Morgunblaðið - 16.02.2009, Page 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
BJARNI Malmquist Jónsson úr Fjölni, varð í gær
Íslandsmeistari í í sjöþraut karla á meistaramóti Ís-
lands í fjölþrautum sem fram fór í Laugardalshöll-
inni. Björn fékk 4.905 stig, 74 stigum meira en
Bjarki Gíslason, UFA. Þriðja sætið kom í hlut Guð-
jón Kristins Ólafssonar, Breiðabliki. Hann hlaut
4.232 stig.
Hart var barist um sigurinn og fyrir síðustu
greinina, 1000 metra hlaupið, munaði aðeins 37 stig-
um á Bjarna og Bjarka Gíslasyni, Félagarnir fylgd-
ust að framan af en undir lokin tók Bjarni mikinn
sprett og sigraði nokkuð örugglega í hlaupinu og í
sjöþrautinni.
Aðeins tvær luku keppni í kvennaflokki
Aðeins tvær konur frá Selfossi luku keppni í
fimmtarþraut kvenna. Ágústa
Tryggvadóttir, Umf. Selfoss,
varð sterkari af þessum tveimur,
fékk 3.809 stig. Önnur varð Fjóla
Signý Hannesdóttir með 3.152
stig.
Fremsta fjölþrautarkona
landsins, Helga Margrét Þor-
steinsdóttir, gat ekki keppt á
mótinu vegna meiðsla.
Í fimmtarþraut í meyjaflokki,
16 ára, vann María Rún Gunn-
laugsdóttir, Ármanni, með 3.403 stig
Í sjöþraut í drengjaflokki, 17-18 ára, vann Elvar
Örn Sigurðsson, UFA. Ingi Rúnar Kristinsson,
Breiðabliki, vann í flokki 16 ára og yngri.
Bjarni vann eftir harða keppni
Ágústa
Tryggvadóttir
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Sigur Stjörnunnar var eiginlega aldrei
í hættu. Það var skarð fyrir skildi í liði
Hauka því Ramune Pekarskyte var í
leikbanni. Fjarvera hennar veikti
Hauka-liðið verulega og það var eins
og flestir leikmanna liðsins sem eftir
voru hefðu aldrei almennilega trú á að
þeir gætu unnið leikinn.
Stjarnan hafði töglin og hagldirnar
nær allan fyrri hálfleikinn. Vörnin var
sterk og hélt máttlitlum sókn-
armönnum Hauka á mottunni. Sókn-
arleikur Stjörnunnar var e.t.v. ekki
sannfærandi þar sem Haukar náðu að
leika góða vörn lengst af fyrri hálf-
leiks. Leikmenn Hauka skoruðu þrjú
síðustu mörk fyrri hálfleik og minnk-
uðu muninn í 11:8. Þar með vaknaði
von um jafnari síðari hálfleik. Af því
varð ekki. Stjarnan hélt Haukum í
hæfilegri fjarlægð. Ekki bætti úr skák
að á fyrstu sex mínútum síðari hálfleik
gerðust þau firn að Hönnu G. Stef-
ánsdóttur brást bogalistin í þremur
vítaköstum með stuttu millibili. Þar
með fjaraði von Hauka út og Stjarnan
sigldi yfir og náði mest tíu marka for-
skoti, 28:18. Á síðustu tíu mínútum
leiksins losnaði aðeins upp á leiknum
þegar Atli þjálfari Stjörnunnar tók að
skipta út sínum sterkustu leik-
mönnum fyrir þá sem sjaldnar standa
í sviðsljósinu.
Síðustu vikur verið mikilvægar
„Þetta var ein liðsheild hjá okkur að
þessu sinni,“ sagði Atli glaðbeittur í
leikslok. „Meðalaldur Stjörnuliðsins
er rúmlega 20 ár. Átta leikmenn sem
eru í liðinu voru ekki með í fyrra og
því ljóst Stjarnan hefur gengið í gegn-
um miklar breytingar. Síðustu vikur
hafa þjappað liðinu vel saman og skil-
að sér í frábærum árangri,“ sagði Atli
og viðurkenndi að það munaði vissu-
lega miklu fyrir Hauka að hafa ekki
Pekarskyte í liði sínu. „Það er alveg
ljóst að um allt annan leik hefði verið
að ræða hefði Pekarskyte verið með.“
Díana ómyrk í máli
Díana Guðjónsdóttir var ómyrk í
máli í leikslok vegna rauða spjaldsins
sem Pekarskyte fékk í viðureign
Hauka og Stjörnunnar viku áður sem
gerði að verkum að hún var í leikbanni
í undanúrslitaleiknum.
