Morgunblaðið - 24.03.2011, Page 2
Á VELLINUM
Skúli Sigurðsson
sport@mbl.is
Þrátt fyrir engin ummerki um inn-
brot þá var stórþjófnaður framinn í
Toyota-höll þeirra Keflvíkinga þegar
heimamenn sigruðu ÍR 95:90 eftir
framlengdan oddaleik milli þessara
liða. ÍR-liðið, sem spilaði hreint út
sagt eins og þeir sem með valdið fóru
í 38 mínútur, virtust kasta frá sér
sigrinum á ögurstundu.
Það verður aldrei of oft sagt að
vítaskotin geta verið þau mikilvæg-
ustu í leiknum. Það kom svo sann-
arlega á daginn í gær þegar ÍR-ingar
fóru á línuna, en á síðustu tveimur
mínútum venjulegs leiktíma fóru fjög-
ur rándýr víti forgörðum hjá þeim.
Keflvíkingar voru líkt og hákarlar
sem skynja blóðið í vatnsmassanum
og við hvert feilspor hjá ÍR virtust
þeir eflast og að lokum með smá
heppni og elju þá náði Thomas Sand-
ers líkast til sínu mikilvægasta frá-
kasti á ferlinum og jafnaði leikinn.
Sjálfstrausti Keflvíkinga óx ásmegin
og þeir skoruðu fyrstu 8 stig fram-
lengingarinnar. Margir hafa eflaust
haldið að þarna hefði feita konan ver-
ið byrjuð að hita upp rödd sína en ÍR
sýndu að þeir geta líka komið til baka
og með smá heppni hefðu þeir líkast
til getað náð annarri framlengingu en
í þetta skiptið datt það ekki fyrir þá.
ÍR-liðið getur vel við unað þó svo að
það sé lítil huggun en þeir komu til
Keflavíkur og fyrir löngu dæmdir úr
leik en sýndu svo spámönnum að þeir
áttu svo sannarlega heima í undan-
úrslitum. Keflvíkingar hætta hins-
vegar aldrei og þeir eru komnir
áfram og munu etja kappi við hinn
Reykjavíkurrisann, KR.
Hugsanlega vanari en þeir að
spila við svona aðstæður
„Við bara sóttum þetta síðustu
þrjár mínútur leiksins vil ég meina og
þeir brotna. Við hugsanlega vanari en
Barátta ÍR-ingurinn Kelly Biedler sækir að körfu Keflvíkinga í leiknum í gærkvöld.
Þjófnaður e
ÍR-ingar köstuðu frá sér sigrinum og Kefl
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Deildabikar karla, Lengjubikar
A-DEILD, 3. riðill:
FH – ÍR...................................................... 2:0
Viktor Örn Guðmundsson, Matthías Vil-
hjálmsson.
Staðan:
FH 6 6 0 0 11:2 18
ÍR 6 3 1 2 12:10 10
Grindavík 5 3 0 2 10:7 9
Fylkir 4 2 1 1 4:4 7
BÍ/Bolungarvík 4 2 0 2 6:4 6
Stjarnan 5 1 0 4 8:11 3
Haukar 4 1 0 3 3:6 3
Þróttur R. 4 0 0 4 1:11 0
Deildabikar kv, Lengjubikar
C-DEILD, 1. riðill:
Keflavík – Álftanes................................... 4:1
Belgía
Charleroi – Cercle Brugge ...................... 0:3
Arnar Þór Viðarsson lék ekki með Cercle
Brugge vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
Á VELLINUM
Símon Hjaltalín
sport@mbl.is
Oddaleik þurfti til að skera úr
um hvort Snæfell eða Haukar
færu í undanúrslit eftir að Hauk-
ar höfðu jafnað einvígið 1:1. Snæ-
fellingar áttu heimavallarréttinn í
Stykkishólmi sem þeir nýttu vel,
sigruðu 87:73 og eru komnir
áfram í undanúrslit þar sem þeir
mæta Stjörnunni. Eftir jafnan og
mjög skemmtilegan leik í fyrri
hálfleik tóku Snæfellingar af
skarið í þriðja leikhluta og höfðu
forystuna í sínum höndum til
loka en staðan í hálfleik var 46:42
fyrir Snæfell.
Ryan Amoroso skoraði 27 stig
fyrir Snæfell og tók 15 fráköst en
í liði Hauka var Gerald Robinson
stigahæstur með 22 stig og 14
fráköst. Munur var á leik Snæ-
fells í þessum leik og voru þeir
að berjast á móti annars spræku
liði Hauka sem höfðu komið aftan
að Snæfelli í viðureign liðanna
sem flestir spáðu Snæfelli 2:0 en
geta þó borið höfuðið hátt. Ingi
Þór, þjálfari Snæfells, var að
vonum kátur með sitt lið og hafði
greinilega farið vel yfir stöðuna
fyrir leikinn.
