Morgunblaðið - 16.02.2009, Side 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
Austurrík-ismaðurinn
Manfred Pranger
varð í gær heims-
meistari í svigi
karla á heims-
meistaramótinu í
Val d’Isere í
Frakklandi. Sig-
ur Pranger var
nokkuð öruggur þar sem hann hafði
einnig fyrstur eftir fyrri ferðina.
Hann var 31/100 úr sekúndu á undan
Frakkanum Julien Lizeroux sem
varð annar. Þriðja sætið kom í hlut
Michael Janyk frá Kanada. Hann
varð 1,53 sekúndum á eftir Pranger.
Maria Riesch tryggði sér heims-meistaratitilinn í svigi kvenna
með ótrúlegum hætti. Manuela
Mölgg frá Ítalíu virtist eiga sigurinn
vísan en hún var með besta tímann
eftir fyrri ferðina. Mölgg gerði mis-
tök á lokakaflanum í síðari ferðinni
og féll úr keppni rétt áður en hún
komst í mark. Þjóðverjinn Riesch
fór á kostum í síðari ferðinni og
tryggði sér sigur á tímanum 1.51,80
mín. Sarka Zahrobska frá Tékk-
landi varð önnur á 1.52,57 mín. Lind-
sey Vonn frá Bandaríkjunum var í
öðru sæti eftir fyrri ferðina en hún
náði ekki að klára síðari ferðina.
Tanja Poutiainen frá Finnlandi náði
sér á strik í síðari ferðinni og tryggði
sér bronsið.
Jón Þorbjörn Jóhannsson skoraðisex mörk og var markahæstur
hjá Sønderjyske þegar liðið vann
stórsigur á Ikast, 31:19, í næst efstu
deild danska handknattleiksins í
gær. Jón Þorbjörn skoraði sex mörk
en komst hjá því að vera rekinn af
leikvelli þrátt fyrir að vera lyk-
ilmaður liðsins í vörninni. Sønder-
jyske er eftir sem áður í 5. sæti
deildarinnar, 10 stigum á eftir Lem-
vig sem trónir á toppnum.
Rut Jóns-dóttir og
samherjar henn-
ar í Team Tvis
Holstebro halda
efsta sæti næst
efstu deildar
kvenna í hand-
knattleik í Dan-
mörku. Um
helgina vann liðið
öruggan sigur á BK Ydun, 21:14.
Rut skoraði tvö mörk í leiknum.
Björgvin Páll Gústavsson, lands-liðsmarkvörður í handknatt-
leik, og samherjar hans hjá þýska
liðinu Bittenfeld unnu Leichlinger
TV, 36:27, í suðurhluta 2. deildar.
Björgvin stóð að vanda í marki Bit-
tenfeld og átti góðan leik. Þetta var
annar sigur Bittenfeld í röð og hefur
liðið nú lyft sér upp af mesta hættu-
svæðinu í neðri hluta deildarinnar.
Einar LogiFriðjónsson
skoraði tvö mörk
fyrir IFK Skövde
þegar liðið vann
IFK Tumba,
28:24, í sænsku
úrvalsdeildinni í
handknattleik.
Skövde er í 8. sæti
með 22 stig eftir 21 leik.
Kristján Andrésson og lærisvein-ar hans í Guif unnu stórsigur á
LIF Lindesberg, 37:22, í sænsku úr-
valsdeildinni í handknattleik í gær.
Haukur, bróðir Kristjáns, skoraði
þrjú af mörkum Guif sem er komið
up í annað sæti deildarinnar með 29
stig eftir 21 leik. Hreiðar Guð-
mundsson og félagar í Sävehof eru í
efsta sæti með 33 stig en eiga leik
inni á Guif. Sävehof sækir leikmenn
Redbergslid heim í kvöld í Lise-
bergshallen í Stokkhólmi.
Fólk sport@mbl.is
SVISS vann til flestra verðlauna á
heimsmeistaramótinu í alpagreinum
sem lauk í gær í Val d’Isere í Frakk-
landi. Ungir keppendur fóru fyrir liði
Sviss, hinn 22 ára gamli Carlo Janka
sigraði í stórsviginu og hann varð
þriðji í bruninu. Og hin 17 ára gamla
Lara Gut lét vita af sér með silf-
urverðlaunum í alpatvíkeppni og
bruni. Svisslendingar fengu alls 6
verðlaun á HM og höfðu betur í sam-
keppninni við grannþjóðina Aust-
urríki sem fékk 5 verðlaun á HM að
þessu sinni.
