Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2005, Blaðsíða 39
W Síðast en ekki sist
FÖSTUDAOUR 26. ÁGÚST2005 39
„Hver man ekki eftir mér í hin
um ýmsu hlutverkumU Ég er
fokking Atvinnumaðurinn!!!
Ég er fokking Lambadrengur-
inn í Fóstbræðrum!!! Ég er
fokking Námsmaðurinn!!! Ég
er með stærsta banka á ís-
landií fokking vasanum.
Statistinn „Ekki eitt blað hefur
sagt frá því að ég er eirrn stærsti
statistinn í bíómynd Rods
Steward eða hvað hann nú heit-
ir gamli kúrekinn sem lék Ron
Eestwood í samnefndri mynd.“
Síðast en ekki síst
Þorsteinn
Guðmundsson
er í góðri stöðu
sem aukaleikari í
stórmynd.
Fræga fólkið á íslandi fær mjög
misjafna umfjöllunarþjónustu. Það
virðist sem sumir þurfi ekki annað
en að reka við þá komast þeir í blöð-
in. Simmi í ídolinu lætur pabba sinn
ganga inn á sig þegar hann var að
knalla kærustuna sína, tók mynd af
því og setti það svo í blöðin (ég las
reyndar ekki greinina). Jón Ólafsson
er byrjaður með Hörpu Jónsdóttur
eða hvað hún heitir, mér skilst að
hann sé í raun sextugur karlinn og
hún nýfermd (ég les reyndar aldrei
slúðurblöð) og Hreimur í Landi og
sonum var víst að kyssa Pál Óskar
fyrir framan Áma Jónsen sem trylltist
og skaut þá báða af því að sjálfur er
hann rífandi hommi (skilst mér, ég
les reyndar ekki DV).
En að einhver fjalli um mig annar
en ég, er víst af of frá, sama hvað ég
er að gera merkilega og heillandi
hluti í lífinu. Ekki eitt blað hefur sagt
frá því að ég er einn stærsti statistinn
í bíómynd Rods Steward eða hvað
hann nú heitir gamli kúrekinn sem
lék Ron Eestwood í samnefndri
mynd. Og hver er búinn að leka
plottinu í bíómyndinni til fjölmiðla,
enginn annar en fokking ég... ha, ha,
ha!!!
Heimskulegt plott
Myndin gerist í kalda stríðinu,
held ég og fjallar um menn sem ráð-
ast inn í Frakkland (trúlegt!!). Við
erum látnir vera í svona grænum og
brúnum búningum, ofsalega óþægi-
legum og ég er kominn með alls kon-
ar útbrot og allt. Svo erum við látnir
vera með legghlífar (sem mér finnst
nú bara nokkuð stúpit) þegar við
hoppum út úr bátunum og göngum
upp á ströndina. Ég var látinn hafa
einhvern risariffil með byssusting
sem ég átti að skjóta platskotum
með út í loftið og svo átti ég að borga
fimmtíu milljarða ef ég týndi honum
eðaeitthvað.
Ég sagði bara nei. Ég tek ekki þátt
í svona fíflaskap og skilaði rifflinum.
Þeir spurðu mig hvort ég vildi þá
hætta í myndinni en ég vildi það
ekki. Þá létu þeir mig vera óvopnað-
an, ég átti víst að vera prestur eða
eitthvað (trúlegt!! Prestur í her, ha,
ha!!!). Ég tók því tilboði, fór til fiænda
míns sem er nasisti í Keflavík og fékk
lánaða hjá honum alvörubyssu. Nú
er ég eini hermaðurinn sem skýtur
alvöruskotum út í loftið en það fattar
það enginn vegna þess að við erum
svo margir og það eru alltaf einhver
afföll af statistum, munar ekki um
nokkra í raun og veru.
Gott trix
Annars hef ég lítið getað einbeitt
mér að myndinni og leiknum vegna
þess að ég hef haft svo mikið að gera
að fylgjast með Ron Eestwood. Það
er svo gaman að sjá svona frægt fólk.
En það er enginn leikur að komast að
honum, alltaf eitthvað lið sem segir
mér að fara aftur í ljóta tjaldið þar
sem ljóta fólkið er (statistar). En ég
gefst ekki upp. Ég hef beitt ýmsum
brögðum. Ég lét t.d. dulbúa mig um
daginn sem Ólaf og Dorrit til þess að
geta hitt hann en þeir létu ekki
blekkjast í hliðinu, ég er ekki einu
sinni viss um að þau viti hver Ólafur
er og mistökin hjá mér voru að vera
Dorrit vegna þess að Dorrit er auð-
vitað alltaf inni í fræga tjaldinu að
spila póker og alls konar, þeir þekkja
hana of vel.
Ég reyndi að plata öryggisverðina
og skaut hund til að dreifa athygli
þeirra en allt kom fyrir ekki. Þeir
hlupu bara til Rods og lögðust ofan á
hann (svo er fólk að hneyklast á sam-
kynhneigð Áma Jónsen!!!). Það eina
sem dugði til að komast í návígi við
Rod var að teipa sjálfan mig í loftið á
klósettinu eins og hrossaflugu. Það-
an gat ég fylgst með honum athafna
sig og þaðan gat ég tekið af honum
myndir. Þetta er það sem kallað er
loftmyndir.
