Morgunblaðið - 26.10.2011, Side 2
Ítalski knattspyrnumaðurinn Gennaro Gattuso, leikmaður
AC Milan, er staðráðinn í því að snúa aftur inn á völlinn en
hann hefur glímt við sjóntruflanir eftir að hafa lent í sam-
stuði við samherja sinn, Alessandro Nesta, í fyrstu umferð
ítölsku A-deildarinnar í byrjun september. Við höggið
skaddaðist taug í vinstra auganu með þeim afleiðingum að
hann hefur séð margfalt. Gattuso, sem hefur leikið með Míl-
anóliðinu, verður frá keppni í fjóra til sex mánuði til við-
bótar en hann þarf að gangast undir aðgerð á auganu.
„Líf mitt er fótbolti. Ég er heppinn maður. Fyrir þremur
vikum tjáðu læknar mér það að svo gæti farið að ég spilaði
aldrei fótbolta aftur en núna segja þeir að þetta líti betur
út. Fyrir nokkru var ég alvarlega hræddur um heilsu mína og líf en núna hef
ég farið í nokkrar rannsóknir og er öruggari. Það þarf meira en þetta til að
sigrast á mér. Ég vonast til að snúa fljótt inn á völlinn aftur,“ sagði harðjaxl-
inn Gsttuso við fréttamenn í gær. gummih@mbl.is
Gattuso ætlar að snúa til baka
Gennaro
Gattuso
Homare Sawa, lykilmaður í heimsmeistaraliði Japans í knatt-
spyrnu kvenna, og hin brasilíska Marta þykja líklegastar til
að verða fyrir valinu sem besta knattspyrnukona heims en
FIFA hefur tilnefnt tíu leikmenn sem koma til greina. Hinn
5. desember verður nöfnunum fækkað í þrjú og 9. janúar á
næsta ári verður kunngert hver hreppir hnossið.
Sawa var besti leikmaður Japana þegar þeir tryggðu sér
heimsmeistaratitilinn með sigri á Bandaríkjamönnum í úr-
slitaleik. Marta varð meistari með liði sínu Western New
York Flash í Bandaríkunum en hún hefur verið kjörin besta
knattspyrnukona heims fjögur síðustu árin.
Leikmennirnir tíu sem eru tilnefndir eru: Sonia Bompastor (Frakklandi),
Kerstin Garefrekes (Þýskalandi), Marta (Brasilíu), Aya Miyama (Japan), Alex
Morgan (Bandaríkjunum), Louisa Necib (Frakklandi), Homare Sawa (Japan),
Lotta Schelin (Svíþjóð), Hope Solo (Bandaríkjunum) og Abby Wambach
(Bandaríkjunum). gummih@mbl.is
Tíu fótboltakonur tilnefndar
Marta
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Maraþonhlauparinn og verðandi ól-
ympíufari, Kári Steinn Karlsson úr
Breiðabliki, mun keppa í einu mara-
þonhlaupi til viðbótar áður en hann
stígur á stóra sviðið í London næsta
sumar þar sem Ólympíuleikarnir 2012
fara fram. Kári tjáði Morgunblaðinu í
gær að hann yrði mjög líklega á meðal
keppenda í maraþonhlaupi í Miami í
lok janúar.
„Mér finnst líklegt að ég hlaupi í
Miami en það er ekki alveg öruggt. Ég
er að skoða að fara í æfingabúðir til
Suður-Afríku í janúar og mun þá æfa
þar með dönskum hlaupara sem ég
þekki ágætlega. Hann ætlar að vera
þar við æfingar í janúar og mér líst
nokkuð vel á það. Ég mun þá æfa þar
af krafti en þarf þá helst að ná einni
rólegri viku áður en ég keppi í Miami,“
sagði Kári í samtali við Morgunblaðið
og hann segist ætla að láta reyna á
þolrifin í þessu hlaupi.
Mun taka áhættu í Miami
„Það er engin pressa á mér í þessu
hlaupi, ólíkt því sem var í Berlín í
september þar sem ólympíulágmarkið
var undir. Ég mun því láta reyna á
þolið og fara hraðar af stað og hlaupa
til sigurs. Þetta verður gott hlaup til
að leggja inn í reynslubankann því
þarna get ég leyft mér að taka
ákveðna áhættu sem ég leyfði mér
ekki að gera í Berlín,“ útskýrði Kári
en rétt er að minna lesendur á að hann
hefur aðeins hlaupið eitt maraþon-
hlaup á ferlinum en það var Berl-
ínarmaraþonið sællar minningar. Kári
gerði sér þá lítið fyrir og náði ólympíu-
lágmarkinu, og setti Íslandsmet, en
áður var hann farsæll í millivega-
lengdum og á Íslandsmet bæði í 5.000
og 10.000 metra hlaupum.
