Ísfirðingur - 12.01.1980, Síða 3
ÍSFIRÐINGUR
LAUSTSTARF
Óskum að ráða starfskraft, sem gæti
hafið störf 1.-15. febrúar
Vinnutími frá 9 - 5 virka daga.
Verkefni: Færsla bókhalds á Olivetti
tölvu og önnur almenn skrifstofustörf.
Góð vélritunarkunnátta er nauðsynleg.
Nokkur enskukunnátta (ritmál) æski-
leg.
Nánari upplýsingar gefur fram-
kvæmdastjóri í síma 3500.
ísafjarðarkanpstaður
OLIUSTYRKUR
Greiðsla olíustyrks fyrir tímabilið júlí -
sept. 1979 fer fram á venjulegum af-
greiðslutíma bæjarskrifstofunnar (kl.
10-12 og 13-15) dagana 15.-25. janúar
að báðum dögum meðtöldum.
VINSAMLEGAST SÆKIÐ STYRKINN Á
OFANGREINDUM TÍMA.
ísafirði, 7. janúar 1980
Bæjarritarinn á ísafirði
Skrifstofan er flutt
frá Bakkavegi 2, í suðurenda efri hæð-
ar Hraðfrystihússins við Hnífsdals-
bryggju.
Greiðsla reikninga mánudaga til
fimmtudaga kl. 13:30 -16:00.
Hraðfrystihúsið hf. Hnífsdal.
Póstur og sími
Lausar stöður
Staða NÆTURVARÐAR, hálft starf,
er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur til 26. janúar n.k.
Staða PÓSTAFGREIÐSLUMANNS
er laus nú þegar.
Upplýsingar veitir umdæmisstjóri.
Póstur og sími
isafirði.
Rækjuveiðarnar
í haust hafa 59 bátar
stundað rækjuveiðar á þrem
veiðisvæðum við Vestfirði,
Arnarfirði, fsafjarðardjúpi
og Húnaflóa. Var desember-
aflinn 249 lestir, og er heild-
araflinn á haustvertíðinni þá
orðinn 1.956 lestir, en það er
tæpur helmingur þess afla-
magns, sem leyft hefir verið
að veiða á haust- og vetrar-
vertíð.
Frá Bíldudal hafa róið 8
bátar, og öfluðu þeir 44 lestir
í desember. Er afli Bíldu-
dalsbáta á haustvertíðinni
þá orðinn 311 lestir, en þar
hefir verið leyft að veiða 600
lestir í vetur.
Frá verstöðvunum við fsa-
fjarðardjúp hafa róið 37 bát-
ar í haust. Hættu þeir veið-
um 7-10. des. og höfðu þá
aflað 105 lestir í mánuðin-
um. Er aflinn á haustvertíð-
inni þá orðinn 1.202 lestir,
en leyfi hefir verið veitt til
veiða á 2.600 lestum úr Isa-
fjarðardjúpi.
Frá Hólmavík og Drangs-
nesi hafa róið 14 bátar í
haust. Öfluðu þeir 100 lestir
í desember, en vertíð við
Húnaflóa lauk 15. desember.
Voru þá komnar á land 443
lestir, en leyfilegt er að veiða
1.000 lestir á haust- og vetr-
arvertíð.
Vegna mikillar seiða-
gengdar í Arnarfirði og ísa-
fjarðardjúpi voru engar
rækjuveiðar leyfðar á þessum
veiðisvæðum haustið 1978,
en á Hólmavík og Drangs-
nesi bárust á land 344 lestir.
Til umhugsunar fyrir farmflytjendur:
Sjóleiöin er ódýrasti flutningsmátinn sem völ er á í dag. Hár
flutningskostnaður hækkar vöruverð til neytenda og rýrir kaupmátt á
viðkomandi svæði.
Ferðir HEKLU og ESJU til ísafjarðar eru:
Frá Reykjavík 1—2 í viku
FráAkureyri 1—2 í viku
Skipaútgerð ríkisins
Vinnum gegn verðbólgu — Umboðsmaður á ísafirði
Lækkum vöruverð. Gunnar Jónsson.