Morgunblaðið - 18.06.2010, Síða 4
viðhorf til framfara í fótboltanum
síðustu tíu ár, hvað varðar leikskiln-
ing og tæknifærni. Svo var ég með
erindi á ársþingi KSÍ um þetta
mál,“ sagði Willum.
Gulli garfar í heimasíðunni
Félagslið á Íslandi eru áhuga-
mannalið og flestir leikmenn í dag-
vinnu svo æfingar eru oftast eftir 5
á daginn. Þjálfararnir fjórir sem
ekki eru í annarri vinnu segjast þó
hafa í nógu að snúast yfir daginn.
Heimir Guðjónsson þjálfari FH-
inga er til dæmis með bestu leik-
menn úr 2. og jafnvel 3. flokki á sér-
æfingum fyrripart dags, og Gunn-
laugur Jónsson þjálfari Vals sinnir
þeim flokkum einnig auk þess að
garfa í heimasíðu Valsmanna!
Guðmundur Benediktsson hefur
getið sér gott orð sem sjónvarpslýs-
andi síðustu misseri og lýsir fjölda
leikja fyrir Stöð2Sport og Stöð2-
Sport2. Nokkrir úr hópnum hafa
komið að slíkum lýsingum sem að-
stoðarmenn.
Ólafur Örn Bjarnason, nýráðinn
þjálfari Grindvíkinga, er svo í frek-
ar sérstakri stöðu í dag því hann er
enn leikmaður Brann í Noregi og
verður það til loka júlí. Að því loknu
mun hann verða spilandi þjálfari
Grindavíkur.
„Þetta eru algjör sauðnaut“
Þrír þjálfaranna eru í vinnu sem
við fyrstu sýn virðist ekkert tengj-
ast fótbolta. Heimir Hallgrímsson
er tannlæknir á eigin stofu í Vest-
mannaeyjum, vinnur þar fyrir há-
degi á sumrin, og hlýtur því að hafa
efni á smá menntahroka í garð
hinna þjálfaranna, eða hvað?
„Þetta eru náttúrulega algjör
sauðnaut, allir hinir,“ sagði Heimir
grafalvarlegur. „Nei, ég tel mig nú
ekkert vitrari en hina,“ bætir hann
svo við skellihlæjandi enda með
húmorinn í lagi eins og Eyjamanna
er siður.
Bitnar á fjölskyldulífinu
Með því að vinna á tannlækna-
stofu fyrir hádegi og þjálfa eftir há-
degi hefur Heimir sáralítinn tíma
fyrir sjálfan sig og það sama má
segja um Ólaf Þórðarson þjálfara
Fylkis sem á og rekur Bifreiðastöð
ÞÞÞ í samvinnu við bróður sinn. Þá
er Andri Marteinsson þjálfari
Hauka starfsmaður hjá Útflutnings-
ráði Íslands í fullu starfi árið um
kring.
„Þetta gengur alveg en bitnar
auðvitað á fjölskyldulífinu,“ sagði
Andri og flestir þjálfaranna taka
reyndar í nákvæmlega sama streng.
„Í þjálfarastarfinu 24/7“
Fjórir úrvalsdeildarþjálfarar í fullu starfi Tannlæknir, atvinnuknattspyrnumaður og
atvinnubílstjóri í hópnum Kennarastarfið er „draumadjobbið“ samhliða þjálfuninni
Morgunblaðið/Golli
Aldursforsetinn Logi Ólafsson er elstur þeirra sem nú þjálfa í efstu deild.
BAK VIÐ TJÖLDIN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Það færist sífellt í vöxt að þjálfarar
félagsliða hér á Íslandi einbeiti sér
alfarið að því að þjálfa liðin sín, það
er að segja sinni ekki annarri vinnu
samhliða. Ef rýnt er í upplýsingar
um þjálfara Pepsi-deildar karla,
sem sjá má hér í opnunni, sést að nú
eru þeir fjórir sem bera eingöngu
starfstitilinn þjálfari. Það eru þjálf-
arar Fram, Vals, FH og Breiða-
bliks.
Reynsluboltarnir kenna
Aðrir sinna, ýmist líkri eða ólíkri,
vinnu samhliða. Reynsluboltarnir í
hópnum, Logi Ólafsson þjálfari KR
og Bjarni Jóhannsson þjálfari
Stjörnunnar, eru til að mynda báðir
íþróttakennarar sem þeir segja að
sé hið fullkomna starf til að vinna
með þjálfuninni.
„Við erum í draumadjobbinu. Yfir
keppnistímabilið er nánast alveg frí
í skólunum en auðvitað skarast
þetta aðeins. Þetta passar mjög vel
saman,“ sagði Bjarni sem starfar
við svokallaða afreksbraut hjá
Borgarholtsskóla.
