Morgunblaðið - 18.06.2010, Side 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2010
HANDKNATTLEIKUR
Brasilía – Ísland 30:33
Balneário Camboriú, Brasilíu, vináttu-
landsleikur karla, miðvikudaginn 16. júní
2010.
Gangur leiksins: 4:0, 6:4, 11:7, 12:13, 13:16,
15:22, 23:29, 25:31, 30:33.
Mörk Íslands: Arnór Þór Gunnarsson 6,
Oddur Gretarsson 6, Rúnar Kárason 6,
Ólafur Guðmundsson 4, Vignir Svavarsson
3, Kári Kristján Kristjánsson 2, Sturla Ás-
geirsson 2, Þórir Ólafsson 2, Arnór Atlason
1, Snorri Steinn Guðjónsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 16/1,
Pálmar Pétursson 2/1. Pálmar var í mark-
inu síðustu fimm mínútur leiksins, annars
stóð Björgvin Páll vaktina.
Seinni leikur liðanna fer fram í kvöld og
hefst kl. 20.30 að íslenskum tíma.
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna B
Fjarðabyggð/Leiknir – ÍBV.................... 1:4
Staðan:
ÍBV 5 5 0 0 32:2 15
Selfoss 4 4 0 0 25:5 12
ÍR 6 4 0 2 14:15 12
Fjarðab./Leikn. 4 2 0 2 8:12 6
Sindri 5 2 0 3 11:16 6
Fjölnir 4 1 1 2 2:12 4
Fram 6 0 2 4 5:19 2
Höttur 6 0 1 5 5:21 1
3. deild karla D
Leiknir F. – Magni ................................... 5:1
Staðan:
Dalvík/Reynir 4 4 0 0 15:1 12
Leiknir F. 4 2 1 1 8:5 7
Magni 5 2 1 2 7:11 7
Draupnir 3 1 1 1 5:10 4
Einherji 3 1 0 2 4:5 3
Huginn 4 1 0 3 5:7 3
Samherjar 3 0 1 2 2:7 1
í kvöld
KNATTSPYRNA
1. deild karla:
Akureyrarvöllur: KA – Fjölnir ................ 19
ÍR-völlur: ÍR – Leiknir R ......................... 20
Akranesvöllur: ÍA – Njarðvík .................. 20
2. deild karla:
Húsavík: Völsungur – KS/Leiftur............ 20
Sandgerði: Reynir S. – KV ....................... 20
Ásvellir: ÍH – Víkingur Ó ......................... 20
3. deild karla:
Hrafnagil: Samherjar – Dalvík/Reynir ... 19
HM í dag
C-riðill:
Slóvenía – Bandaríkin ............................... 14
England – Alsír..................................... 18.30
D-riðill:
Þýskaland – Serbía............................... 11.30
Íslenska landsliðið í handknattleik vann það bras-
ilíska með þriggja marka mun, 33:30, í vináttulands-
leik í bænum Balneário Camboriú í Brasilíu í fyrri-
nótt. Ísland var þremur mörkum yfir í hálfleik,
16:13, eftir að hafa verið undir lengst af hálf-
leiknum. Íslenska liðið réð lögum og lofum í síðari
hálfleik og náði mest sjö marka forskoti. Hafði það
mikið að segja að Björgvin Páll Gústavsson varði vel
í marki Íslands í síðari hálfleik og í síðari hluta fyrri
hálfleiks. Þjóðirnar mætast aftur í kvöld.
Byrjunin var ekki glæsileg hjá íslenska liðinu því
Brasilíumenn voru mun ferskari á upphafsmínútum
leiksins og skoruðu fjögur fyrstu mörkin. Á stuttum
kafla seint í fyrri hálfleik tókst íslenska liðinu að
snúa leiknum sér í vil. Þá breyttu þeir stöðunni úr
7:11 í 13:12 og komust yfir í fyrsta skipti í leiknum. Í
upphafi síðari hálfleiks tókst Íslendingum að gera
nánast út um leikinn með góðri
byrjun og komust í 22:15. Það
var ekki fyrr en á lokamín-
útunum sem heimamönnum
tókst að saxa á forskotið.
