Morgunblaðið - 18.06.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.06.2010, Blaðsíða 2
Erlendir fjölmiðlar sem sögðu frá ákvörðun leið- togaráðsins gerðu talsvert úr þeirri andstöðu sem virðist vera meðal íslensks almennings við ESB- aðild. Vísuðu þeir til skoðanakannana sem sýna að meirihluti landsmanna er andvígur inngöngu. Stef- án Haukur segir að vissulega spyrji menn í Brussel út í afstöðu Íslendinga. Hins vegar sé alls ekki víst að afstaða almennings hér á landi hafi áhrif á við- semjendur okkar. Efnislegar viðræður hefjast á næsta ári Efnislegar viðræður ættu að sögn Stefáns Hauks að geta hafist á fyrrihluta næsta árs. Fram að því á sér stað svokölluð rýnivinna þar sem lög Íslands annars vegar og Evrópusambandsins hins vegar eru borin saman til að kanna hvar beri í milli. Ís- lendingar hafa að miklu leyti tekið upp regluverk sambandsins, bendir Stefán Haukur á, og því ætti rýnivinnan að minnsta kosti varðandi þá lagakafla að ganga tiltölulega fljótt fyrir sig. Ljóst sé hins vegar að talsverður tími muni fara í að ræða þætti á borð við sjávarútvegsmál, landbún- aðarmál og byggðamál. Aðspurður hvort hval- veiðar Íslendinga muni setja strik í aðildarferlið, eins og erlendir fjölmiðlar hafa haldið fram, segir Stefán Haukur að of snemmt sé að segja til um það. „Hvalveiðar verða eflaust eitt af þeim málum sem rædd verða við samningaborðið.“ Enn greint á um hvort ESB-aðild sé háð Icesave  Leiðtogaráð sambandsins ákvað að hefja aðildarviðræður við Íslendinga Reuters Að loknum fundi leiðtogaráðsins Forsætisráðherra Spánar, Jose Luis Rodriguez Zapatero, Herman Van Rompuy, forseti leiðtogaráðs ESB og José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar þess. 2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Nokkrir Íslendingar taka þátt í listamessunni Art Basel sem nú stendur yfir, en hún er ein sú stærsta sinnar tegundar í heim- inum. Galleríið i8 er þar með bás og sýnir verk eftir Ragnar Kjart- ansson og Egil Sæbjörnsson. „Það hefur gengið vel hjá okkur. Við höfum selt verk bæði eftir Egil og Ragnar,“ segir Börkur Arnar- son, framkvæmdastjóri i8. Meðal annarra íslenskra listamanna á messunni eru Margrét Blöndal, Ólafur Elíasson og Hreinn Frið- finnsson. Um 61 þúsund gestir heimsóttu listamessuna í Basel í fyrra. Í ár eru sýnd verk 2.500 listamanna á mess- unni. Um 300 gallerí eru þar með bás, en yfir þúsund gallerí sóttu um að fá að taka þátt. Er þá ekki heið- ur að vera valinn til þátttöku? „Jú, jú, ætli það ekki,“ svarar Börkur hógvær, en i8 hefur einu sinni áður tekið þátt í messunni. Stytta eftir Paul McCarthy seld fyrir 380 milljónir Verkin sem i8 eru með til sýnis í Basel kosta á bilinu 6.000 til 10.000 evrur (um eina til eina og hálf millj- ón króna). „Þannig að við erum í ódýrari kantinum á þessari messu,“ segir Börkur og bendir á að stytta eftir Paul McCarthy hafi selst á 3 milljónir dollara (um 380 milljónir króna). Á listamessunni fer ekki bara fram sala og kaup á listaverkum. Einnig er þetta kjörinn vettvangur fyrir listamenn og listaverkasala til að mynda tengsl, segir Börkur, enda saman komið fólk alls staðar að úr heiminum. hlynurorri@mbl.is Taka þátt í stærstu listamessu heims Frá i8 Gallery Listamaðurinn og móðir hans Úr vídeóverki eftir Ragnar Kjartansson sem selst hefur í nokkrum eintökum á listamessunni Basel Art.  Íslenskir listamenn sýna á listamessunni Art Besel sem hófst á miðvikudag  Galleríið i8 selur þar verk eftir Egil Sæbjörnsson og Ragnar Kjartansson „Við köllum þetta háskólahátíð enda er formleg útskrift frá Akur- eyri hinn tólfta. Hins vegar kom rektor vestur og menntamálaráð- herra og þess vegna varð hún að formlegri útskrift,“ segir Peter Weiss, forstöðumaður háskólaset- urs Vestfjarða, eftir útskrift frá Hrafnseyri í blíðviðrinu í gær. Peter lýsir setrinu svo: „Háskóla- setur Vestfjarða er í samstarfi við alla háskóla landsins. T.d. er meist- aranámið í haf- og strandsvæða- stjórnun í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Háskólasetrið var stofnað 2005. Vestfirðingar vildu háskóla. Við bjóðum upp á há- skólanám eingöngu í samstarfi við háskóla innanlands og erlendis.“ – Hvað eru nemendurnir margir? „Nemendurnir í þessum fyrsta hópi eru 9. Í þeim næsta eru 20 en við eigum svo von á 29 nýnemum í haust. Þeir sem útskrifuðust núna voru frá Íslandi, Bretlandi, Þýska- landi og Bandaríkjunum.