Austurland - 25.01.1996, Blaðsíða 1
Velta Síldarvinnslunnar hf.
3.1 milljarður á síðasta ári
Skipalœkur í Fellahreppi.
Ljósm.SÞ.
NESKAUPSTAÐUR
_______________ Velta Síldar-
vinnslunnar hf. var 3.1 mill-
jarður króna á siðasta ári og er
það svipað og árið þar á undan.
Að sögn Finnboga Jónssonar
framkvæmdastjóra voru rekstrar-
tekjur svipaðar í fyrra og árið
1994, en endanlegar afkomu-
tölur fyrirtækisins liggja ekki
fyrir fyrr en um hálfum mánuði
fyrir aðalfund.
Aflaverðmæti skipa Síldar-
vinnslunnar á síðasta ári var
tæplega 1280 milljónir, sem er
um 40 milljón króna meira afla-
verðmæti en 1994. Heildarafli
þeirra var rúmlega 68 þúsund
lestir og skiptist þannig á milli
skipa: Barði 1613 lestir, afla-
verðmæti 224.7 millj. þess ber
að geta að í verðmætatölu Barða
er einnig loðnufrysting. Beitir
20.737 lestir, aflaverðmæti 173.3
millj. en Beitir var frá veiðum í
fjóra og hálfan mánuð vegna
breytinga. Bjartur 2.780 lestir,
aflaverðmæti 212.6 millj.
Blængur 2.081 lest, aflaverð-
mæti 443 millj. Börknr 41.000
lestir, aflaverðmæti 225.9 millj-
ónir.
Nú er lokið við að steypa
grunn undir viðbyggingu við
loðnubræðslu og verður húsið
reist í febrúar eða mars og tæki
eru væntanleg í mars. Aætlað er
að þessar framkvæmdir við
loðnubræðsluna kosti um 400
milljónir króna.
Rís Hótel Örk í Fellahreppi?
Við undirskrift samningsins á skrifstofu bcejarstjóra á sunnudaginn.
F.v. Guðmundur Bjarnason bœjarstjóri, Viðar Þorkelsson
útibússtjóri og Magnús Jóhannsson fjármálastjóri Neskaupstaðar.
Ljósm. Eg.
FELLAHREPPUR
____________ Samkvæmt heim-
ildum blaðsins hyggst Jón Ragn-
arsson eigandi Hótel Arkar í
Hveragerði byggja hótel, vænt-
anlega Hótel Örk i Fellabæ og
munu framkvæmdir jafnvel
heijast í sumar. Jón Ragnarsson
sagði í samtali við Austurland
að vissulega væru þessi mál í at-
hugun. Hann hafi verið að skoða
ýmsa valkosti í sambandi við
hótelbyggingu á þessu svæði en
allt hafi þetta byrjað þegar hluta-
bréf Egilsstaðabæjar í Hótel
Valaskjálf voru auglýst til sölu.
Jón sagði að ekki hefði náðst
samkomulag við bæjaryfirvöld
um kaup á bréfunum og því
hefði hann farið að skoða aðra
valkosti og þeir væru ýmsir.
í raun er þetta allt á viðræðu-
stigi sagði Jón. Ég á í samninga-
viðræðum við landeigendur á
Skipalæk og ég met það sem svo
að hótel þar sé mun vænlegri
kostur en það sem ég hafði
hugsað í upphafi. í landi Skipa-
læks er einn fallegasti staður
sem ég hef fundið fyrir hótel-
byggingu og útsýnið yfir fljótið
og umhverfið allt, er er yndislegt
Hvort þessar þreyf-inar enda
með hótelbyggingu er ómögu-
legt að segja til um á þessari
stundu. Ég get þó bætt því við
sagði Jón að þær markaðs-
kannanir sem ég hef látið gera
lofa góðu, en þetta skýrist allt
með vorinu..
Fyrsti samningur sinnar tegundar
milli sveitarfélags og banka
NESKAUPSTAÐUR
Nýlega var
undirritaður þjónustusamningur
milli Landsbankans annars
vegar og bæjarsjóðs Neskaup-
staðar hins vegar um fjámögnun
og innheimtu fasteignagjalda.
Samkvæmt samningnum mun
útibú Landsbankans í Neskaup-
stað annast innheimtu allra
fasteignagjalda, vegna álagning-
ar ársins 1996 og annast uppgjör
við bæjarsjóð samkvæmt nánara
samkomulagi. Samningur þessi
er sá fyrsti sinnar tegundar sem
gerður hefur verið á milli
sveitarfélags og banka, að sögn
Viðars Þorkelssonar útibússtjóra
Landsbankans í Neskaupstað.
Viðar segist fagna því að
bæjarsjóður Neskaupstaðar hafi
ákveðið að vera brautryðjandi á
þessu sviði og bendir á að
bankinn geti boðið fjölbreyttari
greiðslutilhögun fasteigna-
gjalda en áður hafi tíðkast m.a.
beingreiðslur og greiðsludreif-
ingu gjaldanna á tólf mánuði.
Að sögn Guðmundar Bjama-
sonar bæjarstjóra mun hið nýja
fyrirkomulag hafa í för með sér
verulega hagræðingu í rekstri
bæjarskrifstofunnar.
Ekki ' liggur fyrir hver
upphæð fasteignagjalda í Nes-
kaupstað verður í ár en reikna
má með samkvæmt fjárhags-
áætlun síðasta árs að álagning
verði í heild rúmlega fimmtíu
milljónir króna, þar af em
fasteignagjöld af eignum
bæjarsjóðs um fimm milljónir
króna.
I meirihluta í hálfa öld
NESKAUPSTAÐUR
_____________ Næstkomandi
laugardag 27. janúar er hálf öld
síðan vinstri meirihluti komst
til valda i bæjarstjóm Nes-
kaupstaðar. Það var Sósíalista-
flokkurinn forveri Alþýðu-
bandalagsins sem þá fékk fimm
menn kjöma og hefur félags-
hyggjufólk þ.e. í dag Alþýðu-
bandalagið, haldið þessum
meirihluta síðan.
A þessum fimmtíu ámm
hefúr það gerst þrisvar sinnum
að meirihlutinn hefur haft sex
menn í bæjarstjóm, en aldrei
hefur kosningasigurinn verið
naumari en áriö 1970.
A árinu verður ýmislegt gert
til að minnast þessara tímamóta
og verður byrjað með þorra-
blóti Alþýðubandalagsins n.k.
laugardag, á sjálfan afmælis-
daginn.
I blaðinu í dag skrifar Smári
Geirsson um “Meirihluta í 50
ár” og Kristinn V. Jóhannsson
f.v. forseti bæjarstjómar skrifar
“Vangaveltur” um hálfrar aldar
meirihluta.
Igartilboó
136.-
Klementínur
Tómatar
Gul epli
Kótilettur
Pizzur
br.pr.feg.
99,- fer.pr.bg.
99 - br.pr.feg.
697.- fer.pr.bg,
199.- kr.stk.
r r
Kornflefes 530 gr. 197.-fer.
S477 1301