Eyfirsku hornamennirnir Arn-
ór Þór Gunnarsson og Oddur
Grétarsson voru markahæstir
með sex mörk ásamt Rúnari
Kárasyni. Ólafur Guðmundsson
kom næstur með 4 mörk. Þessir
fjórir eiga ekki marga A-
landsleiki að baki. Ingimundur Ingimundarson og
Ásgeir Örn Hallgrímsson voru ekki með vegna smá-
vægilegra meiðsla. Snorri Steinn Guðjónsson bar
fyrirliðabandið eins og í leikjunum gegn Dönum á
dögunum. iben@mbl.is/kris@mbl.is
Ungu mennirnir atkvæðamestir
Oddur
Grétarsson
Tvö af stóru liðunum í ensku úrvalsdeildinni í knattsp
enal, mætast í fyrstu umferð deildarinnar 14. ágúst, e
birt í gær. Tottenham og Manchester City eigast líka
en leikur liðanna fer fram á White Hart Lane í Londo
stóran leik í annarri umferð, gegn Manchester City á
Englandsmeistarar Chelsea hefja titilvörnina á hei
WBA og Manchester United fær nýliða Newcastle í he
ið, Blackpool, sem leikur í efstu deild í fyrsta skipti í 4
gegn Wigan.
Þessi lið mætast í fyrstu umferðinni 14. ágúst: Asto
Blackburn – Everton, Blackpool – Wigan, Bolton – Fu
Liverpool – Arsenal, Man. Utd – Newcastle, Sunderla
enham – Man. City, Wolves – Stoke.
Þessi lið mætast í 2. umferðinni 21. ágúst: Arsenal –
ingham – Blackburn, Everton – Wolves, Fulham – Ma
erpool, Newcastle – Aston Villa, Stoke – Tottenham,
West Ham – Bolton, Wigan – Chelsea. vs@mbl.is
Liverpool – Arsenal í
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Argentínumönnum gengur vel að
standa undir væntingum í upphafi
HM í Suður-Afríku og í gær burst-
uðu þeir Suður-Kóreu 4:1 og eru
komnir með sex stig eftir tvo leiki í
B-riðli. Gonzalo Higuaín sló í gegn
og skoraði þrennu og fylgdi þannig
eftir góðri frammistöðu hjá Real
Madrid í vetur. Grikkir hristu af sér
slenið og unnu Nígeríu 2:1. Grikk-
land og Suður-Kórea eru þá bæði
með þrjú stig.
Diego Armando Maradona er
þegar búinn að stela senunni á HM
eins og reiknað var með. Lið hans er
þó betur samstillt en almennt var
gert ráð fyrir því mikið hefur verið
gert úr reynsluleysi Maradona í
þjálfun. „Við viljum halda áfram að
spila eins og við höfum gert. Við er-
um á réttri leið en viljum þó ekki
byrja strax að velta fyrir okkur
mögulegum andstæðingum í næstu
umferð. Allir í okkar liði vilja spila
af eðlilegri getu og andrúmsloftið er
gott í hópnum. Við fundum það í að-
dragandanum og við finnum það
núna,“ sagði Maradona á blaða-
mannafundi að leiknum loknum
gegn Suður-Kóreu. Hann sagðist
einnig vera mjög ánægður með
spilamennskuna því það sé ekki auð-
velt að slípa liðið til þegar 90% leik-
manna spila í Evrópu.
