Ísfirðingur - 12.01.1980, Side 4
Stöðvast ísfirsk
smábátaútgerð á
vormánuðum?
Undanfarin ár hefur engin
nothæf dráttarbraut verið til
staðar hér á ísafirði og hefur
það orsakað vandaniál varð-
andi viðgerðir á smærri bát-
um ísfirðinga. Þessi vanda-
mál eru nú orðin það mikil
að hreint neyðarástand blas-
ir við, verði ekki skjótt
brugðist við. í fundargerð
bæjarráðs frá 7. janúar sl.
kemur fram að Símon
Helgason skipaeftirlitsmaður
hefur ritað Smábátaeig.fél.
Huginn bréf þess efnis að
Siglingamálastofnun ríkisins
muni ekki öllu lengur una
við það að ekki sé hægt að
taka báta á land til eðlilegr-
ar skoðunar einu sinni á ári.
Með öðrum orðum sagt, get-
ur farið svo að smærri bátar
ísfirðinga verði stöðvaðir
verði ekki framkvæmd eðli-
leg skoðun á þeim á vori
komanda.
Afgreiðsla bæjarráðs á
þessu máli var sú, að beina
þeim tilmælum til hafnar-
nefndar að hún boðaði fram-
kvæmdastjóra og stjórnarfor-
mann M. Bernharðsson h.f.
til viðræðna um þessi mál
með það fyrir augum að fyr-
irtækið gefi skýr svör um
fyrirætlanir sínar í uppbygg-
ingu dráttarbrautar nú á
næstu mánuðum.
Eðlilegt er að slíkar við-
ræður séu fyrsta skrefið í
þessu máli og niðurstaða úr
þeim þarf að 1 iggja fyrir
fljótlega. Forráðamenn M.
Bernharðsson h.f. þurfa að
upplýsa bæjaryfirvöld um
það hvort framkvæmanlegt
sé að koma dráttarbrautinni
í gagnið á næstu mánuðum
og ef svo er hvort það verði
þá gert eður ei. Geti forráða-
menn fyrirtækisins ekki gefið
tryggingu fyrir því að drátt-
arbrautin verði komin í
gagnið innan nokkurra mán-
aða verður bæjarstjórn að
leita annarra úrræða til að
leysa þessi mál.
ísfirskum smábátaeigend-
um nægir ekki yfirlýsing,
sem ekki verður staðið við,
nú er komið að því að láta
hendur standa fram úr erm-
um og framkvæma hlutina.
Bæjaryfirvöld geta ekki látið
það viðgangast að atvinnu-
öryggi þessara sjómanna sé
tefit í tvísýnu vegna vöntun-
ar á nothæfri dráttarbraut.
K.J.
Útrýming minka
Bæjarráð ísafjarðar hefur
lagt til að Sigurgeir Jóhanns-
son, Hjallastræti 41 Bolung-
arvík, verði ráðinn í eitt ár
til að útrýma mink úr bæjar-
landinu.
Frá Lífeyrissjóðum
opinberra
starfsmanna:
Hinn 1, april 1980 munu taka gildi nýjar
reglur um útreikningsaðferð á greiðslum
fyrir kaup á lifeyrisréttindum og á flutn-
ingi réttinda úr öðrum sjóðum til Lifeyris-
sjóðs starfsmanna rikisins, Lifeyrissjóðs
barnakennara og Lifeyrissjóðs hjúkrun-
arkvenna.
Nýju reglurnar verða þannig:
A. Fyrir kaup á lifeyrisréttindum aftur i
timann, er félagar i nefndum sjóðum
kynnu að eiga rétt á að greiða vegna
eldri starfstima, sem iðgjöld hafa ekki
verið greidd fyrir áður, verður sjóðsfé-
lagi að greiða iðgjöld miðað við þau
laun sem hann hefur þegar réttinda-
kaupin eru greidd.
B. Flutningar úr öðrum sjóðum verða
ekki heimilaðir nema náðst hafi sam-
komulag við aðra lifeyrissjóði um
framkvæmd þeirra.
Kaup á réttindum aftur i timann verða þvi
aðeins leyfð, að um þau sé sótt innan árs
frá þvi umsækjandi gerist sjóðsfélagi,
(sbr. þó sérákvæði laga um Lifeyrissjóð
hjúkrunarkvenna.)
