Birtir að degi - 01.11.1938, Síða 2
2
BLAÐ NEMENDAFÉLAGS IÐNSKÓLANS
Frá félagslífinu
Ég vil lauslega fara nokkrum orðum um stofnun
Nemendafélags Iðnskclan.s og helztum tildrögum þess.
Það er efiaust öllum kunnugt, hvernig fór með síð-
asta aðalfund MálfundaféLágsins. Þar héldu þeir
menn velli, sem áður fóru með stjórn félagsins, en
margir teija að þar hafi verið svik í tafli, en hér
skal enginn dómur á það lagður. En þaó er víst, að
kosningasvik er ekkert nýtt fyrirbrigði hér í Iðnskól-
anum. Á undanförnum árunr hefir það verið sígild
regla, hjá þeim sem farið hafa með stjórn félags-
ins, að beita svikum, þegar þeim hefir þótt það henta,
og hefir það gengið lengra þar, en þekkist meðal nem-
enda í öðrum skólum. Maður skyldi nú ætla að þess-
ir menn, sem hafa svona mikinn áhuga fyrir því að
fara með stjórn félagsins, sýndu einnig áhuga fyrir
því, að efla samstarf meðal nemendanna, en því fer
fjarri. Þeirra markmið hefir verið að sundra sem
mest nemendunum, og ala á óvild meðal nemendanna
í þeim tilgangi, að sporna við að nokkurt lélagslíf
gæti skapast meðai þeirra. Þetta hefir þeim tekist
að nokkuru leyti., og má benda á mörg dæmi því
til sönnunar. Þeir hafa reynt að innræta þá skoðun
hjá nemendum að varhugavert væri fyrir þá að um-
gangast aðra en þá, sem væru sömu skoðunar á stjórn-
málum og þeir sjálfir. Þetta hafa þeir gert vegna
þe,ss. aó þeir voru hræddir um að missa tökin á þeim
nemendum, sem þeir hafa með s'ínu fagurgali um
dyggðir Siínar, vélað til fylgis við sig. En. eins og vér
vitum, eru margt af þessu óharðnaðir unglingar, sem
myndu hverfa frá villu síns vegar, ef þeir fengju rétt-
ar upplýsingar og fengju að íhuga máliö í næði.
Það var ekki að heyra á fundargerð þeirri, sem
lesin var upp á þessum merka fundi, að alltaf væru
mætt íjölmenni á fundum félagsins. Mig minnir ekki
betur en greidd hafi verið atkvæði um tillögu og 14
hafi verið með en 8 á móti. Það gerir 22. Þið munuð
kannske spyrja hvernig stóð á því að mættir voru
milli 80 og 90 nemendur á síðasta aðalfundi. Skýr-
ingin liggur í því, að á undanförnum árum hefir
það verið venja þeirra manna, sem hafa haft áhuga
fyrir því, að koma á heilbrigðara félagslífi í félaginu,
en verið hefir, að safna, á aðalfund nemenaum meö
sivipaðar skoðanir og þeir. En það er engu líkara,
en að margir nemendur hafi verið hræddir að sýna
í verki, að þeir vildu heilbrigðari stjórn á íelaginu,
og hefir því verið erfitt að ná þeim saman. En samt
hefir oft tekist að fá nokkuð marga nemendur til að
mæta, og hafa þá hinir óþjóðlegu þurft að tefla fram
öllum sínum mönnum, og hafa enn sem komið er
hangið við völd í félaginu. Svo þegar þeir hafa. verið
búnir að tryggja sér stjórn félagsins, hefir þeim
fundist heppilegast, að sem fæstir mættu á fund-
um, til þess að þeir í næði gætu gert sínar ályktanir,
og getum við séð að hverju þeir hafa stefnt, ef við
athugum, hvað hefir gerst hjá þeim.
Hvað er að segja um það, svo tekið sé dæmi, að
þeir hafa veitt fé úr félagssjóði til »pólitísks« félags,
og hafa með því þótzt vera að vinna að málefnum
nemenda, en þar hafa þeir gjört hið gagnstæða,. Ekki
hefir starf félagsins þó verið að öllu leyti einskis
virði fyrir nemendur. Fyrir atbeina þess, hefir að-
búnaður nemenda í skólanum, verið bættur að nokk-
uru, en það hefði mátt gera miklu meira, ef betra
samstarf hefði verið meðal nemenda,. Márgir nem-
endur hafa haft, góðar hugmyndir um ýms mál, er
varða hagsmuni nemenda, en sagt sem svo, það þýð-
ir ekkert að fara á, fundi hjá Málfundafélaginu, til
að reyna með aðstoð þess að koma þessu í fram-
kvæmd. Maður kemst ekki að með sín áhugamál. Þar
eru það 2—3 menn sem. rífast, um stjórnmál allan
fundartímann, en aðrir verða að hlusta á, hvort sem
þeim líkar betur eða ver. Þannig hefir starfsemi fé-
lagsins verið á, undanförnum árum, og hefi ég ekki
getað komið auga á, að þetta væri nokkuð að breyt,-
ast, þó sumir vilji halda því fram, og benda á það,
því til sönnunar, að nú séu sjálfstæðismenn með þeim
rauðu í stjórn félagsins. Mér finnsit það engin ,sönn-
un fyrir því, að það ,sé aó skapast heilbrigðara félags-
líf, þó að menn sem kalla sig sjálfstæðismenn eða
eitíhvað annað, lúti vilja þeirra í félaginu.
Það hlógu sumir, þegar þeir heyrðu a,ð nokkrir nem-
endur hefðu tekið sig saman um að stofnai nýtt fé-
lag. En það var ekki frítt við að brosið stirðnaði á
vörum þeirra, þegar fréttist um hve almenn þátttaka
nemenda var í stofnun félagsins,. Þá sást þaö bezt
hve nemendur eru fráhverfir hinum óþjóðlegu öfl-
um skólans. Stjórn Málfundafélagsins ætlaði að
bregða skjótt við og fá félagið bannað og voru vissir
um, að það væri ekki erfitt, en það fór á annan veg.
Félagið er að öllu leyti lögmætt, talandi tákn þess,
er Koma ,skal. Þeir menn, sem mes,t eru á mótí fé-
laginu, eru þeir menn, sem með sínum gerðum í Mál-
fundafélaginu hafa orðið þess valdandi, að félag þetta
var stofnað. Ef Málfundafélagið hefði stærfað á heil-
brigðum grundvelli, til gagns og gæfu fyrir nemend-
ur, hefðu allir nemendur reynt að hlynna að því, eins
og þeir hefðu getað, og hefði þá mikið áunnist, fyrir
atbeina þess. En það þýðir ekki að tala um það sem
orðið er. Málfundafélagið hefir orðið fyrir þeirri
ógæfu aö lenda í klóm grunnhygginna manna, og spá
margir að það ,sé búið að renna sitt æfiskeið.
Tilgangur Nemendafélags Iðnskólans er að safna,
saman öllum nemendum skólans, sem hafa áhuga
fyrir bættu félagslífi. Félagið starfar sem hagsmuna-
fléag fyrir nemendur og einnig sem fræðslu- og
skemmtifélag. Félagið hefir nú þegar hafið starf-
esmi sína með fullum krafti. Það hefir tryggt sér
húsnæði fyrir skemmtanir sínar, og má taka það