Morgunblaðið - 04.12.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.12.2010, Qupperneq 1
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 íþróttir Skylmingar Íslandsmót barna í skylmingum með höggsverði fór fram í glæsilegum höfuðstöðvum íþróttarinnar undir stúku Laugardalsvallar. 4 Íþróttir mbl.is Í gærkvöldi var frumsýnd heimild- armyndin Gleði, tár og titlar sem Sighvatur Jónsson hefur haft yfir- umsjón með en myndin var gerð að frumkvæði leikmanna meistaraliðs ÍBV í knattspyrnu frá árunum 1997 og 1998. Við það tækifæri fékk Ingi Sigurðsson, þáverandi leikmaður liðsins, afhentan gullpening fyrir sigurinn í Íslandsmótinu 1998 en þá lögðu Eyjamenn KR að velli í síð- ustu umferð mótsins og tryggðu sér titilinn. Ingi fékk hins vegar aldrei peninginn þar sem hann meiddist í leiknum og var fluttur á sjúkrahús. Frá þessu er greint á vefsíðu Eyja- frétta. sport@mbl.is Fékk 12 ára gamalt gull Kristján Jónsson kris@mbl.is Úrvalsdeildarliðin Haukar, Fjölnir og Grindavík tryggðu sér í gær- kvöldi sæti í 8 liða úrslitum Powe- rade-bikarkeppninnar í körfuknatt- leik karla. Hamar og KR gerðu slíkt hið sama í kvennaflokki og 1. deild- arliðið Laugdælir komst einnig áfram. Fjölnir sigraði ÍR 112:90 þar sem Ben Stywall var stigahæstur hjá Fjölni með 24 stig. Kelly Biedler átti frábæran leik hjá ÍR en það dugði ekki til. Biedler skoraði 32 stig, tók 14 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Grindavík vann KFÍ í Grindavík 119:90 þar sem Ryan Pettinella skoraði 31 stig fyrir Grindvíkinga. Craig Shoen var með 32 fyrir KFÍ. „Sýndu þroskamerki“ Örvar Kristjánsson, þjálfari Fjölnis, sagði sína menn hafa sýnt þroskamerki. „Við byrjuðum alveg gríðarlega vel. Við pressuðum og héldum uppi miklum hraða enda skoruðum við 66 stig í fyrri hálfleik og höfðum 19 stiga forskot að honum loknum. Við vissum að ÍR-ingar yrðu grimmir í þeim síðari og sú varð raunin. Þeir ætluðu ekki að láta valta yfir sig á eigin heimavelli og tókst að minnka muninn niður í þrjú stig. Þá sneru mínir menn bökum saman og bættu aftur í. Með þeirri rispu sigldu þeir sigrinum nokkuð örugglega heim. Ég er ánægðastur með að strákarnir skyldu sína þroskamerki og ná að klára leikinn með sigri úr því sem komið var. Mót- herjarnir fá hrós fyrir að koma sér aftur inn í leikinn en mínir menn voru tilbúnir og ég er afar ánægður með þá,“ sagði Örvar þegar Morg- unblaðið ræddi við hann í gærkvöldi. Hann sagði það ekki sjálfgefið að sækja sigur í Seljaskólann. „Ég þekki það nú enda hef ég nokkrum sinnum á ferlinum dottið út úr keppnum í „Hellinum“. ÍR-ingar eru með geysilega flott lið og eru nú að fá Svenna Claessen inn í liðið aftur. Við settum þá hins vegar svolítið út af laginu í fyrri hálfleik auk þess sem ég fékk gott framlag frá mörg- um leikmönnum. Mér fannst breidd- in í hópnum skila sigrinum.“ Laugdælir í átta liða úrslit Topplið 1. deildar, Þór frá Þor- lákshöfn stóð í Haukum eins og við var að búast en úrvalsdeildarliðið landaði þó tíu stiga sigri 84:74. Laugdælir slógu út Ármann í slag 1. deilarliðanna með sigri 102:82. Öruggt hjá Hamri og KR Hamar sigraði 1. deildarlið Vals 67:50 í kvennaflokki. Fanney Guð- mundsdóttir var stigahæst hjá Hamri með 14 stig en María Björns- dóttir skoraði 13 fyrir Val. Íslands- meistarar KR sigruðu Stjörnuna 76:46 í Garðabænum þar sem Helga Einarsdóttir tók 20 fráköst hjá KR og skoraði 12 stig. Hjá