„Hún er besti leikmaður deild-
arinnar og auðvitað munar okkur
verulega um hana. Það eru mikil von-
brigði fólgin í því að tveir dómarar geti
haft jafn mikil áhrif á leikinn. Það að
geta gefið Pekarskyte rautt spjald í
leiknum fyrir viku síðan hafði mikil
áhrif á þennan leik og liðið mitt. Síðan
kom aganefnd saman og sagðist ekk-
ert geta gert í málinu og ekki mega
breyta neinu. Við leggjum á okkur
mikla vinnu allan vetur og síðan er
hægt að slá það út af borðinu með af-
drifaríkri dómgæslu. Í næsta leik á
eftir okkar þá mættu þessir sömu
dómarar á annan leik og veifuðu rauða
spjaldinu fjórum sinnum. Ég veit á
stundum ekki hvað er í gangi,“ sagði
Díana þung á brún.
„Um þennan leik er það að segja að
það sem við lögðum upp með heppn-
aðist ekki. Leikmenn virtust hræddir
en Nína Kristín tók loks af skarið og
lék afar vel. Varnarleikurinn var í lagi
hjá okkur í 35 til 40 mínútur. Síðan
misstum við of oft einbeitinguna. Síð-
ustu tíu mínúturnar voru síðan í lagi
og þá tókst að gera það sem lagt var
fyrir. En þá var það of seint,“ sagði
Díana Guðjónsdóttir, þjálfari Hauka.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gegnumbrot Þorgerður Anna Atladóttir reyndir að smeygja sér á milli Hörpu Melsted og Esterar Óskarsdóttur,
„NÚ var vörnin frábær og markvarslan
hjá Florentinu [Stanciu] kom með. Um
leið fengum við mörk úr hraðaupp-
hlaupum. Það var gaman að sjá hvernig
liðið allt hrökk í gang. Fyrir vikið var
sigurinn mjög sannfærandi,“ sagði Atli
Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir
að lið hans vann Hauka í undan-
úrslitum bikarkeppninnar í handknatt-
leik kvenna, 30:24, á laugardaginn.
Vonin var ekki fyrir
hendi hjá Haukum
Án Pekarskyte voru Haukar engin hindrun fyrir Stjörnuna
„VIÐ lékum vel í 50 til 55 mínútur og töpuðum of
stórt miðað við hvernig við lékum lengst af,“ sagði
Aron Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka
í handknattleik karla eftir að lið hans tapaði með
sjö marka mun, 38:31, fyrir þýska 1. deildarliðinu
Nordhorn í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslit-
um Evrópukeppni bikarhafa í gær. Haukar töpuðu
einnig fyrri viðureigninni og töpuðu þar með sam-
tals með 20 marka mun, 72:52. Báðir leikirnir fóru
fram ytra.
Haukar voru yfir í hálfleik, 18:15. Á fimmtu mín-
útu síðari hálfleiks urðu Haukar fyrir áfalli þegar
leikstjórnanda þeirra, Andra Stefan, var vísað af
leikvelli með rautt spjald. „Það var rangur dómur
því það átti að dæma ruðning á leikmann Nord-
horn,“ sagði Aron.
Alltof stórt tap hjá H
Fyrir leik Hauka og Stjörnunnarí undanúrslitum kvenna í hand-
knattleik á laugardaginn risu áhorf-
endur úr sætum og höfð var stutt
þögn til þess að minnast rúmenska
handknattleiksmannsins Marian
Cozma sem lék á Ásvöllum með
Veszprém í haust í meistaradeild
Evrópu. Cozma var stunginn til
bana á veitingastað í Ungverjalandi
um síðustu helgi.
HarpaMels-ted dró
fram handknatt-
leiksskóna á nýj-
an leik og lék með
Haukum gegn
Stjörnunni í und-
anúrslitum bik-
arkeppninnar.
Gylfi Gylfason skoraði fimmmörk og Ingimundur Ingi-
mundarson eitt fyrir GWD Minden
þegar liðið vann Balingen, 32:30, í
þýsku 1. deildinni í handknattleik í
gær. GWD Minden er komið upp í
12. sæti deildarinnar.
Róbert Gunnarsson skoraði fjög-ur mörk fyrir Gummersbach
þegar liðið lagði Magdeburg í fyrri
viðureign sinni í EHF-keppninni í
handknattleik, 26:24, á heimavelli.
Þá tapaði FCK, lið Arnórs Atla-sonar, fyrir rússnesku meist-
urunum Medvedi, 37:33, á heima-
velli. Arnór skoraði fimm mörk í
leiknum. Lið FCK var yfir í hálfleik,
19:18, og hafði forystu lengi vel en á
lokakafla leiksins hrundi leikur þess
og Rússarnir undir stjórn hins gam-
alreynda þjálfara, Vladimir Max-
imov, sigldu framúr og fögnuðu
tveimur stigum á útivelli.
