Jazz - 01.09.1947, Síða 14
Nýjustu fréttir
Tímartið Jazz hefir nú fengið gefin upp
nöfn þeirra manna, er koma með Rex Ste-
wart, og eru það þessir.
Rex Stewart, trompet.
Sandy Williams, trombón.
John A. Harris, clarinett.
Vernon Story, tenór saxófón. '
Timmie Tanner, píanó.
Pedcurry, trommur.
Söngvari Honey Johnson.
Einnig eru líkur til að með Stewart komi
danskur bassisti, en ekki höfum við fengið
nafn hans enn.
Að líkindum mun ekki koma annað blað
fyrir komu Stewarts, svo til gamans má geta
helstu æfiatriða þessara hljóðfæraleikara.
Sandy Williams er fæddur 1907 í Wasing-
on D. C.. Hann er þekktur fyrir hve vel
hann leikur blues, smekklegur er hann með
afbrigðum og tónninn fallegur, í „Session“
nýtur hann sín sérstaklega, og er hann og
Jack Teagarden hafa lent saman í „Session"
vill Teagarden heldur hlusta á Sandy en leika
sjálfur. Sandy hefir leikið með fjölda hljóm-
sveita og má nefna t. d. Henderson, Chick
Webb, Raymond Scott, Duke Ellington,
Eddie Condon og Ellu Fitzgerald.
John A. Harris, betur þekktur undir nafn-
inu „Johnie the Buffalo King“, er clarinett-
snillingur. Hann lék um tíma í hljómsveit
Stuff Smiths, annars hefir hann haft annars
konar vinnu um hönd og ekki haft tíma til
að leika lengi í einu með hljómsveitum, svo
það má teljast heppilegt mjög að Stewart
skyldi takast að ráða hann hingað.
Vernon Story er fæddur 1923 í Atlantic
City og útskrifaðist ungur úr „Institude of
Modern Arts“, og hefir síðan leikið með
mörgum frægum hljómsveitum t. d. Erskine
Hawkins, kallaður ,The 20. Century GabrieT,
Ca'b Calloway og Louis Jordan.
James „Jimmie“ Tanner er fæddur 1923 í
Missisippi. Er afar mikill „tekniker“ og hefir
getið sér gott orð. Hann hefir leikið með
Tiny Bradshaw, McKinneys, Cotton Pickers
og W. Bryant.
Honey Johnson er ekki einungis mjög fær
söngkona, heldur er hún mjög góður píanó-
leikari og dansmær. Hún leikur jazz á píanó
jafnhliða klassiskri hljómlist, og það má segja
um ungfrú Johnson að hennar aðal og eina
áhugamál er hljómlistin.
Duke Ellington hélt hljómleika í War Me-
morial óperunni fyrir troðfullu húsi.
Söngvarar voru Kay Davis og Chester
Grumbler og Duke hafði bætt við sig Tyree
Glenn á Víbrafón.
Samkvæmt Downbeat var fyrri hluti hljóm-
leiksins misheppnaður en Duke náði sér upp
á C Jam Blues og Honeysuckle Rose er bæði
vöktu mikla hrifningu.
Annars hefir hljómsveit Ellingtons misst
marga beztu krafta sína, þó ennþá hafi hún
Hodges, Carney og Sonny Greer, en fróðlegt
verður að sjá við næstu kosningar, hvort
Duke heldur sæti sínu
Sidney Bechet hefir leikið inn á tvær plöt-
ur fyrir Columbia.
A annari plötunni leikur hann með Bob
Wilbur og hljómsveit hans, en á hinni með,
rythma-tríói og leikur Pop Foster á bassann.
14 jazz