Laus við stress í vetur
Nú þegar frá líður hlaupinu í Berlín
segir Kári það hafa verið afar mik-
ilvægt að ná lágmarkinu og þurfa ekki
að eyða vetrinum í að eltast við lág-
markið fyrir London. „Ég er rosalega
sáttur við að hafa náð lágmarkinu þó
að tíminn hafi ekki verið neitt spes að
mínu mati. Því hefði fylgt stress að
þurfa að reyna við lágmarkið í janúar
og æfingarnar í vetur hefðu þá miðast
við það. Fyrir vikið hefði maður
kannski verið eins og sprungin blaðra
þegar að leikunum kemur. Það getur
tekið mikið á andlega að vera lengi að
vinna að stóru markmiði eins og ól-
ympíulágmarki. Nú hef ég hins vegar
nægan tíma til að vinna í mínum und-
irbúningi fyrir leikana, bæði andlega
og líkamlega,“ sagði Kári en helsta
ástæða þess að hann náði ekki eins
góðum tíma í Berlín, og hann telur sig
geta náð, er sú að hann fékk krampa í
báða kálfana þegar hann átti enn
nokkra kílómetra eftir. „Ég reyndi að
gera þetta af skynsemi og koma mér
undir lágmarkið.“
Fleiri æfingaferðir á dagskrá
Kári segist hafa tekið sér um
þriggja vikna hvíld til að jafna sig eftir
hlaupið í Berlín en æfingar eru hafnar
hjá honum á nýjan leik og hann er að
teikna upp áætlun fyrir veturinn ef
svo má segja. „Ég mun æfa af krafti
hér heima fram að áramótum og þá
tekur væntanlega við ferðin til Suður-
Afríku. Fyrir utan hana á ég von á því
að fara utan í æfingabúðir um páskana
og einnig í maí. Mér finnst mikilvægt
að breyta reglulega um umhverfi en
maður getur orðið leiður á því að æfa
til lengdar í myrkrinu á klakanum.
Það er hins vegar ekkert að því að
hlaupa á Íslandi og hér á ég marga
góða æfingafélaga. Til að mynda eru
hérna frábærir stígar til að hlaupa á
og þannig er því ekki farið alls staðar.
Þegar ég var í námi í Berkeley þurfti
ég til dæmis að aka talsverða vega-
lengd til að finna almennilega stíga til
að hlaupa á. Næsta vor mun ég svo
keppa nokkrum sinnum í 10 kílómetra
hlaupum og hálfu maraþoni til þess að
vinna í hraðanum. Þá reyni ég að bæta
metin sem ég á í þessum greinum,“
sagði Kári ennfremur.
Ætlar sér upp fyrir Danann
Morgunblaðið birti á dögunum töl-
fræði yfir það hvar Kári stendur í
heiminum í samanburði við aðra
maraþonhlaupara sé tími hans í Berlín
notaður sem viðmið. Hann er á meðal
fimmtíu bestu í Evrópu og er með
næstbesta tíma Norðurlandabúa á
árinu en einungis Daninn Jesper
Faurschou hefur hlaupið maraþon
hraðar á þessu ári.
„Ég hafði gaman af því að sjá
hversu ofarlega ég var á meðal Norð-
urlandabúa. Ég hef reyndar oft keppt
við þennan Dana í styttri vegalengd-
um og hef oft unnið hann. Ég vona að
ég verði ekki lengi fyrir aftan hann á
þessum lista en það er fátt leiðinlegra
en að tapa fyrir Dönum. Vonandi fæ
ég tækifæri til að keppa á móti honum
á Ólympíuleikunum,“ sagði Kári léttur
en þess má geta að Faurschou hefur
hlaupið maraþon um nokkura ára
skeið.
Ferillinn rétt að byrja
Kári þykir ungur af maraþonhlaup-
ara að vera og segir þá oft á tíðum
toppa þegar þeir eru komnir yfir þrí-
tugt. Hann segir því mjög mikilvægt
fyrir sig að komast til London og öðl-
ast reynslu þar því hann eigi að vera
nær toppnum á sínum ferli á leikunum
2016 eða jafnvel 2020.
„Bestu maraþonhlauparar heims í
dag eru 38 ára og það eru dæmi um að
menn hafi sett heimsmet í greininni 35
ára gamlir. Ég er því hálfgerður byrj-
andi í þessari grein enn sem komið
er,“ útskýrði Kári sem er 25 ára gam-
all.
Þrjú góð hlaup á ári
Þykir honum ekki sérstakt til þess
að hugsa að hlaup hans á Ólympíu-
leikunum verði aðeins þriðja mara-
þonhlaup hans á ferlinum? „Jú, það er
ansi furðulegt og ef ég hefði ekki náð
lágmarkinu í Berlín hefði hlaupið í
London verið mitt annað hlaup á ferl-
inum að því gefnu að ég hefði náð lág-
markinu í janúar í staðinn. Þess vegna
verður hlaupið í Miami í janúar mér
mikilvægur skóli. Þar get ég betur
áttað mig á því hvar ég stend og
hversu hratt ég get hlaupið. Það fer
mikill tími í hvert maraþonhlaup og
reglan er sú að hægt sé að hlaupa þrjú
góð hlaup á ári. Menn geta svo sem
hlaupið maraþon reglulega en ekki ef
þeir ætla að ná alvöruárangri. Hvert
hlaup krefst sérhæfðs undirbúnings í
þrjá mánuði og að hlaupinu loknu tek-
ur þrjár vikur að ná þreytunni úr fót-
unum,“ sagði Kári Steinn Karlsson í
samtali við Morgunblaðið.
