Litli Bergþór - 01.07.2010, Blaðsíða 16
„Forréttindi að fá að starfa í þessu húsi“
Viðtal við Jón Bjamason, organista og kórstjóra í Skálholti
Það er bjartur, fallegur, en kaldur dagur í lok apríl
2010 þegar blaðamaður Litla-Bergþórs rennir í hlað
í Skálholti. Erindið er að hitta nýja organistann, Jón
Bjarnason, og forvitnast aðeins um bakgrunn hans og
heyra hugmyndir hans um starfið í Skálholti.
Ur kirkjunni berast fallegir orgeltónar. Það fer
ekki milli mála að Jón er að œfa sig. Egfœ mér sœti
aftarlega í kirkjunni, hlusta á tónverkið til enda og
virði jyrir mér fallega birtu kvöidsólarinnar, sem skín
inn um steinda gluggana. Nokkrir út/endir
ferðalangar standa við innganginn, taka myndir og
ta/a í hálfum hljóðum.
Jón heilsar blaðamanni brosandi og stingur upp á
að við setjumst niður á skrifstofu hans í kjallara
Biskupshússins.
Að íslenskum sið er fyrsta spurningin um ættir og
uppruna.
Jón: Eg er fæddur 1979 á sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki, Skagfirðingur í húð og hár, ættaður af Höfða-
strönd. Nánar tiltekið frá Víðilundi, sem stendur í
landi Mýrarkots. Faðir minn, Bjami A. Jóhannsson
var ættaður úr Óslandshlíð, bjó lengi í Miðhúsum
með blandað bú en varð síðan kennari við grunn-
skólann á Hofsósi. Móðir mín heitir Ingibjörg
Jónsdóttir, ættuð frá Vatni á Höfðaströnd og Mann-
skaðahóli, sem var næsti bær við Mýrarkot.
Eg á þrjú eldri systkini, tvær systur og einn bróður.
Elst er Kristín, sem er kennari á Hofsósi, síðan er
Jóhann, organisti á Hólum í Hjaltadal og aðstoðar-
skólastjóri Grunnskólans á Hólum. Ragnheiður er
píanókennari í Reykjavík og ég er yngstur.
Eins og þú sérð koma kennslan og tónlistin víða
við í ljölskyldunni.
Námsferillinn hófst við Grunnskólann á Hofsósi og
síðan tók við Fjölbraut á Sauðárkróki. Eg var svo
heppinn að á Hofsósi starfaði úrvals tónlistarkennari,
Dr. Thomas Higgerson frá Bandaríkjunum og lauk ég
8. stigi í píanóleik hjá honum.
Eg fór síðan í framhaldsnám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og lauk píanókennaraprófí þaðan árið 2003
undir leiðsögn Halldórs Haraldssonar. Meðal píanó-
kennara minna þar var Peter Maté. Aður en ég lauk
píanónáminu hafði ég reyndar hafíð nám við Tón-
skóla þjóðkirkjunnar, þar sem ég stundaði organista-
nám hjá Herði Áskelssyni, sem nú er söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar, og Birni Steinari Sólbergssyni
organista. Kórstjórn er einnig hluti af náminu þar. Úr
Tónskólanum útskrifaðist ég svo 2006 sem kantor,
auk þess sem ég lauk einleiksáfanga í organleik.
Frá árinu 2003 starfaði ég sem organisti í Selja-
kirkju og var fastráðinn þar í sex ár, eða þar til ég
sótti um organistastarfíð í Skálholti. Með námi spilaði
ég einnig í sunnudagaskóla Breiðholtskirkju. Svo hef
ég fengist aðeins við kórstjórn, stjórna Húnakómum,
sem er kór brottfluttra Húnvetninga í Reykjavík og
Litli Bergþór 16 ___________________________________
Jón Bjarnason brosmildur við orgelið.
Ekkókórnum, sem er kór kennara á eftirlaunum og
það geri ég enn, þó ég sé fluttur hingað austur. Ég hef
því nokkuð margvíslega reynslu.
Varðandi íjölskylduhagi, þá sótti ég konuna austur
á Homaíjörð. Ég er giftur Bergþóru Ragnarsdóttur frá
Akurnesi í Nesjum. Hún er með BA próf í guðfræði
og er að ljúka námi í fomleifafræði og miðaldafræði.
Með námi hefur hún unnið á Þjóðminjasafninu.
En, svo ég segi nú frómt og satt frá þá kynntumst
við í bænum!
Áhugamálin. Jú, ég hef til dæmis áhuga á fótbolta,
þó ég sé ekki enn kominn í „old boys“ fótboltaliðið í
Biskupstungum. Svo er það auðvitað tónlistin, og þá
ekki bara orgelleikur og klassísk tónlist heldur allur
skalinn. Kórstjóm er mér mikið áhugamál og ég hef
mjög gaman af því að vinna með fólki á öllum aldri. I
Ekkókórnum eru t.d. tveir níræðir félagar, sem syngja
annars vegar tenór og hins vegar sópran. Enginn
bilbugur á þeim. Tenórinn heitir Ernst Backmann og
hann semur lög og syngur sóló með kómum!
Framtíðarsýn mín varðandi starfíð í Skálholti er að
efla hér tónlistarlífíð og helst stofna kór, sem getur
þjónað öllum kirkjum sveitarinnar. Ég sé fyrir mér
samstarf kóra hér í uppsveitunum og jafnvel á öllu
Suðurlandi. Nú hefur verið stofnuð Tónlistarnefnd
prófastsdæmisins, og hugmyndin er að stefna fólki
hingað í Skálholt.
Mér fínnst forréttindi að fá að starfa í þessu húsi,
þar sem svo mikið er að gerast og hlakka til að takast
á við verkefnin hér.
Okkur fínnst gott að vera hér í Biskupstungunum
og það er gott að vera kominn út á land.
Að því mœltu kveð ég organistann í Skálholti með
þökk fyrir spjallið og óska honum alls velfarnaðar í
lífi og starfii hér í Biskupstungum. GS