Morgunblaðið - 16.02.2009, Síða 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Ég hef lengi látið mig dreyma um að
fá að lyfta bikarnum á loft sem fyrirliði.
Alveg frá því ég var smástrákur í Heið-
arskóla í Leirársveitinni,“ sagði fyr-
irliði Stjörnunnar, Fannar Helgason
frá Ósi. Fannar var gríðarlega sterkur
undir körfunni og tók hann alls 19 frá-
köst og gaf ekkert eftir í varn-
arleiknum. „Ég hef upplifað þetta áður
sem leikmaður ÍR. En þetta er mikið
stærra fyrir mig persónulega. Stjarnan
mætir hér til leiks sem liðið sem enginn
hafði trú á. KR er án vafa með sterk-
asta liðið á landinu en við vissum að það
væri hægt að leggja þá að velli ef sam-
vinnan og baráttan væri til staðar. Það
eru allir með það á hreinu hvað þeir
eiga að gera í þessu liði og það eru allir
sáttir,“ sagði Fannar.
„Það átti að leggja
deildina niður“
Frá því að Teitur Örlygsson tók við
þjálfun Stjörnunnar í lok nóvember á
s.l. ári hefur gengi liðsins verið ótrú-
legt. Allt hefur breyst í leik liðsins og
hlutverk hvers leikmanns er skilgreint
með nákvæmum hætti. Bandaríkja-
maðurinn Justin Shouse stjórnar leik
liðsins eins og herforingi. Jovan Zdra-
vevski er lykilmaður í sókn sem vörn og
fyrirliðinn Fannar Helgason rífur niður
fráköstin og leikur vörnina af krafti.
Kjartan Kjartansson er uppalinn í liði
Stjörnunnar og hann gerði fína hluti í
lokaleikhlutanum þegar mest á reyndi.
Alls skoraði Kjartan 11 stig og hann
var alveg með það á hreinu að Teitur
Örlygsson væri besti þjálfarinn á land-
inu.„Ekki spurning. Teitur hefur gjör-
samlega snúið þessu liði á hvolf. Við
gátum ekki neitt fyrir áramót og það er
alveg magnað að fagna þessum tíma-
mótum hjá mínu félagi. Það er ekki
langt síðan að menn voru að velta því
fyrir sér að leggja þessa körfuknatt-
leiksdeild einfaldlega niður þegar við
vorum í 1. deildinni. Ég er gríðarlega
stoltur af því að vera hluti af þessu
magnaða liði,“ sagði Kjartan.
KR-ingar töpuðu sínum fyrsta leik
tímabilinu gegn Grindavík s.l. mánu-
dag. Fram að þeim leik hafði KR unn
16 deildarleiki, og 8 leiki í báðum bik
arkeppnum KKÍ. KR hitti fyrir lið í
gær sem barðist eins og ljón frá upp-
hafi og margir lykilmanna KR léku
langt undir getu í vörn sem sókn. Jón
Arnór Stefánsson hitti vel í upphafi
leiks og skoraði hann alls 29 stig. Un
lok leiksins var eins og að KR-ingar
væru að bíða eftir því að Jón Arnór
myndi taka liðið á herðar sér og kom
því inn í leikinn á ný. Í stað þess að n
alla þá krafta sem búa í liðinu í sókn-
arleiknum. Jason Dourriseau vill ef-
laust gleyma þessum leik sem fyrst e
Bandaríkjamaðurinn hitti aðeins úr
alls 9 skotum sínum utan af velli. Og
voru þau flest tekin af stuttu færi un
körfunni.
Morgunblaðið/ha
Bikarmeistarar Leikmenn Stjörnunnar fögnuðu vel og innilega í leikslok eftir 78:76 sigur liðsins gegn KR í úrslitum Subwaybikarsins. Þetta var í fyrsta sinn sem Stjarnan leikur til úrslita um bikarinn.
Stjarnan skein skært í Höllinni
Stjarnan bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins Fáir áttu von á 78:76 sigri Garðabæjarliðsins gegn
sterku liði KR Barátta, dugnaður og þor einkenndi Stjörnuliðið KR brotnaði þegar mest á reyndi
STJARNAN úr Garðabæ skrifaði nafn
sitt í sögu körfuknattleiksíþróttarinnar
á Íslandi í gær með ótrúlegum 78:76-
sigri gegn KR í úrslitum Subwaybik-
arkeppni KKÍ. Fáir áttu von á því að
Stjörnunni tækist að leggja hið geysi-
sterka KR-lið að velli en barátta, dugn-
aður og þor Stjörnumanna var einfald-
lega of stór biti fyrir KR að þessu sinni.
KR – Stjarnan 76:78
Laugardalshöllin, úrslitaleikur bikarkeppni
karla, Subway-bikarinn, sunnudaginn 15.
febrúar 2009.
