Nýi tíminn


Nýi tíminn - 14.04.1955, Síða 2

Nýi tíminn - 14.04.1955, Síða 2
2) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 14. apríl 1955 H. C. Andersen var alla ævi heimagangur í húsum vina sinna — sjálfur átti hann ekk- ert heimili. Ævintýri hans sjálfs byrjaði þannig að hann , fór að segja börnum gestgjafa sinna sögur þegar búið var að borða. Það voru í fyrstu sögur sem hann hafði heyrt í æsku: þjóðsagnir og ævintýr. Brátt tóku hinir fullorðnu að leggja eyrun við. og gesturinn vildi þá einnig segja þeim eitthvað til yndis og lærdóms: hann tók að breyta ævintýrum sínum eftir þörfum stundar- innar; von bráðar urðu til sögur og ævintýr sem aldrei höfðu verið sögð áður — fædd í ímyndun þulsins sjálfs. Hann var nær þrítugu þegar hann hóf þessa sagnagerð, og hann hélt henni áfram án hvíldar þau 40 ár sem hann átti ólif- uð. Hann hafði áður gerzt allstórvirkt skáld í öðrum greinum; er fyrstu ævintýrin komu fyrir almenningssjónir spáði einn vinur hans því að fyrir fyrri- skáldskap mundi hann hljóta frægð, en ódauð- leik fyrir ævintýrin, Fyrri hluti spárinnar hefur reynzt nokkuð orðum aukinn, síðari hluti hennar hefur komið ná- kvæmlega heim. Andersen stóð á þrítugu er fyrsta ævintýrasafnið kom á prent. Æska hans hafði verið strangur skóli. Hann var sonur skósmiðs á Óðinsvéum, og hafði misst föður sinn 11 ára gamall. Það var fátækt hús, afi hans hafði verið geðveikur, móðir hans lagðist síðar í drykkjuskap. í bernsku var hann þó látinn tiltölulega sjálfráður um hætti sína. f- myndunarafli hans voru þá þegar lítil takmörk sett, og ungur lék hann með brúður, stofnsetti sitt eigið brúðuleik- hús. Koma leikflokks frá Kon- unglega leikhúsinu til Óðinsvéa olli því að eftir það stefndu allir draumar hans til höfuð- borgarinnar. En hann skyldi verða skraddari í fæðingarbæ sínum. í staðinn fór hann til Kaupmannahafnar 14 ára að aldri. Hann vildi gerast dans- ari, braut sér leið inn í stofu dánsmeyjar einnar og tók að dansa fyrir hana og syngjá. Síðar kvaðst hún hafa haldið að strákurinn væri vitláus, enda rak hún hann öfugan á dyr. En þessi ófríði langi drengur, sem aldrei kunni nein tök á ýmsum viðfangsefnum daglegs lífs, var gæddur sjálfs- trausti sem sást ekki fyrir — „ég ætla að verða frægur“, sagði hann við móður síná áð- ur en hann kvaddi; rakti henni síðán ágrip af ævisögum nokk- urra mikilla manna er í fátækt höfðú fæðzt og alizt. Frá dans- meynni hélt hann rakleiðis til stjórnandá Konunglega leik- hússins og fór fram á að fá í húsinu til liœgri átti H. C. Andersen lengi heima í bernsku safn hans. par er nú minningar- Í50 ára mirming atvinnu. Leikhússtjórinn svar- aði að hann væri of horaður fyrir leikhús. Hinn orðfrakki sláni frá Fjóni svaraði blygð- unarlaust: „Ef ég fengi 100 ríkisdala laun níundi ég fljótt verða nægilega feitur“. En þá varð kammerherrann alvar- legur, svaraði því til að hann réði aðeins til sín fólk sem hefði til að bera einhvern snefil almennrar kurteisi. Þar með var sá draumur búinn. Leiðin lá á trésmíða- verkstæði, en þar var svo ljótt tal að hinn „ókurteisi" skó- smiðssonur hélzt þar ekki við. Fyrir tilstilli góðra manna komst hann síðar í mennta- skóla i bænum Slagelse. Ander- sen hafði ekki dvalizt þar lengi er hann nefndi staðinn Plag- else. Að lokum sagði skólastjór- inn honum að fara til fjand- ans. Himn leitaði þá enn á náðir vina sinna í Kaupmanna- höfn, þeir útveguðu honum einkakennara; og árið 1828 lauk hann stúdentsprófi. Yfir slíku prófi hvíldi þá nokkru meiri ljómi en nú: Andersen var kominn í hóp „andlegu stéttarinnar“; héðan, í frá lifði hann eingöngu af penna sin- um — og á vinum sínum. Það er óþarfi að rekja hér ritstörf hans fram til 1835: verk hans, önnur en ævintýrin, eru ekki lifandi skáldskapur í dag; ýms leikrit hans voru þó um skeið leikin dálítið í Kaupmanna- höfn, sumar skáldsögur. hans þóttu rétt læsilegar, nokkur Ijóð hans voktu gleði í hjört- um. Merkari þykja fáéinar ferðabækur hans, og þó um- fram allt sjálfsævisagan, Mit Livs Eventyr, sem út kom fyr- ir réttum hundrað árum. Er fær umbun dyggðar sinnar, höfundurinn kom til vina sinna illur maður hlýtur refsingu fyr- eftir hádegi 2. apríl 1855 gat ir ódáð sína — í ævintýri hef- hann sagt þeim að þá um ur réttlætið framgang. Þar H. C. Andersen í þessu húsi er H. C. Andersen talinn fœddur morguninn hefði hann lokið nýjásta meistaraverki sínu: sjálfsævisögunni. Skaplyndi H. C. Andersens vár ekki einleikið. Hann var hégómagjarn úr hófi fram, hann gerði sér daelt við aðals- menn og fursta, þótti mikil fremd að vera konungsgestur, rak harðan áróður fýrir verk- um sínum, taldi þá háfa rétt- ast fyrir sér er hrósuðu honum mest. Á hinn bóginn bjó hann ævinlega yfir upprunalegu við- horfi við lífinu og tilverunni, honum var mjög í mun að varðveita barnið á sjálfum sér, eins og hann komst að orði; vinir hans margir áttu ekki nógu sterk orð um djúprætta góðvild hans, samúðarþel, op- inskái, hreinleik' í hugsun. Það eru þéssir síðartöldu eðlisþsétt- ir hans sem lýsir af í ævin- týrum hans. Ævintýr er sagan af því hvernig góður maður eru öll hversdágsleg lögmál rofin: þannig , verður lögmál réttlætisins máttugast. Dýr og blóm og gripir tala mennskri tungu, þyngdárlögmálið er á bak og burt, háfið gengyr á land, myrki-ið verður gegnsætt, grafir ljúkast upp, löftið verð- ur fast undir fæti, ein fjöður verður fimm hænur; en endur- gjaldslögmálið, undirstaða alls siðgæðis, stendur. Við göngum út frá því sem frumstaðreynd að ímyndunarafl H. C. Ander- sens hafi frá upphafi verið fá- gætlega frjótt, umhverfi hans í bemsku gaf því byr undir vængi — þó öðrum hefði það einungis orðið tiL andlegs nið- urdreps; dul þjóðsögu og ævin- týrs rann honum í merg og hein á ungum aldri. Þróun þjóðfélagsins, stefnur í skáld- skap, og að lokum ferill hans sjálfs — allt þetta markaði hugarstefnu hans, renndi stoð- um undir ævintýragerð hans. Hann byrjáði að skemmta börnum. En hinum fullvaxna manni, er í barnslegum hrein- leik dreymdi fegurð og rétt- læti, var sú skemmtan ekki nóg. Hann var ekki heimspek- ingur, en hann gerðist siðferð- isprédikari — mjög nýstárleg- ur, mjög skemmtilegur. Hann gerðist kenngci réttrar breytni; eri hann beitti ekkí vendi, held- ur sagði hann dæmísögu. Fjöl- mörg ævintýri hans eru þess- háttar „nytsemdarskáldskap- ur“. Og þetta skáld, sem ferð- aðist um löndin til að hafa eft- irlit með frægð sinni og sitja veizlur hjá fu.rstum, sagði eitt sinn í Athugasemdum um æv- intýr sín: „Barnið í gröfinni og Móðirin eru þau tvö ævintýr er fengið hafa mér meiri gleði en allur annar skáldskapur minn, því þau hafa miðlað svo margri syrgjandi móður hugg- un og styrk“. En meistari okkar leikur á fleiri stréngi. Klukkan er æv- intýr um lífsgáfuna og leitina að lausn hennar, Ljoti andar- unginn er í einu persónulegt kvein og persónulegt sigurhrós, Næturgalinn er algild dæmi- saga um það hvernig fer er menn velja svikinn málm fyr- ir hreinan, Nýju fötin keisar- ans er ævintýr um samsinni hugleysisins. í hinum síðartöldu ævintýrum ,á blekkingin heima við keisarahirðir, í hásætum. I fyrra ævintýrinu er fátækur fiskimaður boðberi sannleik- ans: „Það er dáfallegt að heyra, og það líkist, en eitt- hvað vantar samt, sem ég veit ekki hvað er“, segir hann um söng vélgalans sem hirðin krýpur. í hinu ævintýrinu rýf- ur lítið barn blekkingarhjúp- inn: „Nú, hann er þá ekki í neinu!“ Þessi ævintýr votta að H. C. Andersen var ekki öld- ungis háskalaus hirðgestur: hann sá dýpra en þeir vissu, þekkti sinn Goðmund og Glæsi- velli hans. Þau sýna einnig hvar skáldið vænti sannleik- anum helzt halds og trausts: í hjarta alþýðumannsins, í auga barnsins, Hann var fædd- ur og fóstraður öreigi; hann þekkti litla manninn í þjóð- félaginu nógu vel til að viðúr- kenná tign hans, óspillta af sýndarmennsku yfirstéttar og hirðar þar sem barizt er um horbein og mötunauts sæti af góðlátlegri grimmd. Hann var alþýðumaður alla ævi, tengdi allán draum sinn upprunalegu viðhorfi og óspilltum eðlileik fiskimanns og barnsins hans. Á þetta er vert að leggja á- herzlu í dag þegar uppdubbaðir hirðsnápar munu nuddá sér ut- an í ^minningu hans af því hann er nógu löngu dáuður. ■ír Líf og verk H. C. Andersens felur í sér eina af mótsögnum tilverunnar. Ef þjóðfélagslegur uppruni og æskukjör hefðu ver- ið einráð um örlög hans, hefði hann sólað skó eða saumað brækur i fæðingarbæ sinum meðan þrek entist, drukkið sig fullan um helgar, máski orðið geðveikur á miðjúm aldri. En svona fór: á 150 ára áfmæli hans heldur fólkið í gervöllum heimi minningu hans í heiðri. Aldrei hefur ódauðlegra : skáld verið alið. Hann sagði sjálfur að lof gerði sig góðan. Það er vafamál að aðrir menn séu þá betri i eilífðinni. — B. B.

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.