Morgunblaðið - 16.02.2009, Side 5

Morgunblaðið - 16.02.2009, Side 5
Íþróttir 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009 „ÞAÐ var sigurviljinn sem skilaði okkur þess- um titli. Við vildum þetta meira en Keflavík,“ sagði Sigrún Sjöfn Ámundadóttir við Morg- unblaðið eftir að hafa hampað bikarmeist- aratitlinum í körfuknattleik með KR. Sigrún átti góðan leik með 18 stig, 11 fráköst og 4 stoðsendingar. „Það kom mér á óvart hversu vel gekk í byrjun. Við vissum samt vel að leikurinn myndi aldrei vinnast í fyrsta leik- hluta, þannig urðum að halda einbeitingu og spila áfram eins og við höfðum verið að gera. Ég fékk auðvitað síðan smá gæsahúð þegar Keflavík jafnaði, en ég vissi bara að við ættum nóg eftir og ég hélt bara áfram mínu striki.“ KR beið lægri hlut fyrir Keflavík í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð en í þessu einvígi hafði KR betur. „Núna héldum við haus og kláruðum okkar með stæl. Við er- um komin núna með nýtt stórveldi í kvenna körfuboltanum,“ sagði Sigrún Sjöfn Ámunda- dóttir. thorkell@mbl.is „Nýtt stórveldi í kvennakörfunni“ „VIÐ vissum að við þyrftum að hafa einbeit- inguna í botni allan leiktímann og höfðum búið okkur vel undir það. Ég var sjálf búin að hugsa alla vikuna hvernig ég ætlaði að koma til leiks og mér tókst að vera eins stemmd og ég ætl- aði. Það hefur ekkert komist annað að en þessi leikur síðustu daga og ég hef sofnað útfrá því á kvöldin að hugsa um Keflavík og þennan úr- slitaleik,“ sagði Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 13 stig, hirti 11 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í liði KR.„Við tókum miklu fleiri fundi fyrir þennan leik. Við lögðumst alveg yfir leik Keflavíkur og gerðum allt sem í okkar valdi stóð til þess að mæta í þennan leik þannig að bikarinn færi í Vesturbæ Reykjavíkur Það var samt komið að okkur að taka titil núna. Við töpuðum fyrir Keflavík í úrslitum Íslands- mótsins í fyrra og þá sáum við hvernig var að vera í þeirra sporum. Þetta var eitthvað sem við vildum. Það tókst og tilfinningin er hreint út sagt æðisleg.“ thorkell@mbl.is „Það var komið að okkur að taka titil“ „VIÐ mættum í þennan leik í dag og héldum að mótherjar okkar væru miklu lélegri en þeir eru. Við vitum vel hvað KR getur, þannig að þetta var bara vanmat. Við unnum þetta KR lið fyrr á leiktíðinni með 28 stigum, en töpuðum svo næsta leik gegn félaginu með 4 stigum. Þessi tapaðist með 16 stigum, þannig við töpum lík- lega næsta leik með 30 stiga mun ef leikmenn ætla að haga sér eins og fífl líkt og raun bar vitni í dag. Það fer auðvitað orka í að vinna upp mun og jafna leikinn eins og við gerðum í þriðja leikhluta. Hins vegar fannst mér mínir leik- menn ekki vera þreyttir eftir leikinn. Þegar við jöfnuðum voru við ekkert heldur að spila betur, heldur hafði KR bara slakað á. Þetta er bara spurning um hugarfar,“ sagði Jón Halldór Eð- valdsson þjálfari Keflavíkur, sem fannst lið sitt spila langt undir getu. „Við eigum að vera miklu betri en við sýnd- um í dag. Þetta var grátleg frammistaða hjá okkur.“ thorkell@mbl.is „Frammistaðan var grátleg“ „ÉG held að spennustigið hafi farið með okkur,“ sagði Pálína Gunnlaugs- dóttir leikmaður Keflavík- ur eftir tap liðsins fyrir KR í úrslitum Subway bik- arkeppninnar í gær. „Við höfðum undirbúið okkur mjög vel og ég held að okkar mistök liggi alls ekki í því. Við komum mjög vel stemmdar inn í seinni hálfleikinn og náðum að jafna metin. Mér fannst við samt ekki þurfa að hafa mikið fyrir því vegna þess að þá slakaði KR ein- faldlega bara á. Tapið liggur að einhverju leyti í því að okkar lykilleikmenn komust aldrei almennilega í takt við leikinn, þar á meðal ég. Það var eiginlega allt á hálfum hraða hjá okkur. Þegar svoleiðis er, þá tapar maður bara,“ sagði Pálína. thorkell@mbl.is „Komumst aldrei í takt við leikinn“ Pálína Gunnlaugsdóttir Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is KR liðið hafði