“ – Hvað læra nemendurnir? „Þeir læra haf- og strandsvæða- stjórnun og auðlindastjórnun haf- svæða og strandsvæða. Það gengur út á að nýta þessa takmörkuðu auð- lind sem strand- og hafsvæði eru sem best og samrýma þá nýting- armöguleika sem fyrir hendi eru. Námið gengur líka mikið út á skipulagsmál. Hvað nýtinguna snertir vilja t.d. þeir sem eru með fiskeldi nýta haf- og strandsvæðin á annan veg en þeir sem eru með aðra notkun í huga.“ Háskólahátíð á Hrafnseyri Morgunblaðið/Halldór Alþingi afgreiddi á þingfundi sín- um sl. miðvikudag sem lög frum- varp um afnám Varnarmálastofn- unar. Samþykktu 29 þingmenn stjórnarflokkanna lögin en 14 þing- menn Sjálfstæðisflokks voru á móti. 8 greiddu ekki atkvæði. 11 voru fjarverandi. Varnarmálastofnun verður lögð niður frá og með 1. janúar næst- komandi og er utanríkisráðherra veitt heimild til að gera verksamn- inga og samninga um rekstrarverk- efni við aðrar ríkisstofnanir að fengnu samþykki hlutaðeigandi ráðherra. Embætti forstjóra Varn- armálastofnunar verður lagt niður við gildistöku laganna. Varnarmálastofnun verður lögð niður Stefán Sölvi Pétursson vann keppn- ina Sterkasti maður Íslands 2010 sem haldin var í gær. Mótið hefur verið haldið frá árinu 1985 af Hjalta Úrsusi og er eitt það elsta sinnar tegundar í heiminum. Í öðru sæti var Benedikt Magnússon og þriðji var Hafþór Júlíus Björnsson. Um helgina heldur Stefán til Skot- lands að keppa á Hálandaleikum og því næst tekur hann þátt í alþjóðlegu kraftamóti í Noregi. Síðar á árinu mun hann keppa fyrir Íslands hönd í keppninni Sterkasti maður heims. Stefán sterkasti maður Íslands Ljósmynd/Sunna Hlín „Fyrst málið er komið á þennan stað verð- um við bara að sjá hvert ferlið leiðir okkur,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, um að leiðtogaráð Evrópu- sambandsins hafi í gær ákveðið að hefja að- ildarviðræður við Íslendinga. „Ég hefði hins vegar talið rétt að hafa aðra forgangsröðun en að standa í [aðildarviðræðum] núna og var auðvitað á móti því á sínum tíma að lagt væri af stað. Ég tel að það hafi komið æ betur í ljós eftir því sem tíminn hefur liðið að þetta var röng ákvörðun sem ekki var nægilegur stuðn- ingur við, hvorki pólitískt né meðal þjóðarinnar al- mennt.“ Verðum bara að sjá hvert ferlið leiðir RÖNG FORGANGSRÖÐUN FRÉTTASKÝRING Hlynur Orri Stefánsson hlynurorri@mbl.is „Það má segja að við séum að færast úr umsókn- arferli í viðræðuferli, þannig að þetta er vissulega stór áfangi,“ segir Stefán Haukur Jóhannesson, að- alsamningamaður Íslands við Evrópusambandið. Leiðtogaráð sambandsins ákvað í gær að hefja skyldi aðildarviðræður við Íslendinga. Í ákvörðuninni kemur fram að Ísland uppfylli hin pólitísku skilyrði sem fjalla m.a. um virðingu fyrir mannréttindum og leikreglum lýðræðis. Íslend- ingar þurfi þó að innleiða ýmis Evrópulög og bregðast við þeim veikleikum sem framkvæmda- stjórn ESB benti á í skýrslu sinni í byrjun ársins og snúa t.d. að fjármálakerfinu. Í texta þeim er fylgir ákvörðuninni er ekkert minnst á Icesave-deiluna við Breta og Hollendinga. Erlendir fjölmiðlar fullyrtu hins vegar að aðild Ís- lands væri háð lyktum deilunnar. Í frétt Financial Times sagði t.d. að ESB hafi í gær tjáð íslenskum stjórnvöldum að landið gæti ekki gengið í sam- bandið fyrr en búið væri að leysa hana. Reyna að hafa áhrif á umræðuna Íslenskir embættismenn í Brussel sem Morg- unblaðið ræddi við telja túlkun fjölmiðlanna ranga enda hafi ekkert verið rætt um deiluna á fundi leið- toganna. Einn viðmælandi blaðsins sagðist telja þessar fullyrðingar erlendra fjölmiðla skýrast af því að breskum og hollenskum embættismönnum hafi tekist það ætlunarverk sitt að stjórna um- ræðunni. Hvað sem því líður er ljóst að bresk og hollensk stjórnvöld hafa lagt sig fram um að tengja málin saman. Þannig lét t.d. Jan Peter Balkenende, frá- farandi forsætisráðherra Hollands, hafa eftir sér í gærmorgun að Íslendingar verði að uppfylla skyld- ur sínar gagnvart Hollendingum og Bretum; fyrr geti þjóðin ekki orðið aðili að Evrópusambandinu. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir það alveg ljóst að umsókn Íslands og Icesave-deilan séu ótengd mál. „Það hefur verið margítrekað með yfirlýsingum forystumanna Evrópusambandsins og stækkunarstjóra framkvæmdastjórnarinnar.“ Þá sé það alrangt að íslensk stjórnvöld hafi gefið Bretum og Hollendingum vilyrði um lyktir deil- unnar, en því hefur verið haldið fram að slíkt loforð hafi liðkað fyrir ákvörðun leiðtogaráðs- ins. Stefán Haukur segist telja að það hversu fljótt og vel aðildarferlið hafi gengið hingað til sýni að forsvarsmenn sambandsins tengi inngöngu Íslands ekki við lyktir Icesave- málsins. Enda er um tvíhliða deilu að ræða, bendir hann á, sem hefur í raun ekkert með viðræðurnar að gera. Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.