Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Síða 12
72 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST2004
Fréttír UV
Drengur deyr
úr hræðslu
Bandarískur
þrettán ára piltur dó
úr hræðslu í bók-
staflegri merkingu.
Antonio Hansell,
búsettur í Boston,
var á gönguferðalagi
í New Hampshire
þegar björn varð skyndilega
á vegi hans. Antionio gerði
félögum sínum viðvart og
kvaðst of hræddur til að
halda áfram göngunni -
skömmu síðar kvartaði
hann undan andþyngslum
og áður en varði var hann
allur. Pilturinn hafði alltaf
verið heilbrigður. Ríflega
flögur þúsund birnir halda
til í New Hampshire og
oftast nær forðast þessar
skepnur mannfólkið.
Fóstur í lifur
Læknar í Kína upp-
götvuðu fóstur sem óx í
lifur óffískrar konu þar í
landi á dögunum. Fóstr-
inu var eytt í fyrradag, en
þá var það þegar dautt.
Afar sjaldgæft er að fóst-
ur vaxi utan móðurlífis
og enn sjaldgæfara er að
þau vaxi í lifrinni. Það
hefur aðeins gerst 14
sinnum áður, svo vitað
sé. Læknarnir náðu að
bjarga konunni og er
hún á batavegi, en nokk-
uð brugðið.
Ferðamönn-
um fjölgar
Gistinóttum á hótelum í
júní fjölgaði um heil 11
prósent milli ára sam-
kvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar. í ár voru þær
111.656 en árið 2003 voru
gistinætur 100.570. Það
liggur því fyrir að ferðaiðn-
aðurinn er enn í mikilli
sókn. Gistinóttum fjölgaði í
öllum landshlutum nema
Austurlandi, þar var fækk-
un um tæp fimm prósent.
Mest var aukningin á Suð-
urlandi eða um 18 prósent.
stjóri Sparisjóðs Mýrarsýslu
„Enginn reiknaði skakkt,“ segja verkfræðingar um flóð sem
nær nú hærra en brúin yfir Jöklu fyrir austan. Þeir telja lík-
legast að hrunið hafi úr göngum og þvi afkasti þau ekki því
sem áætlað var. Brúin er lokuð fyrir almenna umferð inn á
svæðið.
Brúin í kaf Jökla farin að fijóta
yfir brúna og skemmdir á brúar-
gólfinu. Nú hefur brúnni verið
lokað fyrir almenna umferð um
óákveðinn tíma.
Allt rétt reiknaö en
samt flæöir vflr brúna
Áframhaldandi úrkomu og hlýindum er spáð við Kárahnjúka og
á meðan veðurfar er með þeim hætti má búast við að enn flæði
Jökla. Á morgnanna lækkar í ám en eftir hlýindi dagsins eykst
vatnsmagnið aftur á kvöldin. Flóðið nær nú yfir brúnna og tepp-
ir samgöngur.
Jónas Elfasson Engar Þorsteinn
likur á þvíað verk- Hilmarsson Bjartsýnn
fræðingar hafi á að ekki verði frekari
misreiknað. skaði.
Vatnsmagnið í ánni fór í 820
rúmmetra á sekúndu í fyrradag og
fyrripartinn í gær var búist við að
það yrði ekki minna þegar færi að
kvölda. Þorsteinn Hilmarsson
upplýsingafulltrúi segir að ákveðið
hafi verið að ráðast í viðgerðir á
brúnni en brúin hafi staðist flóð
undangenginna daga. Hann segir
menn bjartsýna á að hún verði ekki
fyrir frekari skaða. „Ákveðið hefur
verið að loka almennri umferð yflr
brúna. Ferðamenn úr Fljótsdal að
útsýnisstaðnum á Sandafelli þurfa
að snúa sömu leið til baka því þeir
komast ekki yfir Jöklu og þaðan
niður í Jökuldal. Varnarstiflan neðan
brúarinnar verður notuð sem sam-
gönguæð milli bakka árinnar eins og
raunar hefur verið gert í sumar,"
segir Þorsteinn.
Jónas Elíasson, prófessor í verk-
fræði við Háskóla íslands, telur eng-
ar líkur á því að verkfræðingum
Landsvirkjunar hafa orðið á þegar
reiknað var út hve mikið vatnsmagn
göngin ættu að þola. Það komi fýrir
að hrynji úr viðlíka göngum. Það
hefði ekki verið hægt að koma í veg
fyrir það nema fóðra þau sem kom
„Mér fínnst líklega
skýringin að hrunið
hafí úr lofti þeirra möl
og grjót þegar vatns-
flaumurinn ruddi sér í
gegn"
ekki til greina. „Mér finnst líkleg
skýringin að hrunið hafi úr loíti
þeirra möl og grjót þegar vatns-
flaumurinn ruddist í gegn,“ segir
hann og bendir á að slíkt hafí gerst
annars staðar. Það sé hægt að
hreinsa þau þegar vatnsmagnið
verði eðlilegt á ný.
Guðmundur Pétursson, verk-
fræðingur hjá Landsvirkjun, hefur
verið á svæðinu undanfarna daga.