Logi Geirssonskoraði eitt
mark en Vignir
Svavarsson
komst ekki á blað
þegar lið þeirra,
Lemgo, tapaði
fyrir danska lið-
inu Bjerringbro/
Silkeborg í fyrri
viðureign liðanna í 16-liða úrslitum
EHF-keppninnar í handknattleik í
Danmörku á laugardaginn.
Jaliesky Garcia skorað tvö mörkfyrir Göppingen þegar liðið
vann stórsigur á Stralsunder, 40:26,
á útivelli í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik. Þá vann Grosswallstadt
öruggan sigur á Dormagen, 35:24, í
sömu deild. Einar Hólmgeirsson er
meiddur í baki og lék ekki með
Grosswallstadt að þessu sinni.
Handknattleiksmaðurinn GísliKristjánsson hefur framlengt
samning sinn við danska úrvals-
deildarliðið Nordsjælland um eitt ár
og leikur því með liðinu á næsta
vetri. Hann er nú að leika sitt sjötta
keppnistímabil í dönsku úrvalsdeild-
inni en einnig hefur hann m.a. verið í
herbúðum FCK í Kaupmannahöfn
og Fredericia HK. Gísli gekk til liðs
við Nordsjælland á síðasta sumri.
Holger Glandorf, landsliðsmaðurÞjóðverja, lék sinn síðasta leik
með þýska handknattleiksliðinu
Nordhorn í gær þegar liðið lék við
Hauka. Glandorf hefur skrifað undir
samning við Lemgo. Fjárhagur
Nordhorn er í rúst og var Glandorf
eins og öðrum leikmönnum frjálst að
yfir gefa það. Glandorf var kvaddur
með virktum á heimavelli sínum í
gær en hann hefur aldrei leikið með
öðru félagi.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
ÓLAFUR Stefánsson og samherjar
hans í Ciudad Real halda áfram sig-
urgöngu sinni í meistaradeild Evr-
ópu en þeir tóku upp þráðinn í
keppninni á nýjan á laugardaginn.
Þá heimsótti Ciudad Real liðsmenn
Barcelona og vann þriggja marka
sigur, 31:28. Staðan í hálfleik var
jöfn, 13:13.
Ólafur skoraði 5 mörk í leiknum,
þar af tvö úr vítakasti. Shergei Ru-
tenka var markhæstur hjá Ciudad
Real með 9 mörk.
Ciudad Real hefur fullt hús stiga
eftir þrjá leiki í 4. riðli meist-
aradeildar. Barcelona er hins vegar
án stiga og fara möguleikar liðsins á
að komast í 8-liða úrslita mjög
þverrandi eftir þetta tap.
„Ég var bara ekkert góður“
Alfreð Gíslason og lærisveinar hjá
þýska meistaraliðinu Kiel eru einnig
í góðum málum í 4. riðli eftir 12
marka sigur á GOG í Óðinsvéum í
gær, 43:31. Kiel er eins og Ciudad
Real með fullt hús stiga í riðlinum.
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði
þrjú marka GOG en Snorri Steinn
Guðjónsson komst ekki á blað. „Ég
var með en var bara ekkert góður,“
sagði Snorri Steinn í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Kielar-liðið er alveg frábært og
ég held að það þurfi ekki merkilega
spámenn til þess að halda því fram
að Kiel og Ciudad Real leiki til úr-
slita í meistaradeildinni í vor,“ sagði
Snorri sem segist vera hægt og bít-
andi að komast í betri æfingu. Ég
vildi gjarnan að framfarirnar væru
meiri og hraðari en um það þýðir
ekkert að tala. Maður verður að vera
þolinmóður,“ sagði Snorri Steinn.
Það var rétt í upphafi leiks sem
GOG hélt í við leikmenn Kiel. „Þeir
skiptu síðan um gír, lokuðu í vörn-
inni fyrir þær holur sem við fundum
og mjötluðu hægt og bítandi inn
mörkum,“ sagði Snorri Steinn.
Góður sigur hjá Löwen
Guðjón Valur Sigurðsson og sam-
herjar hans hjá þýska handknatt-
leiksliðinu unnu mikilvægan útisigur
þegar þeir lögðu Celje Pivovarna
Lasko frá Slóveníu, 34:28, á útivelli í
2. riðli meistaradeildar Evrópu. Lö-
wen var tveimur mörkum yfir í hálf-
leik, 16:14. Guðjón Valur hefur ekki
jafnað sig til fulls af meiðslum og lék
ekki mikið með samherjum sínum en
náði þó að skora eitt mark.
Löwen er í öðru sæti í sínum riðli
með 4 stig að loknum þremur leikj-
um. Franska liðið Chambery er í
efsta sæti með 6 stig eftir óvæntan
sigur á RK Zagreb á útivelli, 32:30.
Sigur hjá
Ólafi og
félögum
Kiel vann stór-
sigur í Óðinsvéum