Morgunblaðið - 18.06.2010, Qupperneq 1
FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2010
íþróttir
Þjálfararnir Fjórir af þjálfurunum 12 í efstu deild karla eru í fullu starfi. Kennarastarfið er
„draumadjobbið“ samhliða þjálfuninni. Tannlæknir og atvinnubílstjóri í hópnum. 4
Íþróttir
mbl.is
„Við ætlum ekki
að láta þetta
verða jafnerfitt
og síðast en til
þess þurfum við
mikið betri leik.
Markmiðið er að
skora sem fyrst
og brjóta þær
niður en það get-
ur vel verið að
þeim takist að
halda aftur af okkur með jafn-
góðum árangri og í fyrri leiknum.
Þá er mikilvægt að við sýnum kar-
akter og höldum áfram á fullu allar
90 mínúturnar,“ sagði Margrét
Lára Viðarsdóttir, framherji ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu,
við Morgunblaðið í gær um leikinn
gegn Norður-Írum á morgun.
„Þetta verður miklu skemmti-
legra en þessir HM-leikir, þeir enda
allir bara með jafntefli og fáum
mörkum. Ég lofa því að það verður
ekki jafntefli á laugardaginn og ef
fólk vill sjá skemmtilegan leik þá
mætir það í Laugardalinn.“
Hún er ánægð með gengi sitt og
Kristianstad í Svíþjóð að und-
anförnu.
„Okkur gengur bara vel þannig
séð, þó það hafi verið smá hikst í
síðustu leikjum. Ég fíla mig vel
þessa dagana en er að ná að vinna
mig úr þessum meiðslum og á eftir
að skora oftar og meira þegar fram
í sækir.
Mér gengur vel að nýta þau færi
sem ég hef fengið og það er bara
mikilvægt uppá framhaldið fyrir
landsliðið að ég sé „heit“. Ég er
volg þessa dagana,“ sagði Margrét
Lára. sindris@mbl.is
„Lofa því að
við gerum
ekki jafntefli“
Margrét Lára
Viðarsdóttir
Phil Mickelson byrjaði ekki vel á
fyrsta hring opna bandaríska
meistaramótsins í golfi í gærkvöldi
en það fer fram á hinum fræga
Pebble Beach velli í Kaliforníu.
Mickelson sem
sigraði á fyrsta
risamóti ársins,
lék á fjórum yfir
pari. Þess ber þó
að geta að skorið
er ávallt hærra á
opna bandaríska
mótinu en öðrum
mótum hjá bestu
kylfingum heims.
Á meðal þeirra
sem léku vel má
nefna Kanadamanninn Mike Weir
sem lék á höggi undir pari. Það
gerðu einnig Englendingurinn lit-
ríki Ian Poulter og Kóreubúinn
kraftalegi K.J. Choi. Luke Donald
var á meðal þeirra sem léku á
parinu. kris@mbl.is
Slæm byrjun
hjá Mickelson
Phil
Mickelson
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Það fór ekki mikið fyrir þeirri frétt á
dögunum þegar danska stórskyttan
Mikkel Hansen ákvað að yfirgefa
spænska stórliðið Barcelona, til þess
að ganga í raðir danska félagsins AG
í Kaupmannahöfn. AG er nýtt félag
sem er samansett úr tveimur Kaup-
mannahafnarfélögum. Annars vegar
FCK, liði Arnórs Atlasonar og hins
vegar AG Handbold, sem spólað hef-
ur upp um tvær deildir á tveimur ár-
um.
Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari var nýlega ráðinn íþrótta-
stjóri AG, en félagið verður formlega
til í sumar. Snorri Steinn Guðjónsson
gengur til liðs við félagið í sumar en
AG hefur auk þess tryggt sér starfs-
krafta Ólafs Guðmundssonar en hann
gengur í raðir félagsins sumarið
2011.
Morgunblaðið hitti Hansen að máli
í Laugardalshöllinni á dögunum, eftir
fyrri vináttuleik Íslendinga og Dana.
„Nei, ég held ekki að þetta sé skref
niður á við. Kannski má halda því
fram þar sem AG verður ekki í Evr-
ópukeppni á fyrsta tímabili. Ég held
hins vegar að AG-liðið verði mjög
gott og þetta er mjög spennandi
verkefni. Ég vonast til að við verðum
orðnir eitt sterkasta lið Evrópu á
næstu tveimur til þremur árum. Ég
tel það vera raunhæft og það er
áhugavert verkefni að koma liðinu í
fremstu röð. Það er helsta ástæða
þess að ég ákvað að skipta um félag.