Hvað sem þjálfarahæfileikum
Maradona líður þá spila Argent-
ínumenn alla vega af ástríðu í
keppninni. Stemningin virðist vera
mikil og góð í leikmannahópnum og
leikmennirnir virðast trúa því að
þeirra örlög séu að verða heims-
meistarar. Argentínu skortir sjaldn-
ast frambærilega knattspyrnumenn
og liðið er ávallt nefnt á meðal
þeirra sem geta unnið HM. Það er
hins vegar athyglisvert að liðið hef-
ur ekki komist lengra en í átta liða
úrslit frá því að Maradona leiddi lið-
ið í úrslitaleikinn árið 1990.
Grikkir sýndu sparihliðarnar
Nígeríumaðurinn Sani Kaita
hleypti Grikkjum inn í leik liðanna
þegar hann lét reka sig af leikvelli á
33. mínútu, en þá var Nígera 1:0 yfir
með marki Kalu Uche á 16. mínútu.
Kaita lenti í stimpingum við Toro-
sidis út við hliðarlínu þegar ekkert
virtist vera að gerast. Kaita missti
stjórn á sér eitt andartak og spark-
aði til Torosidis af litlu tilefni. „Ég
tek sökina á mig. Ég ber ábyrgðina
og vil biðja alla afsökunar á þessu.
Ég vildi óska þess að ég gæti spólað
til baka. Þetta er hins vegar stað-
reynd og dómarinn tók ákvörðun
sem þýðir að mitt lið á mikla vinnu
fyrir höndum. Ég gæti hafa komið í
veg fyrir tækifæri á að komast
áfram í næstu umferð,“ sagði Kaita
þegar fjölmiðlamenn gripu hann að
leiknum loknum.
1:0 gæti nægt Nígeríu
Þrátt fyrir að Nígeríumenn sitji á
botni riðilsins án stiga þá eiga þeir
engu að síður raunhæfa möguleika á
að komast áfram. Fari svo að Arg-
entína klári dæmið og vinni Grikk-
land þá nægir Nígeríu 1:0 sigur á
Suður-Kóreu til þess að stela 2. sæt-
inu og komast áfram. Þá yrði Níg-
ería með markatöluna eitt mark í
mínus en keppninautarnir báðir
með a.m.k. tvö mörk í mínus.
Að sama skapi eru Argentínu-
menn ekki öruggir um að komast
áfram þó annað sé mjög ólíklegt.
Þeir þyrftu að fá skell gegn Grikkj-
um og Suður-Kórea þyrfti einnig að
vinna Nígeríu stórt til þess að senda
Argentínumenn heim að lokinni
riðlakeppninni.
Reuters
Marksæknir Argentísku framherjarnir Lionel Messi, Gonzalo Higuain og Sergio Agüero fagna marki.
Mikil barátta um að
komast upp úr B-riðli
Nígería án stiga en á góða möguleika á að komast áfram
Argentína – Suður-Kórea 4:1
1:0 Park Chu-Young 17. (sjálfsm.)
2:0 Gonzalo Higuaín 33.
2:1 Lee Chung-Yong 45.
3:1 Gonzalo Higuaín 76.
4:1 Gonzalo Higuaín 80.
Lið Argentínu: Romero – Jónas, Demichel-
is, Samuel (Burdisso 23.), Heinze – M.Ro-
dríguez, Mascherano, Messi, di Maria – Hi-
guaín (Bolatti 82.), Tévez (Agüero 75.)
Lið Suður-Kóreu: Sung-Ryong – Beom-
Seok, Yong-Hyung, Jung-Soo, Young-Pyo
– Chung-Yong, Sung-Yueng (Na-Mil 46.),
Ji-Sung, Jung-Woo, Ki-Hun – Chu-Young
(Dong-Gook 81.)
Dómari: Frank de Bleeckere, Belgíu.
Áhorfendur: 82.174.
Grikkland – Nígería 2:1
0:1 Kalu Uche 16.
1:1 Dimitrios Salpingidis 44.
2:1 Vasileios Torosidis 71.
Lið Grikklands: Tzorvas – Kyrgiakos,
Vyntra, Papadopoulos, Torosidis – Karago-
unis, Tziolis, Sokratis (Samaras 37.),
Katsouranis, Salpingidis – Gekas (Ninis
79.)