Þriðja hlaup
ferilsins á
Ól í London
Morgunblaðið/Ernir
Góður Kári Steinn Karlsson er byrjaður að undirbúa sig fyrir þátttökuna á
Ólympíuleikunum sem fram fara í London næsta sumar.
Kári Steinn stefnir á maraþon í Miami
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2011
England
C-DEILD:
Scunthorpe - Huddersfield......................2:2
Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki í
leikmannahópi Huddersfield.
Brentford – Stevenage .............................0:1
Bury – Notts County................................ 2:2
Carlisle – Sheff.Wednesday .....................3:2
Colchester – Bournmouth ........................1:1
Hartlepool – Tranmere.............................0:2
Preston – Oldham......................................3:3
Rochdale – Chesterfield ...........................1:1
Sheffield Utd. – MK Dons ........................2:1
Walsall – Exeter........................................1:2
Wycombe – Chester..................................1:2
Yeovil – Leyton Orient .............................2:2
Deildabikarinn, 4. umferð:
Aldershot – Man. Utd...............................0:3
Dimitar Berbatov 15., Michael Owen 41.,
Antonio Valencia 48.
Arsenal – Bolton .......................................2:1
Andrei Asrshavin 53., Park Chu-Young 56.
– Fabrice Muamba 47.
Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn
fyrir Bolton.
Cardiff – Burnley .....................................1:0
Josep Mason 40.
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
fyrir Cardiff.
Crystal Palace – Southampton ...............2:0
Darren Ambrose 72., Jermaine Easter 82.
(víti).
Ítalía
Juventus – Fiorentina...............................2:1
Staða efstu liða:
Juventus 8 4 4 0 13:6 16
Udinese 7 4 3 0 10:1 15
Lazio 7 4 2 1 11:7 14
Atalanta 7 4 2 1 10:8 14
Cagliari 7 3 3 1 8:5 12
Napoli 7 3 2 2 10:5 11
Spánn
Granada – Barcelona ................................0:1
Sevilla – Racing Santander ......................2:2
Staða efstu liða:
Barcelona 9 6 3 0 27:4 21
Levante 8 6 2 0 14:3 20
Real Madrid 8 6 1 1 28:6 19
Sevilla 9 4 5 0 10:6 17
Valencia 8 4 3 1 11:8 15
Málaga 8 4 1 3 10:11 13
Real Betis 8 4 0 4 10:13 12
Espanyol 8 4 0 4 7:11 12
Þýskaland
Bikarkeppnin
Hoffenheim – Köln ...................................2:1
Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í leik-
mannahópi Hoffenheim.
Unterhaching – Bochum .........................1:4
Hólmar Örn Eyjólfsson var ekki í leik-
mannhópi Bochum.
Dortmund – Dynamo Dresden ................2:0
Eintracht Trier – Hamburger SV ...........1:2
KNATTSPYRNA
Svíþjóð
Uppsala – Sundsvall .........................66:91
Hlynur Bæringsson skoraði 8 stig, tók
12 fráköst og átti 4 stoðsendingar, Jakob
Sigurðarson skoraði 25 stig, tók 3 frá-
köst og átti 1 stoðsendingu, Pavel Er-
molinskij skoraði 10 stig, tók 6 fráköst
átti 4 stoðsendingar hjá Sundsvall.
Solna – Stockholm 08.......................84:71
Logi Gunnarsson skoraði 16 stig, tók 3
fráköst og átti 4 stoðsendingar hjá
Solna.
Helgi Már Magnússon skoraði 4 stig
tók 2 fráköst hjá Stockholm 08
Borås – Jämtland..............................99:97
Brynjar Þór Björnsson skoraði 19 stig
og átti 4 stoðsendingar hjá Jämtland.
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin:
Ásvellir: Haukar – Fjölnir ................... 19.15
Hveragerði: Hamar – Njarðvík .......... 19.15
Vodafone-höllin: Valur – Keflavík .......19.15
HANDKNATTLEIKUR
Eimskipsbikarkeppni karla:
Grafarvogur: Fjölnir – HK.................. 19.00
Víkin: Víkingur – ÍBV .......................... 19.30
Í KVÖLD!
Meistaraflokkur karla
Húnar – SR............................................3:5
Mörk Húna: Arild Kári Sigfússon 1/1,
Matthías S. Sigurðsson 1/0, Falur Birkir
Guðnason 1/0, Bergur Árni Einarsson
0/1.
Refsingar Húnar: 32 mínútur
Mörk SR: Egill Þormóðsson 2/1, Daniel
Kolar 1/0, Robbie Sigurðsson 1/0, Gauti
Þormóðsson 1/0, Kristján Gunnlaugsson
0/1.
Refsingar SR: 8 mínútur.
Víkingur – Jötnar...............................12:1
ÍSHOKKÍ