Lifeyrissjóður starfsmanna rikisins.
Lifeyrissjóður barnakennara.
Lifeyrissjóður hjúkrunarkvenna.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
SMt> TRAMSÓKNAKMANNA / l/E$TFJARMKJÖRCHtMI
Aflabrögð á Vestfjörðum
— í desember 1979
Sæmilega góðar gæftir
voru allan desembermánuð.
Á tímabilinu frá 20. desemb-
er til áramóta var í gildi
þorskveiðibann hjá bátafiot-
anum og féllu allir róðrar
hjá línubátunum niður á því
tímabili, en fram til þess
tíma var ágætur afii á línu.
Afii togaranna var einnig
góður í desember, en margir
þeirra voru í þorskveiðibanni
hluta mánaðarins, fiestir
seinustu dagana. Þeir, sem
Halldór Þórðarson,
Laugalandi:
Hlauparar
víttir
í Vesturlandi 30. nóv. s.l.
ritar annar Stéttarsam-
bandsfulltrúi N-ísfirðinga
grein. —Hann telur að út-
hlaupin frægu hafi ekki staf-
að af óvild í garð bænda og
ekki sé við hlauparana að
sakast þó þeir réttu bændum
þennan löðrúng, þegar þcir
lágu vel við höggi.
Þeir sem greinina lesa geta
haldið að þetta sé einnig álit
frammámanna Sjálfstæðis-
bænda við Djúp. Mér er
ljúft að votta að svo er
ekki. Síðasti aðalfundur
Búnaðarsambands Vest-
fjarða samþykkti eftirfarandi
ályktun með öllum atkvæð-
um: „Aðalfundur Búnaðar-
sambands Vestfjarða 1979
lýsir furðu sinni á því að
alþingi skyldi víkjast undan
því að afgreiða ábyrgðar-
heimild til lántöku vegna
tekjuskerðingar og fjárhags-
vanda bændastéttarinnar.
Þá fordæmir fundurinn
vinnubrögð þeirra þjóð-
kjörnu fulltrúa sem gengu af
fundi síðasta alþingis við af-
greiðslu nefndrar ábyrgðar-
heimildar, sem varðaði hags-
munamál bændastéttarinnar
í heild. —Væntir fundurinn
þess að næsta alþingi ráði
bót á þessu þegar í haust.“
Bóndinn á lista Sjálfstæðis-
manna á Vestfjörðum var
framsögumaður og bóndinn
sem er formaður kjördæmis-
ráðs lýsti samþykki sínu við
ályktunina og greiddi henni
atkvæði eins og aðrir fulltrú-
ar. Ég skil vel að vegna kosn-
inganna hafa þeir ekki verið
að auglýsa þessa afstöðu sína
- en að sjálfsögðu munu þeir
hafa notað tækifærið og tal-
að rækilega yfir þeim hlaup-
urum í sínum fiokki sem þeir
hafa náð í. Þeir hafa báðir
lýst fordæmingu sinni á
framkomu hlauparanna í
garð bænda. Þökk sé þeint
fyrir það. 3/12‘79
H.Þ.
voru búnir með bannið og
voru að veiðum milli hátið-
anna, fengu allir góðan afia.
I desember stunduðu 37
(40) bátar bolfiskveiðar frá
Vestfjörðum, réru 25 (28)
með línu, en 12 (12) stund-
uðu togveiðar. Heildarafiinn
í mánuðinum var 6.655 lest-
ir, en var 4.752 lestir á sama
tíma í fyrra. Afii línubát-
anna var nú 2.657 lestir í 332
róðrum eða 8,0 lestir að með-
altali í róðri. I fyrra var
desemberafii línubátanna
1.635 lestir í 354 róðrum eða
4,6 lestir að meðaltali í róðri.
Afiahæsti línubáturinn í
mánuðinum var Garðar frá
Patreksfirði með 154,3 lestir
í 15 róðrum, en í fyrra var
Dofri frá Patreksfirði afia-
hæstur í desember með 11 7,0
lestir í 15 róðrum. Af togur-
unum var Páll Pálsson frá
Hnífsdal aflahæstur í des-
ember með 426,4 lestir, en
hann var einnig afiahæstur í
fyrra með 430,3 lestir.
