Morgunblaðið - 15.03.2011, Page 1
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Aron Einar Gunnarsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, telur mjög lík-
legt að hann yfirgefi enska 1. deild-
ar liðið Coventry í sumar.
Samningur Arons rennur út í sum-
ar. Coventry hefur gert honum nýtt
tilboð en hann hefur ekki samþykkt
það.
Það urðu tíðindi í herbúðum Cov-
entry í gærmorgun en þegar Aron
og félagar mættu á æfingu var þeim
tilkynnt að knattspyrnustjóranum
Aidy Boothroyd hafi verið sagt upp
störfum. Hvorki hefur gengið né
rekið hjá liðinu og einn sigur í 16
síðustu leikjum gat ekki þýtt annað
en að stjóranum yrði sparkað.
„Það var mikill atgangur þegar
við mættum á æfinguna. Fjölmiðla-
menn úti um allt og stjórnarformað-
urinn fundaði með okkur leikmönn-
unum. Það er búið að ganga
skelfilega illa hjá okkur á árinu og
stuðningsmennirnir hafa verið mjög
óhressir með leikstíl liðsins og
hvernig því hefur verið stillt upp.
Menn hafa verið múlbundnir í sínum
stöðum en nú eru skilaboðin þau að
við megum vera frjálsari og hafa
gaman af því sem við erum að gera,“
sagði Aron við Morgunblaðið í gær.
Coventry leitar nú að nýjum
stjóra sem verður sá 10. í röðinni frá
því Gordon Strachan yfirgaf félagið
árið 2001. Boothroyd tók við liðinu
af Chris Coleman síðastliðið sumar
en Steve Harrison úr þjálfarateymi
Coventry mun taka við liðinu tíma-
bundið og stjórnar því í kvöld þegar
Coventry leikur við Burnley.
Nokkrir munu skrifa undir
hjá stórum félögum eftir EM
Aron kom til Coventry frá hol-
lenska liðinu AZ Alkmaar árið 2008
og hefur staðið sig vel en hann var
til að mynda útnefndur leikmaður
ársins af leikmönnum tímabilið
2008-09.
Spurður hvað taki við hjá honum
eftir tímabilið sagði Aron:
„Ég hef fengið tilboð um nýjan
samning en sé ekki fyrir mér að ég
skrifi undir hann meðan ástandið er
svona. Eins og staðan er núna tel ég
meiri líkur á að ég fari frá liðinu í
sumar. Það er spennandi tímar fram
undan með U21 árs liðinu. Ég er gíf-
urlega spenntur fyrir Evrópumótinu
og þar verður stór gluggi fyrir okk-
ur leikmennina. Ég reikna með því
að nokkrir úr U21 árs liðinu skrifi
undir hjá stórum félögum eftir
keppnina,“ sagði Aron Einar sem
verður í byrjunarliði Coventry í
leiknum gegn Burnley á Turf Moor í
kvöld.
Morgunblaðið/Golli
Á förum? Aron Einar Gunnarsson
hugsar sér til hreyfings.
„Meiri líkur á að ég fari“
Mikill atgangur á æfingasvæði Coventry í gær þegar knattspyrnustjórinn var
rekinn Aron Einar ætlar ekki að skrifa undir hjá félaginu að svo stöddu
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011
íþróttir
EM 2013 Útlit fyrir einvígi Íslands og Noregs um að komast beint í lokakeppni Evrópumóts-
ins í Svíþjóð. Erfiðari riðill en síðast. Íslenska liðið leikur fyrst við Búlgaríu á útivelli 2-3
Íþróttir
mbl.is
Á SVELLINU
Ólafur Þórisson
omt@mbl.is
„Við vorum alls ekki þreyttar, þetta
var frekar kæruleysi í lokin,“ sagði
Birna Baldursdóttir, leikmaður SA,
eftir sigur liðsins á Birninum í gær.