Eins og staðan er núna þá gæti mað-
ur spilað í hærri gæðaflokki með
Barcelona en með tímanum vonast ég
til að við getum búið til eitthvað gott
og spennandi fyrir handboltaunn-
endur í Danmörku. Ég hlakka til að
spila fyrir félagið því metnaðurinn er
mikill,“ sagði Hansen þegar Morg-
unblaðið spurði hann hvort það væri
skref niður á við að fara heim til Dan-
merkur frá Barcelona.
Hansen er 23 ára og þykir einn
hæfileikaríkasti leikmaður sem kom-
ið hefur fram á sjónarsviðið í Dan-
mörku og er spáð glæstri framtíð í
handboltanum. Hansen sagðist
þekkja vel til Íslendinganna. „Þarna
verða þrír Íslendingar og ég hlakka
til að vinna með þeim. Ég þekki
Snorra og spilaði með honum í GOG.
Arnór hefur náttúrlega spilað í Kaup-
mannahöfn og ég þekki auðvitað til
hans. Ég hef auk þess rætt við
nokkra leikmenn GOG um Guðmund
sem ég kannast raunar einnig við,“
sagði Hansen við Morgunblaðið.
AG eitt besta lið Evrópu?
Mikkel Hansen bjartsýnn á að AG nái langt Spilar með Snorra og Arnóri
með Guðmund sem yfirmann Hlakkar til að vinna með Íslendingunum
Efnilegur Mikkel Hansen er ungur
en þegar einn sá besti hjá Dönum.
Kvennalandsliðið í knattspyrnu býr sig undir tvo leiki í
undankeppni HM á Laugardalsvellinum á næstu dög-
um. Sá fyrri er gegn Norður-Írum á morgun og Katrín
Jónsdóttir landsliðsfyrirliði sagði við Morgunblaðið í
gær að það yrði langt frá því að vera auðveldur leikur.
Ísland vann fyrri leikinn á Norður-Írlandi í haust, 1:0.
„Mér fannst þær norður-írsku sprækar á sínum
heimavelli en við vorum líka langt frá því að sýna okk-
ar besta. Keppnistímabilið var að klárast og kannski
komin einhver þreyta í mannskapinn, en ég held að þó
staðan sé ekki þannig núna þá verði þetta alls ekki
auðveldur leikur. Við verðum að mæta klárar í slaginn.
Það er alltaf fjör á Laugardalsvellinum hjá okkur.
Við ætlum að spila mjög góðan leik og gera hvað við
getum til að ná í þrjú stig.
Við hittumst í gær og það er langt síðan maður hefur
séð suma hérna. Gamlir leikmenn eru mættir aftur
eins og Málfríður Erna [Sigurðardóttir], og svo eru
nokkur ný andlit sem gaman er að sjá og það er gaman
að vita hvað við eigum efnilega leikmenn,“ sagði Katr-
ín.
Mætum í miklu betri gír
Nafna hennar, Katrín Ómarsdóttir, er viss um að ís-
lenska liðinu gangi betur að þessu sinni.
„Ég held að við mætum í miklu betri gír núna. Í
fyrra þegar við mættum þeim var EM tiltölulega ný-
lokið og keppnistímabilinu einnig, þannig að það voru
allir þeyttir. Nú eru ferskir fætur á ferðinni og ég held
að þetta verði mun betra hjá okkur. Það eru allir á
miðju tímabili með sínum félagsliðum og þar af leið-
andi í toppstandi. Svo erum við á heimavellinum okkar
og hér erum við alltaf góðar,“ sagði Katrín Ómars-
dóttir, sem skoraði sigurmarkið í Belfast.
Leikur liðanna hefst klukkan 16 í Laugardalnum.
Ísland er sem kunnugt er í hörðum slag við Frakka um
sigur í riðlinum og verður að vinna á morgun og aftur
gegn Króötum á þriðjudagskvöld til að eiga möguleika
á að skáka þeim. sindris@mbl.is
„Alltaf fjör
á Laugar-
dalsvelli“
Morgunblaðið/hag
Katrín og Katrín Þær voru brosmildar í baráttunni um boltann á landsliðsæfingunni í gær, Katrín
Jónsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Íslenska liðið mætir því norður-írska á morgun.