Heildarafiinn á tímabil-
inu október/desember var
nú 19.079 lestir, en var
13,057 lestii' á sama tímabili
í fyrra. Er aflaaukningin
bæði hjá togurunum og bát-
unum, en þó verulega meiri
hjá bátunum eða 69%. Er
þessi haustvertíð sú besta
sem hér hefir komið hjá línu-
bátum. Var afii þeirra á
þessu tímabili 8.131 lest í
1068 róðrum eða 7,6 lestir að
meðaltali í róðri, en var í
fyrra á sama tíma 4.813 lest-
ir í 1042 róðrum eða 4,6
lestir í róðri.
Afiahæsti línubáturinn á
haustvertíðinni var Orri frá
ísafirði með 645,6 lestir í 69
róðrum, en hann var einnig
afiahæstur á haustvertíðinni
í fyrra, þá með 345,2 lestir í
62 róðrum. Guðbjörg var
afiahæst vestfirsku togar-
anna á árinu 1979 með 5.628
lestir, en hún var einnig afia-
hæst á árinu 1978, þá með
4.626 lestir.
FLATEYRI:
Gyllir tv. 418,8 4
Vísir 87,4 14
Sif Ak 45,7 • 8
SUÐUREYRI:
Elín Þorbj.d. tv . 260,0 4
Kristján Guðm. ss. 122,6 15
Sigurvon 107,4 15
Ólafur Friðb.ss. Ingimar 87,9 16
Magnússon 29,7 7
Sif Is 20,4 5
BOLUNGARVÍK:
Dagrún tv. 359,2 4
Heiðrún tv. 202,4 4
Jakob Valgeir 148,5 16
Hugrún 142,3 16
Öðlingur 81,0 14
Flosi 75,9 16
Kristján 70,3 15
ISAFJÖRÐUR:
Páll Pálsson tv. 426,4 4
Guðbjörg tv. 311,8 3
Guðbjartur tv. 263,7 3
Júlíus Geirm.s. tv.211,9 4
Orri 141,3 14
Guðný 137,1 14
Víkingur III 136,0 14
SÚÐAVÍK:
Bessi tv. 267,9 4
Aflinn í hverri verstöö í desemb- er:
1979: 1978:
Patreksfjörður 839 ( 685)
Tálknafj. 433 ( 161)
Bíldudalur 229 ( 125)
Þingeyri 453 ( 278)
Flateyri 636 ( 326)
Suðuryeri 680 ( 385)
Bolungarvík l .193 ( 666)
fsafjörður l .871 (1.757)
Súðavík 321 ( 295)
Hólmavík ( 74
Okt./nóv.
6.655
12.424
(4.752)
(8.305)
19.079 (13.057)
Heildarafli togaranna árið
1979:
Á árinu 1979 voru gerðir
út 12 togarar frá Vestfjörð-
um, og var heildarafii þeirra
á árinu 49.182 lestir. Skiptist
hann þannig milli skipa:
Guðbjörg,
ísafirði
5.628 42
Aflinn í einstökum ver- Hnífsdal 5.282 43
stöðvum: Bessi,
PATREKSFJÖRÐUR: Súðavík 4.860 42
Garðar 154,3 15 Dagrún,
Birgir 150,2 16 Bolungarvík 4.690 38
Þrymur 131,1 16 Guðbjartur,
Dofri 128,9 15 ísafirði 4.347 41
María Júlía 127,3 15 Júlíus- Geirm.s.
Guðm. í Tungu tv. 28,3 1 ísafirði 4.239 38
Gyllir,
TÁLKNAFJÖRÐUR: Flateyri 4.223 35
Tálknfirð. tv. 360,8 4 Framnes I,
Þingeyri 4.052 39
BlLDUDALUR: Elín Þorbj.d.
Fr‘gg 139,7 17 Suðureyri 3.936 36
Steinanes 88,9 12 Tálknfirðingur,
Tálknafirði 2.722 26
ÞINGEYRI: Heiðrún,
Framnes I tv. 208,6 4 Bolungarvík 2,615 35
Framnes 128,3 16 Guðmundur í Tungu,
Sæhrímnir 74,3 1 1 Patreksfirði 2.589 36