Ljósmæðrablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 26
Fæðingarheimilis Reykjavikur
í lok janúar opnaði Fæðingarheimili
Reykjavíkur eftir nokkurt hlé en á síðas-
ta ári var rekstur þess fluttur yfir til
Ríkisspítala, með því skilyrði af hálfu
borgarinnar að þar yrði þjónusta fyrir
konur í fæðingu. Húsnæðið hefur
verið endurnýjað og öll aðstaða þar
bætt. Nú er þar rekin 15 rúma deild,
þar af 12 rúm fyrir sængurkonur en 3
fyrir konur í fæðingu. Stöðugildi eru
fyrir 8 ljósmæður, en 3 læknar frá
Kvennadeild skipta með sér bakvöktum
og eru kallaðir til ef með þarf. Miðað
við þá starfssemi, sem nú er á fæðingar-
heimilinu er mönnun ljósmæðra í
algeru lágmarki. Viðtökur kvenna hafa
verið jákvæðar og undirstrika, það sem
margar ljósmæður hafa haldið á lofti, að
konur vilji eiga um það val, hvar þær
fæða börn sín.
Sú nýbreytni var tekin upp að bjóða
konum í viðtal á Fæðingarheimilið, hafi
þær hugsað sér að fæða þar. Konunum
og mökum þeirra gefst þá kostur á að
skoða staðinn, setja fram sínar óskir og
kynnast heirri hugmyndafræði, sem
lögð er til grundvallar starfseminni.
Einnig gefst þá ljósmóður tækifæri til að
kynna sér mæðraskrá konunnar, en
konur þurfa að uppfylla ákveðin skil-
yrði til að fæða á Fæðingarheimilinu,
eins og eðlileg meðganga, barn í
höfuðstöðu og meðgöngulengd 37-42
vikur.
Þegar þetta er skrifað hafa tæplega 90
konur fætt á Fæðingarheimilinu. Ljóst
er af þessum fjölda að raunhæft er að
áætla, að um 50 konur kjósi að fæða á
Fæðingarheimili Reykjavíkur á mánuði.
Nú hefur hins vegar verið ákveðið að
loka Fæðingarheimilinu í um 8 vikur í
sumar, og mun það taka töluverðan
tíma í haust að ná starfseminni í samt
lag aftur. Ljósmæður á Læðingar-
heimilinu eru því afar ósáttar við þessa
ákvörðun og telja að farsælla hefði verið
að loka í lengri tíma á Sængur-
kvennadeildum Landsspítalans til að
mæta þeim niðurskurði, sem fyrir-
hugaður er.
24
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