undirtökin allan leiktímann og hafði forystuna í leiknum næstum frá upphafi. Eina skiptið sem Keflavík komst yfir var í stöðunni 3:0 og svo ekki söguna meir. KR-ingar virkuðu ákaflega einbeittir og spiluðu sem eitt lið og dreifðu álaginu vel á milli sín. Helga Einarsdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Guð- rún Gróa Þorsteinsdóttir og fyr- irliðinn Hildur Sigurðardóttir spiluðu allar eins og herforingjar, alveg á tánum allan leikinn. Sem merki um það voru þær þrjár síð- ast nefndu allar með tveggja stafa tölu bæði hvað skoruð stig og tekin fráköst varðar, en Helga var einnig nálægt því. Í upphafi síðari hálfleiks missti lið KR þó dampinn og Keflavík komst inn í leikinn og náði meira að segja að jafna metin. Var leik- urinn í járnum þar til um 6 mín- útur voru eftir af leiknum þegar KR-ingar spýttu í lófana á nýjan leik og brunuðu fram úr lánlaus- um Keflvíkingum og innbyrtu að lokum glæsilegan 16 stiga sigur. Fyrsti bikarinn í sjö ár Með sigrinum í gær vann KR bikarmeistaratitilinn í fyrsta sinn í sjö ár, en liðið hafði ekki hamp- að bikarnum síðan árið 2002. Raunar er þetta fyrsti stóri titill- inn hjá liðinu síðan árið 2002, því KR hefur heldur ekki hampað Íslandsmeistaratitlinum síðan 2002. Flestir leikmenn KR-liðsins voru því að taka á móti sínum fyrsta stóra titli í meistaraflokki þegar þær veittu bikarnum við- töku í Laugardalshöllinni síðdeg- is í gær. Það voru þó ekki allir leikmenn KR að vinna bikarmeistaratitilinn í búningi félagsins í fyrsta sinn, því systurnar Hildur og Guðrún Arna Sigurðardætur voru í liði KR árið 2002 sem varð bik- armeistari það ár. Hildur er fyr- irliði liðsins og gerði hún 17 stig í leiknum í gær auk þess að taka 11 fráköst og gefa 4 stoðsend- ingar. Systurnar hafa þó ekki verið í herbúðum KR liðsins stanslaust síðan félagið vann bikarinn síðast því Hildur söðlaði um og lék á tímabili í Svíþjóð og svo með Grindavík og Guðrún varð að taka sér hlé í nokkur ár vegna þrálátra og erfiðra meiðsla. KR hefur nú unnið bikarmeist- aratitilinn 10 sinnum í kvenna- flokki. Morgunblaðið/hag Biðin á enda KR-ingar fögnuðu bikarmeistaratitlinum með stæl í Laugardalshöllinni í gær. Liðið hafði ekki unnið titil frá árinu 2002 en KR hafði betur gegn Keflavík í úrslitaleiknum 76:60. Verðskuldað hjá KR-konum  KR hampaði bikarnum í kvennakörfuboltanum eftir að hafa lagt Keflavík 76:60 Tíundi bikar- meistaratitillinn hjá KR  Sjö ára bið KR á enda  Slök byrjun Keflvíkinga varð liðinu að falli EFTIR glæsilega þriggja stiga körfu Guðrúnar Örnu Sigurðardóttur fyrir Keflavík á fyrstu sekúndum bikarúr- slitaleiks Keflavíkur og KR í kvenna- flokki í körfubolta í gær, fór allt í bak- lás hjá Keflvíkingum. Skoraði lið KR þá 20 stig í röð gegn engu stigi Kefla- víkur og gaf tóninn fyrir skemmti- legum og sveiflukenndum úrslitaleik þar sem KR var þó betri aðilininn. Vann KR að lokum 16 stiga sigur, 76:60 og hampaði bikarnum. k á - nið k- - n ndir ma nýta - en 1 af dir ag i n Keflavík – KR 60:76 Laugardalshöllin, úrslitaleikur bikar- keppni kvenna, Subway-bikarinn, sunnu- daginn 15. febrúar 2009. Gangur leiksins: 3:20, 12:20, 17:25, 21:36, 30:40, 32:42, 35:42, 43:48, 48:50, 48:52, 51:54, 54:54, 56:60, 56:72, 57;74, 60:76. Stig Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir 14, Birna Valgarðsdóttir 11, Pálína Gunn- laugsdóttir 11, Marín Rós Karlsdóttir 7, Svava Ósk Stefánsdóttir 7, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 5, Hrönn Þorgrímsdóttir 3, Rannveig Randversdóttir 2. Stig KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 18, Hildur Sigurðardóttir 17, Helga Einars- dóttir 16, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 13, Margrét Kara Sturludóttir 6, Heiðrún Kristmundsdóttir 4, Guðrún Ósk Ámunda- dóttir 2. Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Einar Þór Skarphéðinsson. Áhorfendur: Um 700. á iki. um m r“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.