Gáfulegt plan
En nú er ég aftur kominn í vand-
ræði. Málið er að ég er í hópi sem á
að sprengja í loft upp á þriðjudaginn
og ég er á móti því. Þeir eru búnir að
sprengja mig þrisvar sinnum áður en
ég hef aldrei fílað að láta mig detta í
þessa ógeðslegu fjöru og hef bara
hlaupið áfram. En þeir vilja ekki leyfa
mér það. Þeir segja að ég sé ekki einn
af aðalleikurunum.
Af hverju ekki, spyr ég. Hver man
ekki eftir mér f hinum ýmsu hlut-
verkum!! Ég er fokking Atvinnumað-
urinn!!! Ég er fokking Lambadreng-
urinn í Fóstbræðrum!!! Ég er fokking
Námsmaðurinn!!! Ég er með stærsta
banka á íslandi í fokking vasanum.
Þannig að þegar þeir sprengja okkur
upp á þriðjudaginn ætla ég að
hlaupa áfram og ég ætla að hlaupa
alveg til Rods Eestwood og ég ætla að
öskra á hann: This is your last day in
Iceland, you toilet fieek!!!! Og svo
skýt ég hann. Kannski ég komist þá í
blöðin.
Veðrið er aðeins að skána.
Aðeins. (dag verður bltða
hérna á höfuðborgarsvæðinu
en rigning norðanlands. Það
verðursamtekkijafn
leiðindahvasst, súld og
rigning eins og hefur gengið
á með haustlægðunum
síðustu daga. I staðinn verður
sól víðast hvar á landinu.
Ágætis ferðaveður og
lítil rigning. Nema
fyrir norðan. Þar
rignir.
é é
Nokkur vindur
Nokkur vindur
Nokkur vindur
Kaupmannahöfn 16°C París
Ósló 18°C Berlln
Stokkhólmur 19°C Frankfurt
Helsinki 20°C Madrid
London 22 °C Barcelona
22°C Alicante 33°C
18°C Milano 25 °C
22°C New York 34°C
32 °C San Francisco 21 °C
27°C Orlando/Flórída 32 °C
im
Jón Trausti Reynisson
• Margir sjálfstæðismenn eru
ósáttir við að hafa fengið Troju-
hestinn Gunnar
öm örlygsson inn í
flokkinn. Vilja þeir
meina að vand-
ræðamálin sem
fýlgja Gunnari eins
og skuggi eða slóði
hefðu betur verið
kyrr í Frjálslynda
flokknum. Ekki vita
allir að það var
Guðlaugur Þór
Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðis-
flokksins og góðvin-
ur Gunnars, sem
fékk hann til að
klofa yfir kvótahug-
sjónir sínar, sem hann reyndar
segist hafa setið í fangelsi fyrir.
Enn færri vita að Guðlaugur reyndi
líka að fá hinn frjálslynda Sigurjón
Þórðarson yfir. Sigurjón mun hafa
sagt þvert nei...
• Glæpaferill Gunnars Amar hefur
verið í umræðunni, allt frá því að
hann byrjaði á Alþingi. Enda byrj-
aði hann þingsetuna í fangelsi.
Hinn er ekki síður athyglisverður,
námsferill Gunnars. Á vef Alþingis
kemur fram að Gunnar hafi stund-
að nám við Stýrimannaskólann í
tvo vetur. Það nám
er öllu jafna aðeins
lengra, en skyndileg
námslok Gunnars
eru tengd því að
hann lærði og
praktíseraði skraut-
legt líferni sjó-
manna í landi. Þá
lauk Gunnar námi í markaðs- og
útflutningsfræðum frá Den
Danske Exportskole árið 1996. Sé
skólanum flett upp á leitarvefnum
Google finnst hann á tveimur
stöðum, aðeins á vef Alþingis og í
tengslum við Gunnar. Astæðan er
eflaust sú að Den Danske Export-
skole var sumarnámskeið á vegum
Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðár-
króki...
• Það kom frjálslyndum mjög á
óvart þegar Gunnar
Örn þurfti skyndi-
lega að fara í fang-
elsi skömmu eftir
að hann var kjörinn
á Alþingi. Það kom
þeim líka á óvart
þegar þeir áttuðu
sig á því hvers eðlis
nám hans væri. Það gerðist eftir að
Gunnar hafði verið fenginn til að
lóðsa danska gesti um Alþingi
vegna reynslu sinnar úr danska
viðskiptaskólanum. Næst sást til
Gunnars þar sem hann lóðsaði
Danina um Alþingi með túlk í eft-
irdragi...
• Hefðu gestirnir hins vegar verið
spænskir, má gera
ráð fyrir því að hver
tuska hefði kjaftað á
Gunnari. Gunnar
stundaði nefnilega,
samkvæmt Alþing-
isvefnum, spænsku-
nám í Málaga á
Costa del Sol á ár-
unum 2000 til 2001. Svo vildi til að
nám Gunnars fór fram á meðan
lögreglan rannsakaði bókhaldsbrot
og 44 milljóna króna kvótasvindl
hans. Ekki er tekið fram við hvaða
skóla hann nam, en stuðnings-
menn Njarðvíkurliðsins í körfu-
bolta þekkja hins vegar betur til.
Enda gafst þeim færi á að lesa
djammsögur Gunnars á vefsíðu
Njarðvíkur undir titlinum: Casa-
nova skrifar frá Málaga...