Hann er sömu skoðunar og Jónas að
hugsanlega hafi hrunið úr lofti gang-
anna. Hann segir alla útreikninga
standast að öðru leyti en til öryggis
hafi verið ákveðið að hækka
aðalvarnarsú'fluna en hún hefur
þegar verið hækkuð um fimm metra
og til stendur að hækka hana enn.
Þjófar fóru í hús á Freyjugötu
Biskup á innbrotsstað
„Það er nú mikil uppsveifla f
atvinnullfinu I Borgarnesi og
rekstur Sparisjóðs Mýrarsýslu
gengurvel. Hann hefur starf-
að íníutíu árog um þessar
mundir er nýtt húsnæði undir
starfsemina I byggingu," segir
Gísli mmmmsmimammmm
Landsíminn
ansson,
sparisjóðsstjóri í Borgarnesi.
Gísli segir að á sfðustu árum
hafí Borgarnes I raun færst
nær höfuðborginni. „Á síðasta
ári voru tveir starfsmenn í
Sparisjóðnum sem bjuggu í
Reykjavík og óku á milli. Það
hefur breyst griðariega mikið
síðan göngin komu og lítið
mál að aka þessa leiö,"
segir hann
Brotist var inn í húsið við Freyju-
götu 17 á dögunum. Innbrotið er
eitt af mörgum í miðbæ Reykjavík-
ur þar sem íbúar verða að sýna sér-
staka aðgát og læsa vel á eftir sér
fari þeir að heiman. f húsinu við
Freyjugötu býr frænka biskupsins
yfir íslandi, herra Karls Sigur-
björnssonar, og mætti hann á stað-
inn til að kanna ástand íbúðarinnar
og hugsanlegar skemmdir eftir
heimsókn þjófanna. Freyjugata er
sem kunnugt er í gömlu sókn bisk-
upsins en sjálfur býr hann í húsi þar
rétt hjá og snúa garðar húsanna svo
gott sem saman.
Engu var stolið í íbúð frænku
biskupsins við Freyjugötu en rótað í
flestu i leit að verðmætum. Mun
styggð hafa komið að þjófunum og
þeir haft sig á brott áður en lögregl-
an mætti á staðinn. Frænka bisk-
upsins hefur ekki búið í húsi sínu
við Freyjugötu um skeið þar sem
hún dvelur á hjúkrunarheimili.
Biskupinn á Freyjugötu
Herra Karl Sigurbjörnsson
við hús frænku sinnarþar
sem brotist var inn.
Gömul brjóst
hræða
Lögreglan í Rúmeníu
leggur hart að yfirvöldum
að konum, sem komnar eru
yflr sextugt, verði bannað að
spranga um topplausar á
ströndum landsins. Lögregl-
an segir topplausar eldri
konur ófagra sjón og þær
séu til þess fallnar að vekja
ugg og óhug meðal ferða-
manna. Þónokkuð margar
kvartanir hafa borist lög-
reglu í Constanta-héraði en
það er staðsett við vinsælan
ferðamannastað við Svarta
hafið. Lögreglumennimir
segja að þeim hafi beinlínis
verið ómótt við að horfa á
hópa aldraðra kvenna
ganga um berar að ofan.
Nýjar upp-
lýsingar um
morðið
Nýlega hreinsuð hljóð-
upptaka frá staðnum þar
sem John F. Kennedy, for-
seti Bandaríkj-
anna, var myrtur
22. nóvember
árið 1963 er talin
geta sannað
hvort morðing-
inn, Lee Harvey
Oswald, hafi
staðið einn að tilræðinu.
Deilt hefur verið um hversu
mörgum byssukúlum var
skotið. Upptakan er úr tæki
sem var á mótorhjóli lög-
reglumanns skammt frá
morðstaðnum en þess má
geta að þingnefnd úrskurð-
aði fýrir 35 árum að fjórir
byssuhvellir hafi heyrst úr
tveimur áttum.
Áfrýjað til
Hæstaréttar
Ríkissaksóknari Sviþjóðar
sagðist í gær myndu áfrýja
dómnum yfir Mijailo
Mijailovic sem myrti önnu
Lindh, utanrlkisráðherra
Svíþjóðar, í september á síð-
asta ári. Mijailovic var
dæmdur til lífstíðarfanga-
vistar í undirrétti en áfrýjun-
ardómstóll sneri dómnum í
síðasta mánuði og úrskurð-
aði að hann væri ósakhæfur
og skyldi vistaður á réttar-
geðdeild. Ríkissaksóknari
segir Mijailovic eiga heima í
fangelsi.
Mikilvelta með
íbúðabréf
Mikil velta hefur verið
með íbúðabréf frá því við-
skipti hófust þann 8.
júlí. Alls nemur velt-
an um 70 milljörð-
um króna eða um
3,4 milljónum að
meðaltali á dag. Til
samanburðar nam
samanlögð meðal-
velta með alla mark-
flokka hús- og húsnæðis-
bréfa 2,5 milljónum á dag í
júh' í fyrra. Júlímánuður var
fimmti veltumesti mánuður
með skuldabréf íbúðalána-
sjóðs frá upphafi þrátt fyrir
að viðskipti hafi nánast legið
niðri fyrstu viku mánaðarins
vegna tæknilegra örðugleika.