Austurland - 09.11.1978, Síða 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 9. nóvember 1978
Fá Reyðfirðingar lœkni?
Helgi Seljan flytur nú ásamt Vil-
hjálmi Hjálmarssyni frumvarp til
laga um breytingu á lögum um heil-
brigðisjjjónustu. Frumvarpið lýtur
að því. að á Eskifirði verði heilsu-
gæslustöð með 2 læknum í stað eins,
sem nú er. Er þá reiknað með að
annar læknirinn sitji á Reyðarfirði.
Samkvæmt lögum um heilsugæslu-
stöðvar J>arf 2000 íbúa til að fá 2
lækna, og er Eskifjarðarhérað, sem
nær yfir Eskifjörð, Reyðarfjörð,
Helgustaðahrepp og þann hluta
Fáskrúðsfjarðarhrepps sem er á
suðurströnd Reyðarfjarðar, alveg
við þessi mörk með milli 1900 og
2000 íbúa.
Áhugi hefur verið mikill á því
hjá he'mamönnum að læknar yrðu
tveir, ekki síst á Reyðarfirði, par
sem íbúar eru á áttunda hundrað.
Liggja fyrir mjög eindregnar óskir
íbúa á öllu svæðinu, m. a. í formi
beinna samhykkta frá sveitarstjórn-
um.
Þegar heilsugæslulögin voru til
endurskoðunar í vor, flutti Helgi
ásamt Halldóri Ásgrímssyni breyt-
ingartillögu um þetta sama efni, en
hún var feld með tveggja atkvæða
mun. Þá var m. a. borið við lækna-
skorti, sem vissulega er alvarlegt
vandamál, en Helgi bendir á í grein-
argerð að hann er næstum eingöngu
bundinn við eins læknis stöðvar, svo
sem Djúpavogur er nú gleggst dæmi
um.
Vonandi fer Alpingi nú að ein-
dregnum vilja heimamanna og sam-
fykkir pessa breytingu, enda er
íbúafjöldinn eins og fyrr segir alveg
við mörkin.
Hér yrði um mikla úrbót að ræða
og mjög aukið öryggi fyrir Reyð-
firðinga með búsetu annars tveggja
lækna stöðvarinnar á Reyðarfirði,
svo sem sjálfsagt væri, ef lagabreyt-
ingin næði fram að ganga, segir að
lokum í greinargerð með frumvarp-
inu.
Sveitarstjórnarrdðstefna Alþýðubandolagsins
Mikið og öflugt starí fer nú fram
á vegum Alþýöubandalagsins vítt
um land, ef marka má af þeim fund-
um og ráðstefnum, sem haldnar hafa
verið að undanförnu og stefnt er
að því að halda á næstunni. Fyrir
stuttu er lokið landsfundi ungra
sósíaiista og ársfundi verkalýðsmála-
ráðs, en 17. til 19. nóvember næstk.
verður flokksráðsfundur haldinn.
Þá hefur AB boðað til ráðstefnu
um sveitarstjórnarmál, dagana 24.
og 25. nóvember næstk. Ráðstefnan
hefst kl. 14.00 í Þinghól í Kópavogi.
Til hennar er boðið öllum kjörnum
fulltrúum AB í sveitarstjómum eða
varamönnum þeirra (ef aðalmenn
geta ekki mætt).
Ráðstefna þessi er nýmæli í starfi
AB enda urðu nokkur tímamót í
flokksstarfinu að loknum síðustu
kosningum en þá fjölgaði fulltrúum
AB í sveitarstjórnum verulega. AB
er nú forystuaflið í stjórn fjölmargra
bæjar- og sveitarfélaga um land allt.
Því er þýðingarmikið að þeir geti
hist og kynnst svo þeir eigi hæg-
ara með að leita eftir upplýsingum
og ráðleggingum hver hjá öðrum.
Markmið ráðstefnunnar er að
samræma og marka stefnu AB í
sveitarstjórnarmálum. Auk þess sem
koma þarf samstarfi sveitarstjórnar-
manna í fastan farveg líkt og orðið
er hjá fulltrúum okkar í verkalýðs-
hreyfingunni með Verkalýðsmála-
ráði flokksins og starfinu þar.
í boðaðri dagskrá er gert ráð fyr-
ir að fyrri daginn verði framsögu-
erindi og umræður um umdæma-
skipunina, verkaskiptingu ríkis- og
sveitarfélaga og síðast en ekki síst
tekjustofna sveitarfélaga.
Þessi mál hafa verið mikið til um-
ræðu að undanförnu og eru nú í
brennideplinum hjá sveitarstjórnar-
mönnum.
Síðari daginn er svo hugmyndin
að ræða stefnumál AB í sveitar-
stjórnum.