Lindsey Vonn frá Bandaríkjunum
var skærasta stjarnan á HM að þessu
sinni. Hún hafði mikla yfirburði í
bruninu og risasviginu en Vonn sagði
fyrir mótið að hún ætlaði sér að landa
5 gullverðlaunum á mótinu og til þess
þurfti hún að vinna allar keppn-
isgreinarnar í kvennaflokknum.
Vonn var hársbreidd frá sigri í
alpatvíkeppni þar sem keppt er í sam-
anlögðum árangri í bruni og svigi. Þar
gerði hún mistök í sviginu og varð að
sætta sig við silfrið. Hún gerði einnig
afdrifarík mistök þegar hún skar sig
illa á þumalfingri á kampavínsflösku
þegar hún fagnaði gullverðlaunum í
bruninu með liðsfélögum sínum sl.
mánudag. Vonn fór í aðgerð í kjölfarið
og missti af risaviginu en hún var búin
að jafna sig fyrir aðalkeppnina í svig-
inu sem fram fór á laugardag. Vonn
var í efsta sæti eftir fyrri ferðina í
sviginu en hún féll úr keppni í síðari
ferðinni.
Heimsmeistarar
John Kukera frá Kanada sigraði í
bruni karla. Didier Cuche frá Sviss
fagnaði heimsmeistaratitlinum í risa-
svigi. Aksel Lund Svindal frá Noregi
fékk gull í alpatvíkeppni. Cario Danka
frá Sviss var fljótastur í stórsviginu
og í gær sigraði Manfred Pragner frá
Austurríki í svigi.
Linsey Vonn frá Bandaríkjunum
sigraði í bruni og risasvigi kvenna.
Kathrin Zettel frá Austurríki varð
hlutskörpust alpatvíkeppni. Kathrin
Hölzl frá Þýskalandi sigraði í stór-
svigi og landa hennar Maria Riesch
sigraði í svigi kvenna.
seth@mbl.is
Lindsey Vonn stjarnan á HM í Val d’Isere
„Eftir þetta tók að halla undan fæti hjá okkur en
við vorum með leikinn í járnum allt þar til fimm til
tíu mínútur voru eftir. Þar af leiðandi var slæmt að
tapa með svona miklum mun. En okkur vantaði
breiðari leikmannahóp til þess að vinna leikinn,“
sagði Aron ennfremur.
„Ég var ánægður með Sigurberg [Sveinsson],
Kára Kristján [Kristjánsson], Elías [Már Hall-
dórsson] og Andra á meðan hans naut við. Þá var
Freyr [Brynjarsson] finn í fyrri hálfleik eins og
Einar Örn [Jónsson],“ sagði Aron þjálfari.
Þrír leikmenn Hauka gátu ekki tekið þátt í
leiknum vegna meiðsla og veikinda og munaði um
minna, að sögn Arons. Um er að ræða Gunnar
Berg Viktorsson, Gísla Jón Þórisson og Gísla Guð-
mundsson, markvörð. iben@mbl.is
Haukum í Nordhorn
STEFÁN Gíslason verður áfram fyrirliði danska
úrvalsdeildarliðsins í knattspyrnu, Brøndby. Þetta
segir þjálfari liðsins, Kent Nielsen. segir að Stefán
haldi áfram í hlutverki sínu enda hafi hann staðið sig
framúrskarandi vel í því.
„Stefán er mjög góður leiðtogi innan vallar sem
utan. Hann stóð sig afar vel á síðustu leiktíð. Stefán
á gott með að ræða við menn og er góður tengiliður
á milli leikmanna og þjálfara og forráðamanna fé-
lagsins. Það er ekki síður mikilvægt fyrir okkur að
hafa sterkan leiðtoga utan vallar en innan vall-
arins,“ sagði Nielsen í samtali við heimasíðu félags-
ins en TV2 tók efnið upp á fréttasíðu sinni um
helgina.
Stefán kom til Brøndby fyrir tveimur árum og tók
fljótlega við sem fyrirliði. Þegar Tom Køhlert hætti
þjálfun Brøndby í haust var jafn-
vel talið að eftirmaður hans, fyrr-
greindur Nielsen, myndi skipta
um fyrirliða. Nielsen sagði í byrj-
un jafnúar að hann myndi gefa
sér góðan tíma í að kynnast
mannskapnum áður en hann
ákvæði hver yrði fyrirliði. Nú
hefur Nielsen tekið af öll tvímæli
í þeim efnum og Stefán mun
halda sinni stöðu innan liðsins.