Willum Þór Þórsson hjá Keflavík
er þriðji kennarinn í hópnum en
hann færði sig fyrir þremur árum
upp í Háskólann í Reykjavík þar
sem hann kennir á íþróttafræðisviði
um stjórnun, fjármál og fótbolta.
Hann segir þjálfarastarfið og
kennsluna fara vel saman og nefnir
gott dæmi.
„Maður er náttúrlega í þjálfara-
starfinu 24/7, en þessi störf má nýta
í báðar áttir. Ég gerði til dæmis
könnun á meðal þjálfara í vetur um
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2010
Þjálfararnir í Pepsideildinni
spanna 20 ára aldursbil. Þrír
þeir yngstu eru allir 35 ára og
gætu því vel verið enn að spila
fótbolta. Svo er reyndar með
Ólaf Örn Bjarnason Grindvíking
sem er atvinnumaður í Noregi,
og Guðmundur Benediktsson
gæti átt eftir að leika með Sel-
fossi í sumar. Gunnlaugur Jóns-
son hjá Val er hins vegar hætt-
ur.
Logi Ólafsson hjá KR er 55
ára aldursforseti og Bjarni Jó-
hannsson er þremur árum
yngri. Að þeim undanskildum
hefur Andri Marteinsson þjálf-
ari Hauka, sem spilaði með fjöl-
mörgum liðum á sínum tíma,
spilað með eða á móti öllum hin-
um þjálfurunum, svo það má
vera ljóst að þeir tilheyra svip-
aðri kynslóð.
„Ég spilaði með Óla Þórðar
og Þorvaldi í landsliðinu, Will-
um hjá KR, og Óla Kristjáns
hjá FH. Svo spilaði ég á móti
Heimi Guðjóns og Heimi Hall-
gríms, Gulla Jóns, Luka Kostic
(innsk. nýhættur með Grinda-
vík) og Gumma Ben sem reynd-
ar fiskaði á mig víti á sínum
tíma,“ sagði Andri og fleiri
þjálfarar Pepsideildarinnar hafa
eflaust svipaða sögu að segja.
Andri spilaði sjálfur oftast
sem miðjumaður á sínum tíma
en nær allir þjálfararnir í deild-
inni voru miðjumenn eða varn-
armenn sem leikmenn. Guð-
mundur Benediktsson var þó
sóknarmaður eins og allir vita
en enginn markvörður er í
hópnum. sindris@mbl.is
Andri spilaði
með eða
á móti nán-
ast öllum
Bjarni Jóhannsson
Aldur: 52 ára.
Starf: Þjálfari Stjörnunnar og
íþróttakennari við Borgar-
holtsskóla.
Þjálfaraferill: Tók við Stjörnunni
haustið 2007 en þjálfaði áður
Þrótt Neskaupstað, Tindastól,
Grindavík, Breiðablik, ÍBV og
Fylki auk þess að vera aðstoðar-
þjálfari Eyjólfs Sverrissonar hjá
íslenska karlalandsliðinu. Bjarni
gerði ÍBV að Íslandsmeistara
1997 og 1998.
Lék með: Þrótti Neskaupstað,
Íþróttabandalagi Ísafjarðar, KA
og Tindastóli.
Lék sem: Vinstri bakvörður
eða miðjumaður.
Ólafur Þórðarson
Aldur: 44 ára.
Starf: Þjálfari Fylkis og annar
eigandi Bifreiðastöðvar ÞÞÞ þar
sem hann vinnur á daginn allt
árið um kring.
Þjálfaraferill: Tók við Fylki á
nýjan leik haustið 2008 en hefur
einnig þjálfað ÍA, sem hann
gerði að Íslandsmeistara 2001,
og Fram.
Lék með: ÍA, Brann (Noregi), Lyn
(Noregi) og Fylki. Lék 72
A-landsleiki og skoraði 5 mörk.
Lék sem: Miðjumaður.
Guðmundur Benediktsson
Aldur: 35 ára.
Starf: Þjálfari hjá Selfossi og
sjónvarpslýsandi hjá
Stöð2Sport og Stöð2Sport2 í
hlutastarfi.
Þjálfaraferill: Tók við Selfossi
haustið 2009.
Lék með: Þór, Geel (Belgíu),
Ekeren (Belgíu), KR og Val, og
gæti leikið með Selfossi. Lék 10
A-landsleiki og skoraði 2 mörk.
Lék sem: Sóknarmaður.
Logi Ólafsson
Aldur: 55 ára.
Starf: Þjálfari KR og íþrótta-
kennari við Menntaskólann við
Hamrahlíð.
