Morgunblaðið - 16.02.2009, Page 8
8 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
á 32,32 sek. Rannveig setti einnig
meyjamet í 50 m skriðsundi, 29,79.
Þá setti Pálmi Guðlaugsson fimm
Íslandsmet i flokki fatlaðra.
Ólöf Edda Eðvarðsdóttir, ÍRB,
setti meyjamet í 200 m bringusundi,
synti á 3.00,18 mín. Hrafnhildur
Lúthersdóttir var einungis hálfa
sekúndu frá Íslandsmetinu í 100 m
bringusundi. Þá var Eygló Ósk
Gústafsdóttir Ægi hálfa sekúndu frá
telpnametinu í 200 m fjórsundi.
Á laugardagskvöldinu fór fram
sérstök úrslitakeppni i 50 m flug-
sundi með ljósasýningu og tónlist.
600 keppendur frá 25 sundfélögum
tóku þátt í Gullmóti KR í Laug-
ardalshöll um helgina. Keppt var í 84
greinum og fimm aldursflokkum, að
sögn Jóhannesar Benediktssonar
hjá Sunddeild KR. Ragnheiður
Ragnarsdóttir, KR, setti Íslandsmet
í 50 m skriðsundi þegar hún synti á
25,62 sek. Í 100 m skriðsundi var
Ragnheiður hálfa sekúndu frá Ís-
landsmetinu
Rannveig Rögn Leifsdóttir, KR,
bætti meyjametið í 50 m flugsundi
sem hún setti á föstudag í úrslitum á
laugardagskvöldinu þegar hún synti
Ragnheiður Ragnarsdóttir vann
Bryndísi Rún Hansen í úrslitasund-
inu á 28,30 sek., sem er hennar besti
tími. Bryndís synti á 28,48 sek.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson,
ÍRB, vann Magnus Klyberg frá
Danmörku á 25,50 sek.
Ragnheiður varð í 1. sæti í sam-
anlagðri stigakeppni einstaklinga
fyrir þrjú bestu sundin. Hrafnhildur
Lútersdóttir, SH, varð í 2. sæti og
Mladen Tepavcevic SH í 3 sæti.
ÍRB sigraði í stigakeppni félaga,
SH varð í öðru og Helsingör frá
Danmörku í 3. sæti.
Metsláttur og fjör
á Gullmóti KR-inga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nesti Það er mikilvægt að næra sig vel á milli keppnisgreina í sundinu og
þessir ungu KR-ingar voru með hollt og gott nesti við laugarbakkann.
Ólympíufari Jakob Jóhann Sveinsson tók þátt á Gullmóti KR.
Flugsund 600 keppendur tóku þátt á Gullmóti KR og þar af voru um 40 þeirra frá Danmörku. Kalt Það er góð regla að skvetta á sig köldu vatni áður en keppni hefst.
Spenna Einbeitingin er ávallt í lagi hjá sundmönnum rétt áður en þeir stinga sér til sunds.