Dagsbrún - 01.03.1975, Blaðsíða 11
Um uppsagnarfrest verkamanna
Þegar verkmaður hefur öðlast rétt til fasts viku-
kaups, þ. e. hefur unnið 6 mánuði eða lengur hjá
sama vinnuveitanda, er gagnkvæmur uppsagnar-
frestur 1 vika, miðað við vikuskipti, þar til við-
komandi hefur öðlast rétt til eins mánaðar upp-
sagnarfrests samkv. lögum nr. 16, 1958. Mánaðar-
kaupsmenn eiga ávallt eins mánaðar uppsagnar-
frest, miðað við mánaðamót, sé ekki annað ákveð-
ið í samningum.
Þegar verkamanni er sagt upp vegna samdrátt-
ar, skal hann, ef um endurráðningu er að ræða
innan 6 mánaða, halda áunnum réttindum, svo
sem starfsaldurshækkunum, föstu vikukaupi og
rétti til kaupgreiðslu í veikinda- og slysatilfellum.
Reglur um fast vikukaup
Hafi verkamaður unnið hjá sama atvinnurekanda
í 6 mánuði eða lengur skal honrnn greitt óskert
vikukaup þannig, að samningsbundnir frídagar,
aðrir en sunnudagar, séu greiddir.
Lífeyrissjóðir
Iðgjald til Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Framsókn-
ar er 4% af dagvinnu að viðbættu orlofi. Iðgjald
vinnuveitenda er 6%. Afgreiðsla Lífeyrissjóðsins
er að Laugavegi 77, sími 14477.
Nœturvinnukaup á dagvinnutímabili o. fl.
Nú hefur verkamaður unnið 6 klst. eða meira
samfellt í næturvinnu og skal hann þá fá minnst
6 klst. hvíld, ella greiðist áfram næturvinnukaup,
þó komið sé fram á dagvinnutímabil.
Þetta ákvæði skerðir þó eigi rétt til greiðslu
á óskertu viku- eða mánaðarkaupi sé viðkomandi
á föstu viku- eða mánaðarkaupi.
Þegar verkamaður er kvaddur til vinnu, eftir
að næturvinnutímabil er hafið, skal hann fá greitt
kaup fyrir minnst tvær klst., nema dagvinna hefj-
ist innan tveggja klst. frá því hann kom til vinnu.
Þó skal greiða minnst 4 klst. fyrir útkall á tíma-
bilinu kl. 24,00—04,00.
11