„Það var heilmikil hugarfars-
breyting hjá mínum mönnum og
tiltekt. Það var bara tekið til á
heimilinu og afraksturinn var
þessi leikur áfram í undan-
úrslitin. Haukar mega vera stolt-
ir af því hvernig þeir koma inn í
þessa seríu og spila hana eins og
þeir spiluðu best í vetur. Við höf-
um mætt þeim tvisvar og fengið
ranghugmyndir um hvers konar
lið þeir eru,“ sagði Ingi Þór.
„Þetta var bara þolinmæð-
isvinna út í eitt hjá okkur og jafn
leikur í fyrri hálfleik en við erum
loksins mættir í úrslitakeppnina
og byrjaðir að berjast af fullum
krafti.
Við vissum að þetta væri aldrei
öruggt en við ætluðum að gera
þetta saman sem lið. Við vissum
að við þyrftum að slíta þá frá
okkur á einhverjum punkti í
leiknum sem við vorum hand-
vissir um að við myndum gera en
bara hversu langan tíma það tæki
var það sem þolinmæðisvinnan
snerist um. Við ætluðum okkur
að klára þetta eins og enginn
væri morgundagurinn, svöruðum
þessu vel í þriðja hluta og héld-
um forystunni út leikinn,“ sagði
Ingi Þór.
Örn Sigurðarson, leikmaður
Hauka, bar sig vel eftir þetta ein-
vígi og benti á reynsluna í Snæ-
fellsliðinu sem gaf muninn á milli
liðanna þótt naumt hafi verið.
„Snæfell er bara reynt lið og
með erfiðan heimavöll að sækja
en við reyndum eins og við gát-
um. Mér fannst við ekkert sér-
stakir sóknarlega í seinni hálf-
leik, flýttum okkur of mikið og
nýttum ekki tímann. Við erum
svo sem alveg sáttir við að hafa
strítt deildarmeisturunum og
sigrað þá í einum leik í einvíginu
en auðvitað vildum við vinna. Við
erum að smella saman sem lið
þótt þetta sé svolítið seint að
okkar mati en við hefðum viljað
byrja að spila betur saman fyrr á
tímabilinu og spurning hvernig
þá hefði farið,“ sagði Örn.
„Tekið til á
heimilinu“
Íslandsmeistararnir náðu að leggja
nýliðana í oddaleik og mæta Stjörnunni
Á VELLINUM
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Í fyrradag tryggði Valur sér
sæti í Úrvalsdeild kvenna og í
gær fylgdu Valspiltar í kjöl-
farið með því að leggja Þórs-
ara á Akureyri í hreinum úr-
slitaleik. Leikurinn var jafn
fram að hálfleik en snemma í
þriðja leikhluta stungu Vals-
menn af og Þór átti fá svör
við góðum leik Hlíðarenda-
liðsins. Endaði leikurinn,
74:97.
Yngvi Gunnlaugsson þjálfar
bæði liðin hjá Val og hefur
því haft í nógu að snúast síð-
ustu daga.
„Þetta er mjög sætt. Loks-
ins erum við komnir í efstu
deild eftir sjö eða átta ár. Við
erum búnir að vera í úrslita-
keppninni nánast öll árin og
hún var þrálátur þröskuldur
og því gaman að komast loks
yfir.
Ég er búinn að vera með
liðið í tvö ár núna og þegar ég
tók við þá voru bara tveir
leikmenn eftir frá árinu áður.
Það eru samt margir hér með
stórt Valshjarta. Svo fengum
við smá liðsauka úr Vest-
urbænum, Borgarnesi og Ísa-
firði,“ sagði Yngvi við Morg-
unblaðið eftir leikinn. Þetta
eru bara strákar sem voru
klárir í slaginn og tilbúnir í
alvöru áskorun. Við hjá Val
vorum búin að setja það
markmið að öll liðin okkar
yrðu í efstu deild á 100 ára
afmælinu og nú er það komið.
Það var náttúrlega mikil
pressa á mér að uppfylla
þessi markmið en ég hef feng-
ið frábæran stuðning frá að-
alstjórn Vals og sérstaklega
frá framkvæmdastjóranum.
Ég vil bara þakka öllum sem
komu að þessu í ár. Nú verð-
um við að festa okkur í sessi í
Úrvalsdeildinni,“ sagði Yngvi
kampakátur í leikslok.
Valur í úrvalsdeildina
Valsmenn höfðu betur gegn Þór í hreinum úrslitaleik
Komnir upp Va
Morgunblaðið/Þórir Tryggvason
Skot Hart barist undir körfu Vals-
manna í Höllinni í gær.