Frá Búnaöarfélagi Vopnafjarðar
Vegna þess uggvænlega ástands
sem er að skapast með aukinni út-
breiðslu riðuveiki í sauðfé á Austur-
landi, boðaði Búnaðarfélag Vopna-
fjarðar til fundar með bændum að
tilhlutan dýralæknisins í Norðaust-
urlandsumdæmi, Ragnars Ragnars-
sonar, sem hafði þar framsögu um
riðuveiki og varnir gegn henni. Nú
hefur veikin borist norður yfir
Jökulsá á Brú, þar sem hún hefur
verið staðfest á Brú á Jökuldal, og
stóreykst því hætta á að hún breið-
ist um Norðausturlandið sé ekkert
að gert.
Bændur úr Vopnafirði fjölmenntu
til fundarins, og einnig mættu þar
tveir stjórnarmenn úr Búnaðarsam-
bandi Norður-Þingeyinga.
Á fundinum ríkti mikill einhugur
um að einskis yrði látið ófrestað að
hefta útbreiðslu veikinnar, eins og
eftirfarandi ályktun ber með sér, en
hún var samþykkt samhljóða.
Fundurimi skorar á Sauðfjár-
veikivarnir, landbúnaðarráðherra og
þingmenn Austurlandskjördæmis og
Norðurlandskjördæmis eystra, að
gera allt sem í þeirra valdi stendur
til að hefta útbreiðslu riðuveikinnar
inn á áður ósýkt svæði, og tryggja
nægilegt fjármagn til framkvæmda.
Hvað varðar varnir hér á Norð-
austurlandi vill fundurinn benda á
eftirfarandi:
1. Að öllu fé á Brú á Jökuldal verði
slátrað nú í haust, og sótthreins-
un og aðrar varúðarráðstafanir
gerðar eins og talið er áhrifa-
mest.
2. Að stofnað verði nýtt sauðfjár-
veikivarnarhólf sem nái frá
Jökulsá á Fjöllum að Jökulsá á
Brú, og sett niður ristarhlið
beggja vegna við allar brýr á án-
um.
3. Fundurinn fer ákveðið fram á
fullar bætur Brúarfólkinu til
handa, fyrir það tjón og tekju-
missi sem hlýst af þessum ráð-
stöfunum.
Ekki er að efa að þessi mál eiga
eftir að skapa fjörlegar og skemmti-
legar umræður á ráðstefnunni, sem
svo leiða lil stefnumótunar. Til að
mótun þeirrar stefnu, sem mörkuð
verður takist sem best, er nauðsyn-
legt að einstakar félagsdeildir taki
þessi mál til umræðu og undirbúi
sína fulltrúa í sveitarstjórnum sem
best undir ráðstefnuna.
Um leið og ailir sveitarstjómar-
menn AB eru hvattir til að sækja
ráðstefnuna er rétt að benda þeim á
aðra ráðstefnu, sem þeir ættu að
sækja í leiðinni. En það er hin ár-
lega fjármálaráðstefna Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Á þeirri ráð-
stefnu er að fá ýmsar þýðingarmikl-
ar upplýsingar, sem að gagni mega
koma við gerð fjárhagsáætlana.
Að lokum er rétt að undirstrika
að hið mikla traust sem AB var
sýnt í síðustu sveitarstjórnarkosn-
mgum krefst mikils starfs jafnt inn-
an flokks sem utan. — L.K.
'uvwwwi wv\ unvvvnvuuvvunvnvtvvuu \ w vn\ wwu v\\ vvu v wwvww vwv\ wvwvv
Norðfirðingar athugið
<
Þeir sem hafa að láni frá okkur fiskikassa ásamt ýmsu öðru \
eru vinsamlega beðnir að skila þeim nú þegar.
Síldarvinnslan hf.
U\\\W\ WWWWW WVWWWW VWVWWWVN \-W W”\ \
wvwww ww\»
\\ \' \ wwv vw
wwwuw nuu wwwwvwwwvwwwwwv\\\\vvw vww\\a\a\\ wvwwv\\ w w ww vwwvw
Ferð eldri borgara
á Norðfirði
I Fyrirhuguð er leikhús- og skemmtiferð til Reykjavíkur með
? eldri borgara á Norðfirði (65 ára og eldri) helgina 23.—27. nóv.
Ín. k. Dvalið verður á Hótel Loftleiðum. Farið verður í leikhús og i
farnar skoðunar og kynnisferðir í nágrenni Reykjavíkur. :
S Þeir sem áhuga hafa á þátttöku í ferðinni, skrái sig hjá Svavari %
; Stefánssyni í síma 7127 eða Vali Þórarinssyni í síma 7613 fyrir 12. í
| nóvember n. k. Allar nánari upplýsingar fást hjá þeim. t
% NEFNDIN í
? ;
'WWVW VVUWWWVWU vvwvwvwvwvwvwvwvwwvwvvvwwwwvw vwvvwvwwvwvvw wv%