Þjálfaraferill: Logi tók við KR í
júlí 2007 en hafði áður þjálfað
kvennalið Vals, Víking R.,
kvennalandsliðið, ÍA, karlalands-
liðið og FH. Hann gerði Víkinga
að Íslandsmeisturum 1991 og ÍA
að Íslandsmeistara 1995.
Lék með: FH í meistaraflokki.
Lék sem: Bakvörður og kant-
maður fyrstu árin en síðar sem
framherji, miðjumaður og í
lokin semmiðvörður.
Andri Marteinsson
Aldur: 44 ára.
Starf: Þjálfari Hauka og starfs-
maður Útflutningsráðs Íslands
árið um kring.
Þjálfaraferill: Andri tók við
Haukum haustið 2006 en hafði
fram að því þjálfað yngri flokka
víða og lengi auk þess að vera
spilandi þjálfari Fjölnis um
skamma hríð 1995.
Lék með: FH, Leiftri, Fylki, Þór
A., Fjölni, Lyn (Noregi), Víkingi
R. og KR. Lék 20 A-landsleiki og
skoraði eitt mark.
Lék sem: Sóknarsinnaður
miðjumaður með félagsliðum
en flesta landsleiki sem
bakvörður.
Ólafur Örn Bjarnason
Aldur: 35 ára.
Starf: Þjálfari Grindavíkur og
leikmaður norska úrvalsdeildar-
félagsins Brann til 25. júlí.
Þjálfaraferill: Tók við Grindavík
um síðustu mánaðamót.
Lék með: Grindavík, Malmö
(Svíþjóð) og Brann (Noregi)
þar sem hann leikur enn. Hefur
leikið 27 A-landsleiki.
Lék sem:Miðjumaður og síðan
miðvörður.
Þorvaldur Örlygsson
Aldur: 43 ára.
Starf: Þjálfari hjá Fram.
Þjálfaraferill: Tók við Fram
haustið 2007. Þjálfaði áður KA
og Fjarðabyggð.
Lék með: KA, Paderborn (V-
Þýskalandi), Nottingham Forest,
Fram, Stoke og Oldham. Lék 41
A-landsleik og skoraði 7 mörk.
Lék sem: Sóknarsinnaður
miðjumaður.
Gunnlaugur Jónsson
Aldur: 35 ára.
Starf: Þjálfari hjá Val.
Þjálfaraferill: Tók við Val
síðastliðið haust eftir að hafa
þjálfað Selfoss í fyrrasumar.
Lék með: ÍA, Uerdingen (Þýska-
landi), Kongsvinger (Noregi),
Örebro (Svíþjóð), Motherwell
(Skotlandi), KR og loks Selfossi.
Lék 12 A-landsleiki.
Lék sem:Miðvörður.
Heimir Hallgrímsson
Aldur: 43 ára.
Starf: Þjálfari ÍBV og tannlæknir á
eigin stofu í Vestmannaeyjum.
Þjálfaraferill: Hefur þjálfað
meistaraflokka ÍBV, bæði karla
og kvenna, og hefur verið með
karlaliðið samfleytt frá því í
ágúst 2006.
Lék með: ÍBV alla sína tíð.
Lék sem: Miðvörður.
Willum Þór Þórsson
Aldur: 47 ára.
Starf: Þjálfari Keflavíkur og
kennari við Háskólann í Reykja-
vík, í kennslufræða- og lýð-
heilsudeild á íþróttafræðisviði.
Þjálfaraferill: Tók við Keflavík í
haust en hóf þjálfaraferilinn með
Þrótti R. og tók svo við Haukum,
KR og Val og gerði tvö síðast-
nefndu að Íslandsmeisturum.
Lék með: KR, Breiðabliki og
Þrótti R.
Lék sem: Miðjumaður en hóf
ferilinn sem framherji.
Ólafur Helgi Kristjánsson
Aldur: 42 ára.
Starf: Þjálfari Breiðabliks.
Þjálfaraferill: Tók við Blikum
sumarið 2006 en var áður
þjálfari Fram og enn áður
aðstoðarþjálfari hjá AGF í
Árósum og þjálfari unglingaliðs
danska félagsins.
Lék með: FH, KR og AGF. Lék 14
A-landsleiki.
Lék sem: Vinstri bakvörður.
Heimir Guðjónsson
Aldur: 41 árs.
Starf: Þjálfari FH.
Þjálfaraferill: Tók við FH haustið
2007 eftir að hafa verið
aðstoðarþjálfari þar í tvö ár og
gerði liðið að Íslandsmeistara
2008 og 2009.
Lék með: ÍA, KR, KA, TG München
(Þýskalandi) og FH. Lék 6
A-landsleiki.
Lék sem: Miðjumaður.