Þýskaland
A-DEILD KARLA:
Göppingen - Wetzlar ........................ 35:23
Kári Kristján Kristjánsson skoraði 5
mörk fyrir Wetzlar.
Lemgo - Hannover-Burgdorf .......... 31:37
Vignir Svavarsson skoraði 6 mörk fyrir
Burgdorf, Hannes Jón Jónsson 3, Sigur-
bergur Sveinsson 1 en Ásgeir Örn Hall-
grímsson náði ekki að skora.
Gummersbach - Rheinland............... 34:26
Staðan:
Hamburg 25 23 1 1 811:647 47
Kiel 25 21 1 3 820:616 43
Göppingen 27 18 3 6 753:702 39
RN Löwen 25 18 3 4 797:713 39
Füchse Berlin 26 18 3 5 728:677 39
Flensburg 26 17 1 8 806:716 35
Magdeburg 25 14 2 9 752:706 30
Gummersbach 26 14 2 10 776:742 30
Lemgo 25 11 5 9 713:686 27
Grosswallst. 26 11 2 13 683:712 24
Wetzlar 26 9 2 15 663:748 20
Balingen 25 6 4 15 671:756 16
N-Lübbecke 24 6 3 15 664:705 15
Melsungen 26 6 3 17 680:766 15
Ahlen-Hamm 26 4 3 19 697:788 11
Burgdorf 26 5 1 20 685:797 11
Friesenheim 25 4 3 18 693:784 11
Rheinland 26 4 0 22 641:772 8
A-DEILD KVENNA:
Frankfurt/Oder - Vfl Oldenburg.....36:30
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði eitt
mark fyrir Oldenburg sem er í 5. sæti.
Danmörk
A-DEILD KARLA:
Mors-Try - Århus ............................. 28:36
Jón Þorbjörn Jóhannsson var ekki á
meðal markaskorara hjá Mors-Thy.
KIF Kolding - Lemvig...................... 27:27
Elvar Friðriksson er meiddur og lék
ekki með Lemvig.
AaB - Fredericia............................... 31:26
Ingimundur Ingimundarson skoraði 2
af mörkum AaB.
Noregur
A-DEILD KARLA:
Stord - Elverum................................ 28:38
Sigurður Ari Stefánsson skoraði 4 mörk
fyrir Elverum.
A-DEILD KVENNA:
Fredrikstad Bkl. - Larvik................ 17:46
Berglind Íris Hansdóttir er markvörð-
ur Fredrikstad. Hún varði 5 skot í leikn-
um.
Byåsen - Storhamar .............................. 24
Nína Björk Arnfinnsdóttir náði ekki að
skora fyrir Storhamar.
Tertnes - Levanger .......................... 28:25
Rakel Dögg Bragadóttir lék ekki með
Levanger sem Ágúst Jóhannsson þjálfar.
Frakkland
A-DEILD KARLA:
Ivry - Dunkerque.............................. 24:34
Ragnar Óskarsson skoraði 2 af mörkum
Dunkerque.
HANDBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Höllin Ak.: Akureyri – Haukar .................19
Framhús: Fram – Selfoss .....................19.30
Kaplakriki: FH – Valur.........................19.30
Varmá: Afturelding – HK.....................19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit kvenna, þriðji leikur:
Hveragerði: Hamar – Njarðvík ...........19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikarinn, Lengjubikar karla:
Víkingsvöllur: ÍBV – Víkingur .............17.30
Egilshöll: Valur – Fjölnir......................19.10
Egilshöll: Leiknir R. – HK ........................21
Í KVÖLD!
Stykkishólmur, Iceland Express-deild
karla, 23. mars 2011.
Gangur leiksins: 0:5, 7:7, 11:12,
15:16, 20:22, 30:29, 36:35, 46:42,
48:43, 59:45, 64:52, 69:56, 73:62,
78:64, 82:69, 87:73,
Snæfell: Ryan Amaroso 27/15 frá-
köst, Sean Burton 14/5 fráköst, Jón
Ólafur Jónsson 13/6 fráköst, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 13/6 stoðsend-
ingar, Zeljko Bojovic 9/8 fráköst,
Sveinn Arnar Davíðsson 6, Emil Þór
Jóhannsson 4, Atli Rafn Hreinsson 1.
Fráköst: 24 í vörn, 15 í sókn
Haukar: Gerald Robinson 22/14 frá-
köst, Semaj Inge 18/8 fráköst, Örn
Sigurðarson 16/6 fráköst, Haukur
Óskarsson 8, Sævar Ingi Haraldsson
6, Óskar Ingi Magnússon 2, Emil
Barja 1.
Fráköst: 25 í vörn, 8 í sókn.
Snæfell vann einvígi liðanna, 2:1.
Snæfell - Haukar 87:73