Þetta var annar leikur liðanna í úr-
slitakeppninni um Íslandsmeist-
aratitilinn. SA hafði betur í gær 3:2
og leiðir í einvíginu 2:0 en vinna þarf
þrjá leiki. Leikurinn var kaflaskipt-
ur en SA komst í 3:0 strax í fyrsta
leikhluta. Sarah Smiley skoraði
fyrsta markið, Hrund Thorlacius
bætti öðru marki við fyrir SA áður
en Birna Baldursdóttir kom gest-
unum í þriggja marka forystu. Ann-
ar leikhluti var mjög kaflaskiptur og
í raun ótrúlegt að hvorugu liðinu
tækist að skora. Markverðir liðanna
vörðu hinsvegar mjög vel. Í síðasta
leikhlutanum tók Björnin hinsvegar
öll völd á svellinu og uppskar mark
þegar 9 mínútur voru eftir af leikn-
um. Þá skoraði Hanna Rut Heim-
isdóttir. Aðeins 4 mínútum síðar
bætti Flosrún Vaka Jóhannesdóttir
við öðru marki og staðan því 2:3. Síð-
ustu mínúturnar voru æsispennandi
en Birna Baldursdóttir leikmaður
SA viðurkenndi að farið hafi um
hana eftir seinna mark Bjarnarins.
„Ég get ekki logið því, það fór
virkilega um mig. Mér leið eins og
með landsliðinu í Nýja-Sjálandi en
þá skoruðu þær á lokamínútunum og
ég var með hjartað í buxunum.“
SA er nú í góðri stöðu en næsti
leikur er á þeirra heimavelli annað
kvöld. „Staðan er góð, við höfum
verið að vinna þessa leiki og erum
með góðan mannskap. Ég ætla að
vinna dolluna heima. Reynslan gefur
okkur mikið þrátt fyrir að við séum
með unga leikmenn með. Þær eru
hinsvegar mjög færar og eru að
hjálpa okkur mikið,“ sagði Birna en
hún skoraði einnig þriðja mark SA
fyrir norðan. „Ég er mötuð þarna
frammi og það er frábært. Það er
svo gaman að skora.“
Á mbl.is eru viðtöl með mynd-
skeiðum við fyrirliða beggja liðanna.
Morgunblaðið/Golli
Góð staða Glaðbeittar Akureyrarkonur fagna einu markanna í Egilshöllinni í gærkvöld. Þær geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn annað kvöld.
„Var með hjartað í buxunum“
Björninn uppi við vegg SA í 2:0 og getur hampað titlinum á heimavelli
Það skýrist í vik-
unni hvort knatt-
spyrnumaðurinn
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson
gengur í raðir
sænska úrvals-
deildarliðsins
Norrköping eða
ekki. Gunnar,
sem ekki alls fyrir
löngu sneri heim
eftir sex ár erlendis og skrifaði undir
fjögurra ára samning við Eyjamenn,
hefur verið til reynslu hjá sænska
liðinu í æfinga- og keppnisferð þess
á Mallorca síðustu dagana og hafa
tilboð gengið á milli hans og félags-
ins.
Svöruðum með móttilboði
„Ég fékk tilboð frá félaginu sem
við svöruðum með móttilboði og ég
bíð bara eftir því að fá að vita hvað
kemur út úr því. Ég þarf að fá góðan
samning til að rífa mig og fjölskyld-
una upp frá Eyjum og ætli það séu
ekki svona helmingslíkur á að ég
semji við liðið en þessi mál skýrast í
vikunni,“ sagði Gunnar Heiðar við
Morgunblaðið í gær en hann skoraði
eitt mark og lagði tvö upp í æfinga-
leik með liðinu.
„Annars líst mér vel á liðið og leik-
mennina og ekki skemmir fyrir að
þjálfarinn er sá sami og ég var með
þegar ég spilaði með Halmstad,“
sagði Gunnar Heiðar en Janne And-
ersson er þjálfari Norrköping sem
er nýliði í sænsku úrvalsdeildinni í
ár. Undir hans stjórn hóf Gunnar at-
vinnuferilinn hjá Halmstad árið 2004
og árið eftir varð Eyjamaðurinn
markakóngur sænsku úrvalsdeild-
arinnar. gummih@mbl.is
Gunnar bíður
eftir svari frá
Norrköping
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson