Litli Bergþór - 01.07.2010, Side 4
ormannspisti
Aðalfundir íþrótta- og aðaldeildar voru haldnir þann 7.
apríl í Bergholti og voru vel sóttir. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa voru þar veittar viðurkenningar fyrir
góða ástundun, árangur og framkomu í viðkomandi
íþróttagrein. Ennfremur fengu íþróttakona og íþrótta-
maður ársins bikara í viðurkenningarskyni. Vilborg
Rún Guðmundsdóttir fyrir glæsilegan árangur í glímu
og Jón Oskar Jóhannesson fyrir knattspyrnu. Oska ég
þeim til hamingju með árangurinn. I ársskýrslunni
gefur að líta hversu gróskumikið starfið er og hve
margir leggja þar hönd á plóg við þau störf.
Vík ég nú að viðburðum undanfarinna vikna, þ.e.
hversu mjög við mennirnir erum lítils megnugir gagn-
vart þeim ofurkröftum sem móðir náttúra sýnir í þeim
eldsumbrotum sem nú standa yfir. Þetta er sú ógn sem
samfélagið hefur staðið frammi fyrir í gegnum aldimar
varðandi búsetu og afkomu fjölda fólks, þegar jarð-
Ný stjórn Ungmennafélagsins heiðrar Guttorm jyrir vel unnin
störf
eldar hafa geisað með tilheyrandi öskufalli, hraun-
rennsli og jökulleysingum yfir byggðir og ból. Það er
ekki síst við slíkar kringumstæður sem við Islendingar
sýnum mikla samkennd og hlýhug til þess fólks sem í
slíkum erfiðleikum lendir. Eins og oft áður höfum við
fylgst með þeirri miklu aðkomu björgunarsveitanna að
verkefnum sem hafa komið upp sem afleiðingar af
gosunum. Það er vissulega mikils virði allt það sjálf-
boðastarf sem unnið er, t.d. innan björgunarsveitanna
og annarra samtaka sem leggja mikið af mörkum til
samfélagsins við þessar og ámóta aðstæður. Setjum
okkur í spor þess fólks sem verður þessarar þjónustu
aðnjótandi og fær með henni stuðning og styrk til að
takast á við þann vanda sem að höndum ber. Við
getum sem betur fer horft á fleiri þætti í okkar samfé-
lagi þar sem sjálfboðastarf kemur með virkum hætti til
sögunnar og er mér bæði ljúft og skylt að minnast á
ungmennafélagshreyfinguna og ungmennafélögin vítt
og breitt um land sem hafa með afgerandi hætti lyft
grettistaki við uppbyggingu og samfélagsbætur á lið-
inni öld og eiga vonandi eftir að gera um ókomin ár.
A þessum yndislega tíma sem vorið er, þegar far-
fuglamir flykkjast til landsins og boða hlýnandi veður,
grænkandi haga og laufguð tré, vil ég minna á hollustu
útiveru og hreyfmgar.
Að lokum vil ég þakka öllum sem hafa komið að
störfum fyrir Ungmennafélagið í stjórnum deilda og
starfið allt. Nýjum formanni óska ég allra heilla í starfi,
veit reyndar að hann þekkir starf ungmennafélagshreyf-
ingarinnar mjög vel.
Lesendum öllum óska ég gleðilegs sumars.
Guttormur Bjarnason,
fráfarandi formaöur
apríl 2010
nefndir:
Á aðalfundi
var kosið
Stjórn Ungmennafélagsins
Helgi Kjartansson formaður
Steinunn Lilja Heiðarsdóttir ritari
Ingibjörg Sigurjónsdóttir, gjaldkeri
Varamenn:
Dagný Rut Grétarsdóttir
Asborg Amþórsdóttir
UMF. Biskupstungna 7.
í eftirfarandi stjómir og
Fulltrúi í þjóðhátíðarnefnd
Steinunn Lilja Heiðarsdóttir
Skógræktardeild
Sigurjón Sæland fonnaður
Ingimar Einarsson ritari
Jens Pétur Jóhannsson gjaldkeri
Hólmfríður Geirsdóttir
Fulltrúar í rekstrarnefnd
Helgi Kjartansson
Steinunn Lilja Heiðarsdóttir varamaður
íþróttavallarnefnd
Helgi Guðmundsson formaður
Þórarinn Þorfinnsson
Rúnar Bjarnason
Litli Bergþór 4 ________________
Útgáfunefnd
Svava Theodórsdóttir formaður
Skúli Sæland varaformaður
Egill Hallgrímsson ritari
Geirþrúður Sighvatsdóttir gjaldkeri
Pétur Skarphéðinsson meðstjórnandi
Skoðunarmaður
Gylíi Haraldsson
Skemmtinefnd unglinga
Aslaug Alda Þórarinsdóttir
Karítas Róbertsdóttir /^Hvemig^\
Jón Óskar Jóhannessoiy væri ég sem
Hjalti Pétur Jakobsson l nefndarformaður?
Guðbjöm Brynjólfsson
Stjórn íþróttadeildar
Agla Þyri Kristjánsdóttir
fonnaður
Ingibörg Einarsdóttir
ritari
Helga María Jónsdóttir
gjaldkeri
Varamenn:
Rut Guðmundsdóttir
Skúli Sæland