Fylkir - 10.11.1983, Qupperneq 1
17. tölublað
Vestmannaeyjum, 10. nóvember 1983
35. árgangur
Stiklað á stóru
Helstu framkvæmdir s.l. eitt
og hálft ár
Frá því að núverandi
meirihluti tók við völdum
eftir kosningarnar vorið
1982 hafa ýmsar fram-
kvæmdir verið í gangi eins
og jafnan áður. I þessum
greinarstúf verður stiklað
á því helsta.
Kosningaár eru jafnan mestu
framkvæmdaár hjá sveitar-
félögum, einsa var með s.l. ár.
Síðustu ár hafa einkennst af
örðugleikum með tilheyrandi
umræðu og fjármögnunar-
erfiðleikum, en neyslu og
framkvæmdum hefur verið
haldið uppi með erlendum lán-
tökum, það miklum að um
60% af þjóðartekjum þarf til að
standa undir greiðslubyrði.
Stjórnvöld hafa því dregið úr
framkvæmdum enda fjár-
mögnun þeirra orðin erfiðari.
Þrátt fyrir þennan samdrátt er
erfitt að halda öðru fram en
framkvæmdir hjá bæjarsjóði s.l.
eitt og hálft ár hafið verið tals-
verðar og verður hér stiklað á
stóru.
I gatnagerð hefur verið
unnið að jarðvegsskiptunr og
lagningu varanlegs slitlags.
Gatnakerfi bæjarins eru tæpir
29 kílómetrar að lengd, en s.l.
tvö sumur hafa um 5 kílómetrar
verið malbikaðir auk tæplega 4
kílómetra í gangstéttunr.
Sumarið 1983 er það fyrsta sem
unnið hefur verið í þjóð-
brautum í Vestmannaeyjum og
fullvíst má telja að innan ekki
alltof langs tíma verði komið
slitlag á þjóðbrautir innan
byggðar. Ekki var gert ráð fyrir
að lagning bundins slitlags á
þjóðbrautir í Vestmannaeyjum
hæfist þetta fljóít, en vegna for-
göngu bæjaryfirvalda náðist
samstaða meðal þingmanna
kjördæmisins og framkvæmda-
valdsins þannig að unnt reynd-
ist að hefa verkið s.l. sumar.
Skólamál
Haustið 1982 var 1. áfangi
Hamarsskóla tekinn í notkun,
en framkvæmdaþunginn var
mestur sumarið 1982. Þróun
skólamála hafði orðið sú að al-
gjört ófremdarástand hefði
skapast ef ekki hefði tekist að
hefja skólastarf í Hamarsskóla
s.l. haust. Samhliða opnun
Hamarsskóla var Iðnskóla-
húsið við Heiðarveg standsett
þannig að Framhaldsskólinn
gat hafið þar starf sama haust
með allt sitt starf undir einu
þaki. Framtíðaraðstaða skap-
aðist þannig fyrir Stýrimanna-
skólann á efstu hæð Gagn-
fræðaskólahússins.
Vestmannaeyjar búa við sér-
stöðu varðandi neysluvatns-
öflun, dæla þarf öllu vatni ofan
af landi í tanka hér í Eyjum.
Geymarými fyrir neysluvatn
var um 2800 tonn þrátt fyrir að
sólarhringsnotkun sé á bilinu
4000-6000 tonn. Við slíkt
öryggisleysi var ekki unað,
þannig að s.l. vetur var ráðist í
að auka geymslurými um 2500
tonn, tankarnir taka því um
4800 tonn. Þessi mikla stækkun
gjörbreytir því öryggi sem við
búum við varðandi neysluvatn.
Sorpeyðing
Sorpeyðing er víðast mikið
vandamál í þéttbýli. Hér í
Eyjum hefur verið notast við
lítinn brennsluofn austur á
Hrauni, sem vart annar byggð-
inni. Við svo búið mátti ekki
standa. Ráðist hefur verið í
byggingu stærri brennsluþróar
og er það verk langt komið.
Með byggingu nýju brennslu-
þróarinnar eykst rekstrarhag-
kvæmni og öryggi langt til
muna.
Opin svæði
og ræktun
S.l. tvö sumur hefur verið
lögð áhersla á umhverfismál.
Rúmir 2 hektarar af torfi voru
fluttir til Eyja hvort sumar og
lagt á opin svæði. Vegna gos-
lokaafmælisins var áhersla lögð
á miðbæjarsvæðið, gömul hús
sem bæjarsjóður hafði keypt til
niðurrifs fjarlægð, þannig
skapaðist rúm fyrir garða og
göngustíga til fegrunar og
yndisauka fyrir bæjarbúa. Jafn-
framt var ræktun í Eldfelli
haldið áfram auk áburðar- og
frædreifingar.
Mikið hefur verið rætt um
holræsaframkvæmdir yfir
höfnina og úr fyrir Eiðið. S.l.
sumar voru leiðslurnar yfir
höfnina fergjaðar og þessa
dagana er unnið við lagnar-
stæði norðan hafnar og leiðslan
endanlega staðsett á Bratta-
garði, því verður ekki langt að
líða þar til unnt verður að
ganga frá því svæði. Dælurnar
eru komnar til landsins og vonir
standa til að á næsta ári verði
unnt að steypa upp safnþrónna
og ganga endanlega frá lögnum
norður fyrir Eiðið svo dæling
norður fyrir Eiði, á því skolpi
sem nú rennur í höfnina, geti
hafist.
Nú í sumar var unnið að
breikkun Helgafellsvallar.
Þegar því er lokið verður
nánast hægt að tala um þrjá
fótboltavelli með grasi í Vest-
mannaeyjum, því völlurinn
verður í fullri stærð, hvort sem
leikið er langs eða þvers.
Nýr formaðiir
Sjálfstæðísflokksins
Á 25. Landsfundi Sjálfstæðisflokksins um síðustu helgi var
Þorsteinn Pálsson fyrsti þingmaður sunnlendinga kosinn formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Þorsteinn Pálsson er yngsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
fæddur 29. október 1947 á Selfossi. Hann lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla íslands 1968 og embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla íslands 1974. Hann var blaðamaður við Morgunblaðið
1970-1975, ritstjóri Vísis 1975-1979 og framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands íslands 1979-1983. Þorsteinn er kvæntur
Ingibjörgu Rafnar og eiga þau 3 börn.
Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum óska Þorsteini velfarnaðar í
vandasömu starfi. Megi Guð og gæfa fylgja honum. —Ásm. Fr.
Þorbjörn Pálsson hefur í síðustu eintökum Brautarinnar
verið með fastan þátt, „Fyrirspurnum svarað", þar hefur
Þorbjörn spurt sjálfan sig og svarað. Þáttur þessi hefur að
vonum vakiö óskipta athygli, ekki síst fvrir húmorinn og
Já, málefnalegur skortur getur farið illa með bestu
Tvær milljónir
vegna malbikunar
Á fundi bæjarráðs s.l. mánu-
dag var lagt fram bréf frá
Framkvæmdastofnun ríkisins. í
bréfinu er tilkynnt, að stjórn
byggðasjóðs hafi samþykkt að
veita lán að upphæð kr. 2. millj.
vegna malbikunar ríkisveganna
hér í Eyjum.
Lánið skal endurgreiðast í
einu lagi apríl 1985.
Alþingismenn Suðurlands-
kjördæmis hafa lýst því yfir, að
þeir muni beita sér fyrir því, að
lánið ásamt vöxtum verðu
endurgreitt af vegafé kjör-
dæmisins 1985.