inn er kyrstöðuflokkur, en Kommúnistaflokkurinn, og er þar með átt við alla Marxista, er skaðræðisflokkur. Þetta verður öll þjóðin að skilja, ef hún ekki vill tortímast með öllu, og líða undir lok sem sjálfstæð þjóð. Meðlimum Kommúnistaflokks- ins hér er sennilga öll- um með tölu skipað i.ð versla við kaupfélagið, en þrð kostar svo aftur útgáfuna á blaðsómynd þeirra og hinu andle;;a fóðri, sem nefnt er „Nýr dajuru. Og eins og áður er áminnst, styrkja margir góðir og gegnir Sjálfstæð- ismenn þessa blaðaútgáfu, með því að verzla við þetta kaup- félag, og sumir þeirra munu þeir bestu og stærstu mánaðar- reikningsmenn, sem þar verzla, Stafi nú þessi bjánaskapur þessara manna af því, að þeir álíti sig fá meat fyrir sína pen- inga, einmitt þarna, þá er það herfilegur misskilningur. Um það getur hver sannfært sig sem vill, t. d. með því að bera sam- an vöruverð kaupfélagsins og sumra kaupmanna hér í bænum, svo sem hjá Vöruhúsi Vest- mannaeyja li.f. — Jóh. A. Bjarnasen, svo dæmi séu tekin. Og það skal fullyrt hér, að flest- ir kaupmenn þessa bæjar og hlutafélög, taka oft meira tillit til efnalítilla og atvinnulausra verkamanna, þegar um vörulán er að ræða þeim til handa, heldur en stjórnandi K.f. Verka- manna gerir, þó svo eigi að heita, sem félagið hafi sérstak- lega verið stofnað fyrir verka- lýðinn, eftir því sem nafnið bendir til. Það er alveg víst, að kaup- félagið er aðalféþúfa kommún- ista hér, og þeir „góðu“ Sjálf- stæðismenn sem verzla í þessu kaupfélagi, eru því óviljandi eða viljandi, styrkjendur þessa flokks, jafnframt því sem þeir gera Isleif Högnason, stjórnanda þess og forustu8auð Kommúnista hér, að nokkurskonar fjárhalds- manni sínum, og ekki nóg með það, heldur hundsa þeir þá mörgu kaupmenn sem halda lífinu í „Víðiu með því að auglýsa f honum. Ilvað kæmi „Víðiru lengi út hér, ef kaupsýslumenn- irnir hættu að auglýsa í hon- um? Ilvenær hefir K.f. Verka- manna, styrkt Sjálfstæðisflokk- inn með því að auglýsa í mál- gagni hans hér? Sjálfstæðisflokkurinn heflr sýnt það áþreifanlega, að hann er þess ekki megnugur, að taka upp hina virku baráttu gegn Kommúnismanum á íslandi, þess vegna verða allir góðir og fram- sýnir menn, að fylkja sér um þann flokk — Flokk Þjóðern- issinna, sem stefair markvist að því að útrýma Kommúnisman- um hér af landi. Það er ennfrsmur fyrir löngu komið í dagsinsljós, að Komm- únistar eru styrktir með rúss- neskum Rúblum, sem eru yfir- færðar á þann hátt, að Rússinn sendir fyrirtækjum Kommúnista í Reykjavík ýmsar vörur, en þaðan fá svo menn eins og Jón Rafns. kaup sitt greitt, fyrir þá óþrifa iðju, að útbreiða og reyna að innleiða blóðveldi Stalins á íslandi. Því eins og kunnugt er af fréttum þaðan að austan, svo að segja daglega, þá eru fjölda- morðin þar á verkamönnum á- líka algeng og bíóin hér. '— Það er hræðilegt að heyra þenna sannleik og vita um leið til þess, að hér skuli vera til menn, — flokkur — sem er undir beinni stjórn þessara „verkalýðsmorðingja“ austur í Moskva. Er ekki kominn tími til að segja: Hingað og ekki lengra, og fyrir Sjálfstæðismennina að hætta að styrkja kommúnist- ana í Vestmannaeyjum. Það er æska íslands, sem fyrst liefir komið auga á hina þjóðhættulegu starfsemi Marx- ista hér á landi, og hún skipar sér nú undir merki þess flokks — Flokks Þjóeðrnissinna — sem stefnir að því, að frelsa íslenzku þjóðina frá því að verða Marx- ismanum að bráð. Stefnir að því, að sameina þjóðina í eina heild og útrýma öllu stéttahatri. Stefnir að því, að koma á var- anlegum vinnufriði í landinu með samfélögum verkamanna og atvinnuveitenda. Stefnir að því, að búa betur að þeim, sem ver eru settir í þjóðfélaginu og finna atvinnu handa þeim mörgu sem ekkert hafa að gera en þurfa að vinna. Uóðir íslendingar, ykkarvitj- unartími er kominn, leggið all- ir hönd á þann plóg sem vinn- ur að því, að græða jörð ykkar svo hún gefi ykkur betri og á- nægjuríkari ávöxt. Flýtið með því, fyrir hinu samvirka þjóð- ríki framtíðarinnar. wnr innnnfniiii mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmt Notið Svinavitimín smjörlíki.

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/711

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.