Gangur leiksins: 2:3, 13:5, 19:16, 21:23, 24:25,
28:30, 31:38, 35:42, 42:47, 48:59, 56:64, 65:69,
71:75, 76:78.
Stig KR: Jón Arnór Stefánsson 29, Jakob
Örn Sigurðarson 15, Darri Hilmarsson 9,
Jason Dourriseau 6, Brynjar Björnsson 5,
Fannar Ólafsson 5, Helgi Magnússon 5,
Pálmi Sigurgeirsson 2,
Fráköst: 17 í vörn – 22 í sókn.
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 23,
Justin Shouse 22, Kjartan Kjartansson 11,
Fannar Helgason 11, Guðjón Lárusson 9,
Hjörleifur Sumarliðason 2.
Fráköst: 36 í vörn – 13 í sókn.
Villur: KR 21 – Stjarnan 22.
Dómarar: Jón Guðmundsson og Sigmundur
Már Herbertsson, góðir.
Áhorfendur: Um 2000.
„VONBRIGÐIN eru að sjálf-
sögðu gríðarleg og ég get eig-
inlega ekki lýst því hvernig
mér líður,“ sagði Jakob Örn
Sigurðarson leikmaður KR
eftir tapið gegn Stjörnunni.
„Það klikkaði eiginlega allt
hjá okkur. Skotin fóru ekki of-
aní, vörnin var léleg í upphafi
leiksins og við náðum aldrei
okkar takti. „Stóra skotið“
kom aldrei þar sem við náðum
að jafna eða komast yfir. Það getur vel verið að
okkar leikur hafi verið öðruvísi en áður en samt
vorum við að nota sömu kerfin og áður. Stjarnan
er með hörkulið. Við vanmátum þá ekki,“ sagði
Jakob. seth@mbl.is
„Það klikkaði
eiginlega allt“
Jakob Örn
Sigurðarson
„ÞEIR eru með hörkulið og þeir náðu fram
styrkleikum sínum gegn okkur. Þetta er stemn-
ingslið og við gáfum þeim tækifæri til þess að
leika eins og þeir vildu. Við fengum einfaldlega
rennblauta tusku beint í andlitið á okkur og
þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur og stuðn-
ingsmenn KR,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson að-
stoðarþjálfari KR eftir tapið. Hann var sammála
því að einbeitingin í liði KR hefði oft verið meiri.
„Við klikkuðum á vítaskotum og auðveldum
skotum undir körfunni. Það segir alla söguna
um hvernig hugarfarið var í dag. Fráköstin
voru ekki til staðar og boltaflæðið var ekki gott
í sóknarleiknum. Byrjunin lofaði góðu en eftir
fyrsta leikhluta hittum við mjög illa. Vanmat
var ekki til staðar. Við erum beygðir en við
brotnum ekki við þetta mótlæti.“ seth@mbl.is
„Beygðir en við
brotnum ekki“
„ÞETTA er fyrsti titillinn á mínum ferli og mér
líður stórkostlega. Stjarnan er frábært félag, liðs-
heildin er mikil, og þessi úrslit eru ótrúleg. Það
var enginn sem hafði trú á þessu nema við,“ sagði
Jovan Zdravevski leikmaður Stjörnunnar en
hann hafði sérstaklega gaman af því að sigra KR
þar sem hann lék um tíma á síðustu leiktíð.
„Já, ég viðurkenni að það var meiri áskorun
fyrir mig að þetta var KR sem var að leika gegn
okkur. Þeir höfðu ekki trú á mér sem leikmanni
og ég vildi sanna það að þeir hefðu rangt fyrir
sér,“ sagði Jovan en hann skoraði 25 stig, tók 11
fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Jovan er íslensk-
ur ríkisborgari en er fæddur í Makedóníu. Hann
lék með Skallagrími í Borgarnesi í þrjú ár áður
en hann fór í KR haustið 2007 en hann skipti yfir í
Stjörnuna um áramótin 2008. seth@mbl.is
„Stjarnan er
frábært félag“
JUSTIN Shouse leikmaður
Stjörnunnar var einnig í sig-
urliðinu í bikarúrslitaleiknum
fyrir ári síðan sem leikmaður
Snæfells. Justin stjórnaði leik
Stjörnunnar af festu og hann
var ekki vafa um að fáir
höfðu trú á því að Stjarnan
myndi sigra KR.
„Ég held að það hafi nú
ekki verið margir sem spáðu
okkur sigri. Það sem skipti
mestu máli var að við höfðum trú á okkur. Frá
því í desember höfum við unnið nánast alla lei
Við erum „heitasta liðið“ á Íslandi og við vildu
sýna það í þessum leik að allt er mögulegt í
íþróttum,“ sagði Justin Shouse. seth@mbl.is
„Ekki margir sem
höfðu trú á okkur
Justin
Shouse