Lið Nígeríu: Enyeama – Odiah, Yobo,
Shittu, Taiwo (Echiejile 55.) (Afolabi 77.) –
Kaita, Etuhu, Odemwingie (Obasi 46.),
Haruna, Uche – Yakubu.
Rautt spjald: Sani Kaita (Nígeríu)
Dómari: Oscar Ruiz, Kólumbíu.
Áhorfendur: 31.593.
Staðan:
Argentína 2 2 0 0 5:1 6
S-Kórea 2 1 0 1 3:4 3
Grikkland 2 1 0 1 2:3 3
Nígería 2 0 0 2 1:3 0
Leikir sem eftir eru:
22.6. Nígería – Suður-Kórea................ 18.30
22.6. Grikkland – Argentína ................ 18.30
B RIÐILL
Frakkland – Mexíkó 0:2
0:1 Javier Hernández 64.
0:2 Cuauhtémoc Blanco 79.
Lið Frakklands: Lloris – Sagna, Gallas,
Abidal, Evra – Govou (Valbuena 69.), Tou-
lalan, Ribéry, Diaby, Malouda – Anelka
(Gignac 46.)
Lið Mexíkó: Pérez – Osorio, Moreno, Ro-
dríguez, Salcido – Juárez (Hernández 55.),
Márquez, Torrado – Giovani, Franco
(Blanco 62.), Vela (Barrera 31.)
Dómari: Khalil al Ghamdi, Sádi-Arabíu.
Áhorfendur: 35.370.
Staðan:
Úrúgvæ 2 1 1 0 3:0 4
Mexíkó 2 1 1 0 3:1 4
Frakkland 2 0 1 1 0:2 1
Suður-Afríka 2 0 1 1 1:4 1
Leikir sem eftir eru:
22.6. Mexíkó – Úrúgvæ ........................ 14.00
22.6. Frakkland – Suður-Afríka .......... 14.00
A RIÐILL
Reuters
Sigurmark Vasileios Torosidis
tryggir Grikkjunum sigur.
Þjóð
endu
Suðu
mæt
riðli
við s
vonb
vilja
„T
bjug
sárir
land
virka
R
Stefán SölviPétursson
aflraunamaður
sigraði í keppn-
inni Sterkasti
maður Íslands en
keppnin fór fram
í gær og í fyrra-
dag. Keppnin
hefur verið hald-
in frá árinu 1985 og er ein sú elsta
sinnar tegundar í heiminum. Keppt
var í átta greinum og fjöldi áhorf-
enda lagði leið sína til að berja
kraftajötnana augum. Benedikt
Magnússon hafnaði í öðru sæti og
þriðji var Hafþór Júlíus Björnsson.
Með sigrinum tryggði Stefán sér
þátttökurétt í keppninni um Sterk-
asta mann heims sem fram fer síðar
á árinu.
Cuauhtémoc Blanco skoraðiseinna mark Mexíkó í 2-0 sigr-
inum á Frökkum í kvöld og varð þar
með þriðji elsti markaskorari HM-
sögunnar. Blanco var 37 ára og 151
dags gamall þegar hann skoraði í
gær úr vítaspyrnu. Blanco er þjóð-
hetja í Mexíkó og þetta afrek dreg-
ur varla úr vinsældum hans í heima-
landinu. Roger Milla frá Kamerún á
metið en hann var 42 ára og 39 daga
gamall þegar hann skoraði fyrir
Kamerún á móti Rússum á HM í
Bandaríkjunum árið 1994. Svíinn
Gunnar Gren átti metið þar á undan
en hann skoraði á HM í Svíþjóð árið
1958 þá tæplega 38 ára gamall.
Gren var samherji Alberts Guð-
mundssonar hjá stórliði AC Milan á
fimmta áratug síðustu aldar.
Fólk sport@mbl.is
Reyn
gam