Neisti - 23.12.1953, Side 5
N EI STI
MATTHÍAS JOCHUMSSON:
t JÚLANðTTINA 1190
(Þegar jólin eru loksins komin til okkar, eftir allt annríkið
og amstrið, sem við látum vera, að þörfu og óþörfu, undanfara
þeirra, viljum við gjarnan eiga einhverja kyrrláta stund, þar sem
við hvílum hugann við sjálfan jólaboðskapinn. En fáir hafa
túlkað þann boðskap betur en MATTHlAS JOCHUMSSON gerir
í sálmum sínum) :
„Það er svo oft í háum heimsins glaumi,“
vér heyrum engin gleði- og friðarmál,
]>að er svo oft í tæpum tímans straumi,
að traustið bregst og vonin reynist tál,
og orð þ'n, Guð, oss óma sem I draumi,
þó eftir huggun þyrsti vora sál.
Ó, ger oss börn, og gef oss aftur jólin,
liin glöðu jól, með helgri barnatrú,
um miðja nótt })á rennur signuð sólin;
ó, sólarherra, ásján til vor snú.
Þín jólaljós, þó jarðnesk hverfi sólin,
í jesú nafni skíni til vor nú.
Hvar birtist þú, ó, blíða jólastjarna?
Þú birtist helzt í lffsins dýpstu sorg,
þú rennur helzt í brjósti góðra barna,
á bak við dagsins glaum og fullu torg;
þú þarft ei heimsins vopna, skjóls né varna.
' Þú valdir fyrst þá minnstu Iandsins borg.
Þú velur hjartað — Herra, skapa í mér
það hús ,sem megi betur sóma þér,
að ljósið þitt hið eilífa, hið eina,
þar eignast mætti svo sem jötu hreina,
hvar náðin þín, svo ný og fersk og hlý,
í nafni Jesú mætti fæðast í.
Ó, lít I náð vor köldu lijartans hús,
vor Herra, Guð, sem ert svo líknarfús;
ó, þú, sem sendir sólarinnar Ijós
að signa stráið, að það verði rós,
hví skyldir þú ei sigra kulda og kíf
og kveikja í rníitu hjarta eiKft líf?
Þvo þú mig hreinan, svo að sómi þér,
og sólin megi renna í brjósti mér,
og sannur maður megi skapast þar
i mynd og líldng Jesú fyllingar.
Ó, hjálpa mér að bjóða blessuð jól
í br jósti mínu þinni kærleiks sól.
Þú, faðir alls, ó, vertu hjálp og vörn
í voru stríðL — Sjá hin smáu börn,
sjá þau hin litlu ljósin vor og blóm,
sem líða f jTÍr huldan skapadóm;
ó, sýn oss, Guð, þar grói bak við rós,
og gejTnt sé hverju barni jólaljós.
Öll veröldin er veikt og lítið skar
í veldishendi þinnar dásemdar,
lát nýja stjömu skreyta skýjatjald,
svo skynji blindir þiirnar náðar vald;
þitt, þitt er allt, og allt er, Guð, af þér,
og í þér lifum, hrærumst, emm vér.
Ó, ljóssins faðir, lífsins stóri vin,
er leiðir sem um nótt, vort breyska kyn,
oss drejTnir um þinn dýrðarháa söng,
oss drejTiiir ljós, en nóttin er svo löng,
og stríðið hart við synd, við sorg og gröf.
Ó, SEND OSS MEIRI NÁD I JÓLAGJÖF.
Alþýðusamband
Islands
sendir öllum félögum sambandsins og
velunnurum verkalýðssamtakanna
óskir um
ptaðiHe# jót og
^azsívút níjtt át
og þakkar ágætt samstarf á árinu.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!
Þökk fyrir viðsldptin.
sApuverksmbeijan sjöfn, akureyri