Stefán og félagar hafa undanfarna daga verið í
æfingabúðum á Spáni. Í gær vann Brøndby rúm-
enska liðið FC Timisoara, 2:0, í æfingaleik. Stefán
tók þátt í leiknum frá upphafi til enda.
iben@mbl.is
Stefán verður áfram fyrirliði Brøndby
Stefán Gíslason
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Að sögn Guðmundar Jakobssonar,
skíðafrömuðar, sem var með ís-
lenska keppnishópnum í Val d’Isere
þá var 25 stiga frost aðfaranótt
sunnudagsins. Þá brugðu mótshald-
arar á það ráð að bæta ís í keppn-
isbrautina með þeim afleiðingum að
hún var ein íshella. „Það markaði
ekki brautina þegar keppninni lauk,“
sagði Guðmundur.
Brautin reyndi svo á keppendur
að sjaldan eða aldrei hefur orðið
meira um afföll meðal keppenda og í
þessari svigkeppni. Aðeins 36 af 75
keppendum komust klakklaust í
gegnum fyrri ferðina og aðeins 17 af
skíðamönnum skiluðu sér heilu og
höldnu í mark í síðari ferðinni. Sem-
sagt tveir þriðju hlutar keppenda
heltust úr lestinni. Þeirra á meðal
var Stefán Jón Sigurgeirsson. Hann
féll snemma úr leik í fyrri ferðinni.
Stefán Jón stóð sig afar vel í und-
ankeppninni á laugardag og var einn
25 keppenda í henni sem komust í
aðalkeppnina í gær.
Björgvin segist ekki hafa verið
nógu sáttur við fyrri ferðina hjá sér
þótt hann hafi náð að komast í hóp
30 efstu sem náðu að vinna sér inn
keppnisrétt í síðari ferðinni. Björg-
vin var því staðráðinn í að gera bet-
ur í seinni ferðinni en lánaðist það
ekki.
„Aðstæðurnar á þessu móti voru
mjög krefjandi og þetta er örugg-
lega erfiðasta mót sem ég hef tekið
þátt í á ferlinum,“ sagði Björgvin
sem tókst heldur ekki að ljúka
keppni í stórsvigi fyrr á heimsmeist-
aramótinu.
„Nú taka við æfingar og síðan
þátttaka í Evrópubikarmótum á
næstunni. Ég er síðan skráður til
leiks á heimsbikarmóti í byrun mars.
Það er því áfram í mörg horn að
líta,“ segir Bjrögvin sem óumdeil-
anlega er fremsti skíðamaður Ís-
lendinga um þessar mundir.
Ánægður með Stefán Jón
Guðmundur Jakobsson sagðist
vera ánægður með framgöngu Stef-
áns Jóns á mótinu. „Hann stóð sig
vel þótt hann hafi ekki náð að ljúka
keppni í sviginu. Heilt yfir má segja
að árangur Stefáns Jóns hafi verið
framar vonum. Árangur íslensku
keppendanna fjögurra var hins veg-
ar ekki alveg eins góður við von-
uðumst eftir fyrirfram,“ sagði Guð-
mundur.
Stefán Jón verður áfram ytra við
æfingar því hann reiknar með að
taka þátt í Evrópubikarmótum og
síðan er heimsmeistaramót unglinga
framundan hjá honum Garmisch
Partenkirchen í Þýskalandi í næsta
mánuði.
Gísli Rafn slasaðist
Það setti skugga á þátttöku Ís-
lendinga á heimsmeistaramótinu að
Gísli Rafn Guðmundsson slasaðist
illa á hægra hné þegar hann féll í
undankeppni svigsins á laugardag.
„Krossbandið slitnaði, litbönd eru
rifin og liðþófinn er illa farinn,“
sagði Guðmundur Jakobsson í sam-
tali við Morgunblaðið upp úr hádegi
í gær hvar hann var á leið í bíl með
Gísla í aðgerð hjá austurrískum
lækni. „Ég vonast til að hann komist
að strax í fyrramálið [mánudags-
morgun]. Takist það ekki verður
hann að bíða í sex vikur eftir að
komast í aðgerð til þess að fá bót
meina sinn,“ sagði Guðmundur Jak-
obsson.
„Mesta þrekraun ferilsins“
Björgvin féll skammt frá markinu í Val d’Isere Meiðsli Gísla Rafns eru alvarleg
Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson
Í hópi þeirra bestu Björgvin Björgvinsson var í hópi þeirra 30 sem tóku þátt í úrslitum svigkeppninnar á HM í Frakklandi.
„ÞETTA var erfiðasta braut sem ég hef
tekið þátt í á ferlinum. Þeir keppendur
sem ég hef rætt við segja sömu sögu,“
sagði skíðamaðurinn Björgvin Björg-
vinsson í samtali við Morgunblaðið í
gær, eftir að hann féll úr leik í síðari
umferð svigkeppni heimsmeist-
aramótsins í Val d’Isere í Frakklandi.
Björgvin var í 27. sæti eftir fyrri ferð og
en var óheppinn og krækti í hlið þegar
skammt var eftir í markið.