Austurland - 09.04.1981, Blaðsíða 3
Stiklur
Framh. af 4. síðu.
yrði of langt mál að ræða þetta
frekar, en innst inni finnst mér,
að síhungraður maður eða bam,
sé eða verði fatla.ð. Nú, þegar
langt er liðið á mars 1981, sé ég
engin merki þess að til breytinga
horfi hér á bæ. Kannski vamaði
það lesendum Austurlands svefns,
ef ég lýsti ýmsu, sem hér telst
daglegt brauð. Allavega sé ég ekki
að fótalausi maðurinn, sem situr
utanvið pósthúsið og réttir út
hend:na hafi öðlast nýja trú á
lífið. Sömuleiðis sýnist ævi blinda
drengsins, sem situr daglangt á
tröppunum í aðalstrætinu, hafa
tekið litlum breytingum. Móðir
hans styður hann heim að kveldi
og ég er ekki viss um að hún viti
að árið 1981 er ár fatlaðra sam-
kvæmt ákvörðun Sameinuðu þjóð-
anna. Ég vona samt að viðleitni
Sameinuðu þjóðanna í þessa veru
beri árangur einhversstaðar og
sem fyrst, en með hliðsjón af
reynslunni: „Verum ekki of bjart-
sýn“. Umfram allt, verum sjálf
þátttakendur, en ætlum ekki öðr-
um að leysa málin.
ÍSLENDINGAR AFBÆIS
Okkur hjónum er ekki vorkunn
að „troða marvaðann" í annarri
heimsálfu um 18 mánaða skeið.
Kannski gegnir öðru máli með
börnin. Bjartur er með hugann
við fótboltann. f>ó ég stelist til að
leyfa honum að keyra Renault
tíkina annað slagið og trillan sé
föl til veiða og útivistar þegar ég
er viðlátinn, er stundum angur í
drengnum. Hann þráir hið frjálsa
veiði — og fjallalíf og — fót-
bolta. Bryndísi er heldur ekki
sama hvar hún er stödd. Fyrir
skömmu sendi hún skólanum
(bekknum sínum) bréf og ég vona
að einhverjir krakkar nenni að
skrifa þeim. Annars var hér tom-
bóla í dag (Bryndís og dóttir vél-
stjórans) og nóg að gera. Fyrir
hér um bil 10 dögum var hér
Carnival og mikið hullumhæ. Við
vorum tvo daga að útbúa Bjart
og félaga hans sem víkinga, en
Bryndfs og Kristín (dóttir vél-
stjórans) voru skartklæddar. Allir
skemmtu sér vel.
AUSTURLAND —
BLAÐIÐ OG ÉG
Póstsamgöngur eru ekki sem
skyldi hér um slóðir, en Austur-
Iandsblaðið, sem ég fékk í dag,
er glænýtt. Hinsvegar vantar fjöl-
mörg blöð á milli. Ég á þó von á
að allt, sem póstlagt er heima,
skili sér fyrr eða síðar.
Ég byrjaði að bera út Árblik
Iíklega sex ára gamall og mig
minnir að ég hafi selt Austurland
til 12 eða 13 ára aldurs eftir að
Árblik var úr sögunni. Þessvegna
meðal annars, vona ég að mér
hlotnist að fá blaðið sent í út-
legðina. Okkur finnst stundum
þegar blaðið berst, að smáangi að
heiman sé að teygja sig hingað
suðureftir.
Bíll til sölu
Fiat P 125 árgerð 1980.
Uppl. í síma 7289, Neskaupstað.
EFNALAUGIN
NESKAUPSTAÐ
verður opin 13.—15. og 18. aprfl.
NES - APÓTEK
Fræ og laukar í miklu úrvali.
Frá og með 21. apríl verður
opnunartími frá 9—12 og 1—6.
ÍBÚÐIR TIL SÖLU
Byggingafélagið BYGGÐ HF.
í Neskaupstað
- hefur nú aftur til sölu nokkrar íbúðir í fjölbýlishúsi
tveggja hæða við Lyngbakka.
íbúðimar eru af 4 gerðum:
5 herbergi og eldhús 123 ferm.
3 herbergi og eldhús 100 ferm.
2 herbergi og eldhús 73 ferm,
og einstaklingsíbúðir 45 ferm.
í húsinu er sérstök sameiginleg sorpgeymsla innanhúss,
herbergi fyrir bamavagna og reiðhjól og leikherbergi
fyrir böm.
Upplýsingar gefa: Kristinn ívarsson síma 7468
Steindór Björnsson síma 7266
Ivar S. Kristinsson síma 7223.