Garðbæing- um var Amanda Andrews lang- stigahæst með 24 stig. Morgunblaðið/Ómar Efnilegir Jón Sverrisson og Ægir Þór Steinarsson áttu stóran þátt í sigri Fjölnis á ÍR í bikarkeppni KKÍ í Breiðholtinu í gærkvöldi. Fjölnir skor- aði 66 stig í fyrri hálfleik  Sló ÍR út úr bikarkeppninni  Þór Þorlákshöfn stóð í Haukum AG Kaupmanna- höfn vann góðan útisigur á Vi- borg, 26:23, í dönsku úrvals- deildinni í hand- knattleik í gær- kvöldi. AG hafði yfir 13:11 í leik- hléi. Íslensku lands- liðsmennirnir Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson létu að sér kveða hjá AG eins og jafnan áður. Arnór skoraði þrjú mörk í leiknum og Snorri gerði tvö. AG situr í toppsæti deildarinnar með 25 stig eftir þrettán leiki og er með fimm stiga forskot á Skjern og Århus Håndbold en þau eiga bæði leik til góða á AG. kris@mbl.is AG með fimm stiga forskot á toppnum Arnór Atlason Jakob Örn Sig- urðarson var stigahæstur með 21 stig hjá Sundsvall Dra- gons sem burst- aði Jämtland Basket 106:68 í sænsku úrvals- deildinni í körfu- knattleik í gær- kvöldi. Jakob gaf auk þess 8 stoðsendingar í leiknum. Samherji hans Hlynur Bæringsson, lét heldur ekki sitt eftir liggja og skoraði 11 stig og tók 10 fráköst. Helgi Már Magnússon átti mjög góðan leik hjá Uppsala sem þurfti þó að sætta sig við tap, 87:100, gegn Norrköping eftir framlengdan leik. Helgi skoraði 19 stig, tók 9 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. kris@mbl.is Jakob Örn stigahæstur Jakob Örn Sigurðarson Harpa Sif Eyjólfsdóttir er 23 ára gömul og er í hópi þeirra sextán handknattleikskvenna sem skipa íslenska landsliðið sem tekur þátt í fyrsta sinn í úrslitakeppni Evrópumóts. Harpa Sif er rétthent skytta en leikur mest í skyttu- stöðunni hægra megin á leikvellinum í sókn. Hún getur einnig leyst fleiri stöður auk þess að vera góður varn- armaður. Harpa Sif á að baki 27 landsleiki sem hún hefur skor- að í 60 mörk. Hún lék sinn fyrsta landsleik á Eiði í Færeyjum gegn landsliði heimakvenna 21. maí 2005. Ísland vann leikinn 31:14, og skoraði Harpa Sif þrjú mörk og var í tvígang vísað af leikvelli í tvær mínútur í hvort skiptið. Í sumar gekk Harpa Sif til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Spårvägens HF eftir að hafa leikið frá barnsaldri með Stjörnunni í Garðabæ. Hún hefur skorað 14 mörk í sænsku úrvalsdeildinni í vetur en Spårvägens HF er í fjórða sæti deildarinnar. ÚRSLITAKEPPNI EM KVENNA HEFST EFTIR ÞRJÁ DAGA Harpa Sif Eyjólfsdóttir Solveig Lára Kjærnested er 25 ára gömul og er í íslenska landsliðinu sem tekur þátt í úr- slitakeppni EM kvenna sem fram fer í Danmörku og Noregi. Solveig Lára er örvhent og leikur í hægra horni. Hún lék sinn fyrsta landsleik á Eiði í Færeyjum gegn liði heimakvenna 21. maí 2005. Hún hóf handknattleiksæfingar sem barn með ÍR en söðlaði um þegar komið var upp í 3. flokk og gekk til liðs við Stjörnuna í Garðabæ. Með Stjörnunni hefur hún leikið frá þeim tíma að undanskildu keppnistímabilinu 2004 til 2005 er hún var í röðum þýska 2. deildar liðsins TuS Weibern. Solveig Lára tók sér frí frá handknattleik á síðustu leiktíð vegna barnsburðar en hóf æfingar af krafti í vor og hefur leikið með Stjörnunni í haust og vetur. Hún hefur skorað 27 mörk í átta leikjum Stjörnunnar það sem af er leiktíðar. ÚRSLITAKEPPNI EM KVENNA HEFST EFTIR ÞRJÁ DAGA Solveig Lára Kjærnested

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.