Morgunblaðið - 16.03.2011, Side 1

Morgunblaðið - 16.03.2011, Side 1
KÖRFUBOLTI Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Henning Freyr Henningsson, fyrr- verandi landsliðsþjálfari kvenna í körfuknattleik og núverandi þjálfari Hauka, er sannfærður um að KR eigi enn erfiðari viðureign fyrir höndum gegn Keflavík þegar ljóst er að Margrét Kara Sturludóttir verð- ur ekki með KR vegna leikbanns. Liðin eigast við úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn. „Fyrirfram er Keflavík með betra lið en án Köru eiga þær engan möguleika. Ég er þeirra skoðunar að hún sé hjartað og sálin í KR-liðinu þannig að ég tel það næsta útilokað að þær komi til baka eftir tvo tap- leiki gegn Keflavík,“ segir Henning sem er sannfærður um að Keflavík vinni fyrstu tvo leikina í fjarveru Margrétar Köru. „Þetta hefur alvar- legar afleiðingar fyrir KR á þessu tímabili og þær munu detta út. Ég sé enga fylla skarð Köru hjá KR.“ Alltof vægur dómur Margrét Kara hlaut tveggja leikja bann fyrir óíþróttamannslega fram- komu í síðasta leik liðsins gegn Haukum, liðinu sem Henning þjálf- ar. Henning er ekki sáttur með störf aganefndarinnar en þar kemur eft- irfarandi fram: „Eftir að bil hafði myndast milli leikmannanna sveiflaði leikmaður nr. 9 (Margrét Kara Sturludóttir) hjá KR útréttri hægri hendi með krepptum hnefa af miklu afli sem lenti harkalega á kjálka leikmanns Hauka þannig að höfuð hans kipptist til og hann féll í gólfið.“ Í ljósi þessa og þeirrar stað- reyndar að hann var vitni að atvik- inu er Henning undrandi. „Mér finnst dómurinn alltof vægur. Þó svo að Kara sé frábær íþróttamaður er ég þeirrar skoðunar að ekki sé hægt að verja gjörðir hennar. Því hefði mér þótt eðlilegt að hún fengi fjóra til fimm leiki í keppnisbann. Þetta var tilefnislaus árás sem verður að taka alvarlega.“ Þá á aganefndin að segja af sér Spurður að því hvort tímasetn- ingin gæti haft áhrif á dóminn þar sem komið er fram í úrslitakeppnina sagði Henning: „Ef svo er þá á öll aganefndin að segja af sér.“ Það ber að taka fram að í vörn KR fyrir aganefndinni er ósjálfráðum viðbrögðum Margrétar Köru borið við og það ekki sagt hafa verið ætlun hennar að slá til leikmanns Hauka. Morgunblaðið/Kristinn Úr leik? Margrét Kara gæti hafa leikið sinn síðasta leik í vetur. Án Köru á KR ekki möguleika  Hjartað og sálin í liðinu, að sögn Hennings  Tveggja leikja bannið KR dýrt? MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2011 íþróttir Íþróttir mbl.is Kristján Jónsson kris@mbl.is „Við spiluðum alveg frábærlega á föstudaginn og komumst í úrslita- leikinn í okkar riðli þrátt fyrir að tvær úr byrjunarliðinu væru meiddar. Við vorum mjög spenntar og töldum okkur vera tilbúnar í slaginn en það virtist ekki vera því við lentum 2:16 undir í úrslita- leiknum. Okkur tókst þó að vinna okkur inn í leikinn og knúðum fram framlengingu. Vörnin var góð og við héldum þeim í 12 stigum skor- uðum í síðari hálfleik. Því miður duttu skotin ekki hjá okkur og þess vegna tókst okkur ekki að klára dæmið,“ sagði Helena Sverrisdóttir þegar Morgunblaðið náði tali af henni. Helena og samherjar hennar í TCU-skólanum í Dallas voru aðeins einum leik frá því að komast í 64- liða NCAA-úrslitakeppnina í banda- ríska háskólakörfuboltanum en töp- uðu fyrir Utah-skólanum eftir fram- lengingu í umræddum leik. Vilja spila sem lengst Í fyrra fékk TCU boð um að keppa í úrslitakeppninni fyrir góðan árangur í riðlinum en riðlarnir eru settir saman eftir staðsetningu skól- anna og því missterkir. TCU fékk hins vegar ekki boð að þessu sinni en mun þess í stað taka þátt í ann- arri keppni sem kallast WNIT. Hún fer fram samhliða NCAA og er byggð upp á sama hátt. Glæsilegum háskólaferli Helenu er því ekki lok- ið ennþá. „Einungis þessi tvö mót eru í boði eftir hefðbundið tímabil og fyrst við komumst ekki í úrslitakeppnina þá er gott að komast í þessa keppni. Sú staðreynd að við erum ennþá að spila, en ekki farnar í sumarfrí, er jákvæð og við reynum að fara eins langt og kostur er. Við höfum spilað saman undanfarin ár og með sama þjálfarann. Okkur langar því ein- faldlega að spila saman sem lengst og það er leiðinlegt að sá tími sé brátt á enda,“ sagði Helena enn- fremur við Morgunblaðið. Gott að komast í þessa keppni  Helena heldur áfram að spila með TCU þó að liðið sé úr leik í háskólakeppninni Áfram Helena Sverrisdóttir á fullri ferð í leik með TCU háskólanum. Kvennalið KR í knattspyrnunni hefur samið við bandarískan leik- mann að nafni Kathleen Smith. Hún er varnarmaður og getur bæði spilað sem miðvörður og í báðum bakvarðastöðunum. Kat- hleen hefur verið á reynslu hjá KR og var ákveðið að semja við hana en hún er 24 ára. Kathleen kemur frá Arizona State- háskólanum í Bandaríkjunum en áður spilaði hún með Berkeley- háskólanum í Kaliforníu þar sem Katrín Ómarsdóttir spilar núna. „Hún passar mjög vel inn í hóp- inn. Okkur vantaði einhverja sem gæti spilað alla línuna aftast og hún getur það. Ég er ekki með stóran hóp þannig að hún nýtist okkur vel,“ sagði Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari KR. Þá hefur félagið einnig samið við Elisu Berzins sem er samlanda Kathleen. Berzins spilar á miðj- unni og er mikill íþróttamaður að sögn Björgvins Karls. Hún kemur frá Iowa-háskólanum. omt@mbl.is Tvær nýjar í raðir KR-inga Reuters Hetjan Javier Hernández, framherjinn marksækni frá Mexíkó, sá um að koma Manchester United í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld en hann skoraði bæði mörk liðsins þegar það lagði Marseille, 2:1, í seinni leiknum á Old Trafford. Hér fagnar hann seinna markinu. »2 Ungt lið Ólafur Jóhannesson teflir fram ungu landsliði gegn Kýpurbúum í Nicosia. Tíu leik- menn úr 21-árs landsliðinu í hópnum en Eiður, Brynjar, Veigar og Árni voru ekki valdir. 3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.