Sölu annast Viðskiptaþjónusta Guðmundar Ásgeirsson-
ar. Melagötu 2 sími 7677 og þar eru teikningar til
sýnis og aðrar upplýsingar gefnar.
Byggingaiélugið BYGGÐ HF.
f Neskaupstað
I______________________
HÚS TIL SÖLU
Til sölu húseignin Heimatún 4. Hlöðum Fellahreppi.
Tilboð óskast. — Upplýsingar í síma 4135 eftir kl. 19.
ÍBÚB TIL SÖLU
Til sölu er 100 m2 íbúð í fjölbýlishúsinu Nesbakka
19—21, Neskaupstað.
íbúðin er byggð samkvæmt ákvæðum laga um leigu-
og söluíbúðir sveitarfélaga.
Umsóknir um íbúðina skulu berast til stjómar verka-
mannabústaða í Neskaupstað fyrir 23. )>. m.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um húsnæðis-
aðstöðu, fjölskyldustærð og tekjur og eignir sl. frjú
ár, staðfestar af skattstjóra.
Stjórn verkamannabústaða
í Neskaupstað
Árshdtíð
Nesskóla verður haldin í Egilsbúð föstudaginn 10.
apríl kl. 4.00 og 8.30 s. d.
Fjölbreytt skemmtidagskrá. — D A N S —
Aðgangseyrir kr. 15 fyrir böm og kr. 35 fyrir fullorðna.
Skemmtinefndin
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð við
andlát og jarðarför
ÞÓRÐAR SVEINSSONAR
frá Skógum í Mjóafirði.
Aðstandendur hins látna
ÞJÓFAR í KLÍPU
Hörkuspennandi litmynd um bíræfna j?jófa og gamlan
lögreglumann. Sýnd fimmtudaginn 9. apríl kl. 9. Aðal-
hlutverk Sidney Poitier og Bill Cosby. — Leyfð.
BARNASÝNING Sunnudaginn kl. 3, nánar í sýningar-
glugga.
VALENTÍNO
Þetta er kvikmynd um hið mikla kvennagull sem uppi
var á tímum pöglu myndanna. Aðalhlutverk Rudolf
Nureyv og Leslei Caron. Sýnd sunnudag kl. 9.
SKOT í MYRKRI
Hin sprenghlægilega gamanmynd með Peter Sellers í
aðalhlutverki. Þetta mun vera besta gamanmynd sem
hann hefur gert. Sýnd mánudaginn 13. apríl kl. 9.
Síðasta sinn. ■— Leyfð.
SENDIFÖRIN
Heimsfræg sænsk mynd um sendiför sænsks erindreka
til Suður-Ameríku, með aðalhlutverk fara heimskunnir
leikarar, svo sem Tomas Hellberg, Christopher Lee og
Calolyn Seymour. — Sýnd Jmiðjudag kl. 9. — Síðasta
sinn.
tpn neskaupstaður
IIrss?
Olíustyrkur
Olíustyrkur fyrir október—desember verður greiddur
næstu daga.
BÆJARSTJÓRI
KÖNNUN
Könnun á húsnæðisjwrf samkv. ákvæðum laga nr.
51/1980 fer fram í Neskaupstað frá 13. til 30. J>. m.
Þeir sem hafa hug á að sækja um íbúðir í verkamanna-
bústöðum j>urfa að láta skrá sig á Bæjarskrifstofunum
fyrir 30. J>. m.
Lán til íbúða í verkamannabústöðum eru allt að 80%
af byggingarkostnaði en 20% j?arf umsækjandi að
greiða fyrir afhendingu íbúðar.
Fundur verður síðar haldinn með j>eim sem láta skrá
sig og verða Jmr veittar nánari upplýsingar.
Réttur til kaupa á íbúð í verkamannabústöðum er
bundinn við J>á. sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) Eiga lögheimili í hlutaðeigandi sveitarfélagi.
b) Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi eign í öðru
formi.
c) Hafa haft í meðaltekjur J>rjú síðustu árin áður en
úthlutun fer fram eigi hærri fjárhæð en sem svarar
gkr. 5.952,- pús. og að auki gkr. 526,- J>ús. fyrir
hvert barn á framfæri innan 16 ára aldurs.
Stjórn verkamannabústaða
í Neskaupstað
Frd Núttúrugripnsaíninu
Neskuupstuð
Sýning safnsins verður opin um páskana. Dagana
16,—23. apríl frá kl. 16—18.
SAFNVÖRÐUR