Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1929, Side 3
'3
Frumáætlun um hitaveitu fyrir Reykjavík.
Eftir B e n e d i k t G r ö n d a 1 verkfr.
I. Hitaþörf Reykjavíkur.
Þegar miðað er við skipulagsuppdrátt þann, sem
gerður hefir verið af bænum, og aðeins reiknað
með þeim liluta bæjarins, sem liggur innan Hring-
brautar, má ætla að mesta hitaþörfin verði um
92.000.000 he/klst.
Þessi tala er fundin, með þvi að finna rúmfang
bygginganna, samkvæmt skipulagsuppdrættinum,
og úl frá því að álykla um hitaþörf húsanna.
Þetta bitamagn á að nægja bænum að 20° G.
frosti, og þar er einnig innifalinn sá hiti, sem fer
lil þess að liita upp neysluvatn. Má ætla, að til
vatnshitunar fari um 3000 he. af hverjum 20.000
lie, eða samtals um
13.800.000 he/klst.
Hjer er reiknað með því, að frárenslisvatn mið-
stöðvanna verið notað sem neysluvatn og mesti hiti,
sem færa þarf bænum til hitunar, verður því
78.200.000 he/klst.
Sje reiknað með því, að vatnið komi 85° C. inn
í miðstöðvarnar og kælist í ofnunum um 45° C., er
mesta vatnsþörf bæjarins
78 200 000
482 « 500 litr./ sek.
45 • 3000
Ef reiknað er með því, að bitunin sje fullnotuð
í 14 kl.st á sólarhring, en álag sje i 10 klst. að
næturlagi, og að vatni þvi, sem afgangs verður að
nóttu til, sje safnað í geymi og notað á daginn, þarf
laugin að gefa
500 (14+Vi •
24
; 344 litr./ sek.
til þess að fullnægja bitaþörfinni.
Ef bærinn, innan Hringbrautar, bygður upp sam-
kvæmt skipulagsuppdrættinum, rúmar um 40.000
manns, svarar það til hitanotkunar, sem nemur
2300 he/klst. á mann, eða þegar hitinn til neyzlu-
vatns er dreginn frá 1955 ~ 2000 he/klst.
Sje miðað við að bærinn rúmi 30.000 manns, má
því áætla að hitaþörf til upphitunar lnisa verði
60.000.000 he/klst.,
og svarar það til þess að laugin verði að gefa
00 000 000 • 33
45 • 3600 • 48
— 254 ~ 260 lítr./sek.
II. Hitaveitan.
Jarðhitasvæði það, sem næst liggur Reykjavík, er
við Þvottalaugarnar, þar sem nú er verið að bora
eftir heitu vatni, og skulu bjer athugaðir möguleik-
arnir til þess að hagnýta þessar heitu lindir. Enn-
fremur skal íhuguð lítið eitt sú leið, að sækja heita
vatnið til fjarlægari staðar, nfl. til hitasvæðis þess,
sem kend er við Reyki i Mosfellssveit.
Þvottalaugarnar bafa nú vatnsmagn, sem lijer
segir:
1) gamla þvottalaugin gefur um 10 lítr./sek. af
89° C. heitu vatni;
2) boriiola nr. 2 gefur um 12 lítr./sek. af 93° C.
heitu vatni;
3) borliola nr. 3 gefur um 1 lítr./sek. af 76° C.
heitu vatni.
Sje reiknað með 22 litr./sek. af 91° C. heitu vatni
og að vatni þessu sje safnað í geymi og að hita-
fall í ofnum búsanna sje 45° C., er unt að fullnægja
hitaþörf, sem nemur
22 • 3600 -48-45
33
5 200 000 he! kl. st.
Ef gengið væri út frá því, að fyrst um sinn yrði
tekið fyrir að hita upp miðbæinn (milli Aðalstr. og
Lækjarg.) og allar opinberar byggingar, myndi sá
liluti bæjarins þurfa um 9.000.000 he/klst. til allr-
ar hitunar, eða um 7.000.000 he/klst. til upphit-
unar liúsa.
Með ofangreindu vatnsmagni, myndu laugarnar
þá nægja þessum bæjarhluta alt að 7° C. frosti.
Allar likur eru til þess, að takast muni að auka
vatnsmagn lauganna mikið frá því, sem nú er, og
í eftirfarandi áætlun um liitaveitu er reiknað með
því, að laugarnar gefi 40 lítr./sek. af 95° C. heitu
vatni.