Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2006, Síða 17
DV Sport
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2006 1 7
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir tii á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
GLÓFAXIHF.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Það var heldur niðurlútur knattspymustjóri sem gekk af
heimavelli sínum í Birmingham í fyrrakvöld. Steve Bmce hef-
ur mátt berjast á botni ensku úrvalsdeildarinnar í allan vetur
og í fyrrakvöld vom svo hans menn mjög svo niðurlægðir er
Liverpool vann 7-0 sigur í fjórðungsúrslitum ensku bikar-
keppninnar.
Bruce viðurkenndi eftir leikinn að
starf hans hengi á bláþræði eftir tap-
ið stóra gegn Liverpool. „Þú verður
að spyrja stjómina hvort hún stend-
ur mér að baki eftir þennan leik. Ég
veit það ekki," sagði Bruce heldur súr
í broti við blaðamann The Sun eftir
leikinn.
Engin yfirlýsing var gefin út í gær
en svo virðist sem Bruce sé óhultur í
sínu starfi um stundarsakir. Maik
Taylor, norður-írski markvörður
Birmingham, sagði svo í gær að
Bruce nyti fuils trausts leikmanna
liðsins. „Það er mikilvægt að við
stöndum allir saman og beijumst
allir fyrir einn. Stjórinn er með okkur
í þessaii baráttu."
Verðum að bjarga liðinu
Næsti leikur Birmingham verður
gegn Manchester United um helgina
og þótt það verði erfitt segir Taylor
að leikmenn Birmingham ætli að
sýna hvað í þeim býr. „Við verðum
að hætta að hugsa um þennan leik
gegn Liverpool. Nú þurfum við að
einbeita okkur að því að bjarga lið-
inu frá falli."
Bruce þurfti að fá lögreglufýlgd af
vellinum eftir leikinn í fyrrakvöld.
Tveir stuðningsmenn liðsins gerðu
tilraun til að komast inn á völlinn og
láta knattspymustjórann heyra það,
en án árangurs þó.
15mörkáeinni viku
Leikmenn Liverpool hafa nú
skorað 15 mörk á einni viku. Sérstak-
lega merkilegt í ljósi þess að fram-
herjum liðsins hefur fram að þessu
gengið bölvanlega illa að skora í úr-
valsdeildinni í vetur. En flóðgáttimar
opnuðust þegar Robbie Fowler skor-
aði loksins sitt fyrsta mark fyrir félag-
ið eftir að hann kom aftur á Anfield
gegn Fulham í síðustu viku. Liver-
pool vann leikinn, 5-1, og skoraði
svo þrívegis gegn Newcastle um
helgina.
Sjö bættust við í fyrrakvöld og
vann liðið stærsta sigur í íjórð-
ungsúrslitum bikarkeppninnar síð-
an Everton vann Southport árið
1931. Næsti leikur Iiverpool er
einnig gegn erkifjendunum í Ev-
erton, sem viija nú gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að slá Evrópu-
meistarana út af iaginu.
„Ég lenti aldrei í svona leik þegar
ég spilaði atvinnumannafótbolta,"
sagði Rafael Benitez, knattspymu-
stjóri Liverpool eftir leikinn. „Og
auðvitað óskar maður engum knatt-
spymustjóra að iiorfa upp á liðið sitt
tapa svona stórt. En mínir menn
stóðu sig stórkostlega og úrslitin eft-
ir því."
Boltinn fór alltaf inn
Benitez hefur oft mátt þurfa sæta
gagnrýni vegna markaþurrðar sókn-
armanna Liverpool en hann missti
aldrei trúna. „Þetta em úrvalsfram-
herjar. Við höfum vissulega spilað
leiki þar sem okkur tókst ekki að
skora í þijátíu tilraunum en í kvöld
virtist sem boltinn færi inn í hvert
einasta sinn sem við skutum að
markinu."
Peter Crouch er einn þeirra sem
hefur verið mikið gagnrýndur en
hann hefur nú ærlega þaggað í niður
þeim röddum. Hann skoraði tvö
mörk gegn Birmingham en aðrir
sem komust á blað vom Hyypia,
Morientes, Riise og Cisse auk þess
sem eitt markið var sjálfsmark. „Þeg-
ar sjálfstraustið er tii staðar virðist
stundum ekkert mál að skora þessi
mörk. Og það var tilfellið í kvöld. Ég
var reyndar svolítið svekktur þegar
ég gekk af velli því ég hefði svo sann-
arlega hafa viljað skora þrennu í
leiknum." eirikursmdv.is
Mikið úrval af listmálaravörum
wfimivMUin Listalagerinn
Járn 09 fllor ohf ■ Skútuvogur 1 uniAfiAf iðrnnlor je
Barkarvogsmegln ■ S :5858900 WWW.jamgier.IS
Liverpool tókst í fyrrakvöld þaö sem
aöeins einu liöi tókst alla 20. öldina: Aö
vinna leik í fjórðujrigsúrslitum ensku
bikarkeppninnar meö að minnsta kosti
sjö marka mun. Grannliðið Everton
vann Southport áriö 1931, 9 1, en ann-
ars hefur ekki verið svo mikill munur
á liðum á þessu stigi keppninnar fyrr
en í árdaga hennar, síöla á 19. öldinni.
Byrd öflugast-
uríáttaliða
úrslitunum
George Byrd hjá Skalla-
grími skilaði mestu til síns
liðs af þeim leikmönnum
sem tóku þátt í átta liða úr-
slitum Iceland Express-deild-
ar karla í körfubolta karla.
Byrd skoraði 46 stig og tók 35
fráköst í tveimur sigmm á
Grindavík og var
með 37,5 framlags-
stig að meðaltali í
leik, sex stigum
meira en A.J. Moye
hjá Keflavík. Moye
var stigahæstur
leikmanna með 32
stig að meðaltali í tveimur
sigmm Keflavfkur á Fjölni.
Miami bestir
eftirhlé
Miami Heat er með besta
árangurinn í NBA-deildinni í
körfubolta eftir að keppni
hófst á ný eftir hléið vegna
Stjörnuleiksins. Miami hefur
unnið 12 af 13 síðustu leikj-
um sínum og er aftur komið
inn í umræðuna um hvaða
lið eiga möguleika á NBA-titl-
inum. Það hefur
munað miklu um að
Shaquille O’Neal er
að láta meira til sín
taka, hann hefur
skorað 21,2 stig og
hitt úr 63,9% skota
sinna í þessum 13
leikjum en var með
19,4 stig og 56,9% skotnýt-
ingu fyrir Stjörnuleikinn.
ALLT A EINUM STAÐ
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SlMI 562 6066
• VETRARDEKK
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖD
BÓN 0G ÞVOTTUR