Ísfirðingur - 03.06.1967, Page 1
BLAÐ TRAMSOKNAKMANNA / l/ESTFJAKÐAKJÖRDÆMI
17. árgangur.
ísafirði, 3. júní 1967.
13. tölublað.
Efstu menn á frambnðslista Framsóknarflokksins á Vestfjorðum
Sigurvin Einarsson
Bjarni Guðbjömsson
Steingrímur Hermannsson
Halldór Kristjánsson
Guðmundur Óskarsson
Vestfirðingar, felið frambjóðenðnm Framsóknarftokksfns
forystu ykkar mála á Alþfngi, þá er bezt fyrir hagsmnna-
málnm ykkar séð. — Kjörorðið er:
Steingrímur Hermannsson á þing
Steingrímur Hermannsson:
Framtíðin er ríknst í huga mér
Nokkrir kaflar úr framboðsræðu Steingríms
Hermannssonar á fundinum á Isafirði.
•.. „Við skulum gera okk-
Ur grein fyrir því, að á næstu
árum munu verða enn stór-
stígari framfarir á öllum svið
um vísinda en heimurinn hef-
hr nokkru sinni áður séð. Á
þeim tímum stóraukinnar
tækni og þekkingar er það
lifsspursmál hverri þjóð að
taka í sína þjónustu þessa
ráðandi þætti í efnahagsþró-
un með bættu skipulagi á öll-
hm sviðum. Engri þjóð verður
það þó nauðsynlegra en smá-
þjóð, sem býr við takmarkað
fjármagn og vinnuafl í dýru
og stóru landi og á við að
stríða miklar efnahagssveifl-
ur vegna aflabragða, viðskipta
kjara og veðurfars.
í þeim kosningum, sem við
göngum nú til, verður m.a. og
raunar ekki sízt valin sú for-
usta, sem leiða á okkur Is-
lendinga inn í þessa framtíð
og þá um leið ákveðin sú
stefna, sem fylgja ber á
þeirri braut.
... Hvemig er ástand at-
vinnuveganna í dag? Fyrir
smærri bátana er ekki lengur
rekstrargrundvöllur. Það stað
festir samhljóða álit Vélbáta-
útgerðarnefndar, sem m.a.
Matthías Bjarnason og Birg-
ir Finnsson skrifa undir.
... Frystihúsin eiga í vax-
andi erfiðleikum vegna stöð-
ugs kapphlaups við verðbólg-
una, sem krefst stöðugt meiri
fjárfestinga. En fjármagn til
stækkunar og endurbóta fá
frystihúsin á okurvöxtum, sem
ekkert atvinnufyrirtæki getur
staðið undir.
.. . Ljóst er að hér verður
að breyta um stefnu og það
hið bráðasta. Til þess þarf
nýja menn og nýja forustu.
Þeir Sigurður Bjarnason, Matt
hías Bjamason og Birgir
Finnsson breyta aldrei stefnu
viðreisnarstjórnarinnar. Þeir
hafa að vísu um það stór orð,
en minni áhrif.
... Forðast ber að draga um
of fjármagn úr undirstöðu-
atvinnuvegunum. Sjálfsagt er
að aflétta tollum af innflutn-
ingi til þeirra, stórlækka vexti
af rekstrar- og stofnfjár-
magni og fella niður þá
skatta og gjöld, sem ónauðsyn
legir eru.
Skapa verður frystihúsum
öruggara hráefni með út-
færslu landhelginnar, skipu-
legri nýtingu miðanna, nýjum
veiðiaðferðum og nými tækni
til þess að geyma aflahrotum
ar til aflaleysisdaganna.
... Verkefnin em ótal mörg.
Umfram allt verður þó að
nást jafnvægi í efnahagslif-
inu. Því verður að koma
skipulagi á fjárfestinguna og
fyrirbyggja, að allur ágóði
góðu áranna streymi beint út
Framhald á 3. siðu