Jazz - 01.09.1947, Blaðsíða 13
TÍMARITIÐ JAZZ
Útgefandi Hljóðfæraverzl. Drangey
Ritstjóri Tage Ammendrup
Afgreiðsla Laugaveg 58
Símar:
Auglýsingar og ritstjórn 3311
Afgreiðsla 3896
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN H-F
Gunnar er nú á leið til Bandaríkjanna
til framhaldsnáms og óskum við alls þess
bezta honum til handa.
Hljómsveit Baldur Kristjánssonar var kjörin
bezta litla hljómsveitin á árið 1947 og einnig
var hann kjörinn næst bezti píanistinn og þar
sá bezti íslenzki.
Hljómsveit Baldurs er Reykvíkingum að
góðu kunn og hefur leikið í Odfellowhúsinu
um margra ára skeið.
I hljómsveitinni eru þessir menn: Guð-
mundur Vilbergsson, Trompet, Einar Wáge,
Saxófón, Baldur Kristjánsson, Píanó og stjórn-
andi og Karl Karlsson, Trommur.
Baldur er afar fjölhæfur píanóleikari og
hefur afar mikla tækni og kunnáttu til að
bera, og aðrir meðlimir hljómsveitarinnar
eru þekktir hljóðfæraleikarar.
Carl Billich var kjörinn bezti píanóleikar-
inn árið 1947.
Billich var kjörinn bezti píanóleikarinn
árið 1947.
Billich hefur áður verið getið mjög ítarlega
og viljum við vísa til 1. tbl. Jazz um frekari
upplýsingar.
Bjarni Böðvars, er var kjörinn bezti Kontra-
bassaleikarinn 1947, er Islendingum kunnur
af leik sínum um margra ára skeið.
Carl BilHch
Bjarni er mjög fjölhæfur, leikur á mörg
hljóðfæri og semur lög.
Hann hefur litla fjögra manna hljómsveit
og hefur haft tólf manna hljómsveit síðan
1939.
Nýr sextett
Nýr sextett hefir nú verið stofnaður hér í
bæ, og mun bráðlega byrja að leika í Mjólk-
urstöðinni.
Stjórnandi sextettsins er Kristján Magnús-
son (Alto sax. -—■ Clarinett), Guðmundur Vil-
bergs, áður með Baldri Kristjánssyni, (Trom-
pet), Trausti Thorberg (Guitar), Steinþór
Steingrímsson, áður með G. O. quintettinum,
(Píanó) og Svavar Gestsson Trommur og
Víbrafón.
Þeir Kristján og Svavar eru nýkomnir frá
Bandaríkjunum, en þar hafa þeir stundað
nám um 15 mánaða skeið.
Tímaritið Jazz mun hafa viðtal við þá fé-
laga í næsta tölublað, og mun þá spyrja þá
um jazzinn í Bandaríkjunum.
jazz T3