blaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 36
HvaðÞo''rÞ ® ð
Hvað sk''ur Æt(i þ
g£fSS»i«^“í
UPPáhaW^Xo
40
FÓSTUDAGUR 11. MAÍ 2007
blaðiö
LÚÐVÍK RÍKHARÐSSON18 ÁRA
Hvaða flokkar eru í ríkisstjórn?
Sjálfstæðisflokkur og ég veit það ekki.
Hvar er Eurovision haldin i ár?
Aþenu.
i hvaða heimsálfu er Kilimanjaro?
Það veit ég ekki.
Hvað heitir hötuðborg Hollands?
Ekki hugmynd.
Við hvað starfar Davíð Oddsson?
Hann er bankastjóri.
ÞORGEIR SKÚLASON18 ÁRA
Hvaða flokkar eru i ríkisstjórn?
Ekki viss.
Hvar er Eurovision haldin í ár?
Man það ekki.
f hvaða heimsálfu er Kilimanjaro?
Afríku.
Hvað heitir höfuðborg Hollands?
Amsterdam.
Við hvað starfar Davíð Oddsson?
Man það ekki.
uo[jse>|ueqeigas 's muej)|sjeujg[ts j
ns ujepjotsujv ua 'eöa|n|sAsujg[)s ns ‘Bbbh
’k n>(!J)V e !pue|uu!d \ !>|U!S|8H z jn>|)|0|jje
-ungsujejd 6o jn>|)(0|js!gæ)sj|e[s •) uoas
KRISTINN ÖRN ARNARSON17 ÁRA
Hvaða flokkar eru i rikisstjórn?
Það er Sjálfstæðisflokkurinn og... nei, ég veit
það ekki.
Hvar er Eurovision haidin I ár?
Það er í Helsinki.
i hvaða heimsálfu er Kilimanjaro?
Asfu.
Hvað heitir höfuðborg Hollands?
Amsterdam.
Við hvað starfar Davið Oddsson?
Seðlabankastjóri.
GUÐJÓN GÍSLASON19ÁRA
Hvaða flokkar eru í ríkisstjórn?
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur.
Hvar er Eurovision haldin í ár?
Helsinki,
i hvaða heimsálfu er Kilimanjaro?
Afríku.
Hvað heitir höfuðborg Hollands?
Amsterdam.
Við hvað starfar Davíð Oddsson?
Fjármálaráðherra eða eitthvað.
VERNHARD BABITZ18 ÁRA
Hvaða flokkar eru í rikisstjórn?
Ég veit það ekki, fylgist ekki með.
Hvar er Eurovision haldin í ár?
Grikklandl.
i hvaða heimsálfu er Kilimanjaro?
Afríku.
Hvað heitir höfuðborg Hollands?
Ekki viss.
Við hvað starfar Davið Oddsson?
Veit það ekki.
Smíðaði fall
byss
firá
É#'
HsKaimöogVjWeruoaog^"."
1 heiminum
Sdj-fþrióörWF-onnrinn.
vítasunnuhelgina 25. til
28. maí verður haldin
hátíð íslenskra heimild-
armynda i Skjaldborg-
arbíói á Patreksfirði.
Bjarni Massi er einn þeirra kvik-
myndagerðarmanna sem eiga mynd-
ir á hátíðinni en hann hefur starfað
meira og minna við kvikmyndagerð
síðan hann útskrifaðist úr Listahá-
skólanum árið 2002.
„Ég er myndlistarmaður að
mennt en hef unnið mest við kvik-
myndagerð síðan ég lauk námi. Ég
var í Listaháskólanum í skúlptúr-
deild og svo tók ég eitt ár i málara-
deild í listaskóla í Hollandi, það
var frábært þar. Groningen er lítill
skólabær í Norður-Hollandi, alveg
yndislegur en Holland getur samt
gert mann svolítið brjálaðan,“ segir
Bjarni og hlær.
Bítlarnir í New Orleans
Bjarni leikstýrir þremur mynd-
um sem sýndar verða á Skjaldborg.
.Myndin Bítlarnir er samstarfsverk-
efni hóps sem kallar sig Lortur en
við höfum starfað saman alveg frá
2000. Mikið afþessum myndum er
úr okkar smiðju eins og Bítlamynd-
in þó að ég taki þetta og klippi hana.
Þetta er ferðamynd þar sem við gef-
um okkur að við séum Bítlarnir og
ferðumst til New Orleans þar sem
við reynum að fá tónleika. Ferðalag-
ið hófst í New York en svo fórum
við niður til New Orleans. Þetta
var fyrir hvirfilbylinn Katrinu, en
þetta voru eiginlega síðustu forvöð
til þess að heimsækja borgina fyrir
það. En það var mjög áhugavert að
koma þangað, þetta er mikill part-
íbær. Við vorum einhverja fimm
daga þar þangað til borgin sigraði
okkur og sendi okkur heim.“
Vopnaframleiðsla á Seyðisfirði
„Myndin fslenski herinn er út-
skriftarverkið mitt frá Listaháskól-
anum sem er samt unnið í sam-
starfi við Lorts-hópinn. Ég smíðaði
fallbyssu á Seyðisfirði og bjó til
íslenska herinn. Þetta er tekið fyrir
fimm árum þegar allt var að verða
vitlaust í íslensku samfélagi vegna ál-
framkvæmda á Austurlandi. Þá datt
mér í hug að stofna þennan her og er
ólmur í að hefja vopnaframleiðslu á
Seyðisfirði, er með stórar hugmynd-
ir og ætla að fylla upp í höfnina og
vera með mikla og stóra vopnafram-
leiðslu til þess að framleiða vopn
úr öllu álinu. í kjölfarið flyt ég svo
þessa byssu yfir þvert og endilangt
landið aftan í gömlum Land Rover
í samfloti með hermönnum mínum
og við drögum hana í bæinn. Þetta
er auðvitað fallbyssa sem er ekki
smíðuð til ferðalaga á einn eða ann-
an hátt. Hún er dettandi í sundur
á leiðinni og við þurfum að stoppa
víðs vegar til þess að fá aðstoð til
að komast áfram en myndin fjallar
meira og minna um það að koma
þessari byssu til Reykjavíkur. Þetta
var kannski svolítil ádeila á álfram-
leiðslu á sínum tíma en er fyrst og
fremst skemmtileg ferðasaga sem
sýnir þennan her okkar og við hvað
hann væri að vinna væri hann til í
raun og veru.“
Vín og villtar meyjar
Loðmundur syngur er stutt-
mynd sem var tekin upp í Loð-
mundarfirði. „Þessa mynd tók ég
upp í fyrrasumar í eyðifirðinum
Loðmundarfirði. Myndin fjallar
um hóp manna sem koma inn í Loð-
mundarfjörð til þess að undirbúa
messu í Klyppstaðarkirkju en það
er messað þarna í mesta lagi einu
sinni á sumri og stundum bara
annað hvert ár. Þetta fjallar um
söng kannski frekar en athöfnina
og gleðskap hjá fólkinu eftir að það
hefur slegið í kringum kirkjuna og
þrifið hana. Það hittist svo á kvöld-
vöku og syngur saman og svo er
söngur prestsins daginn eftir með
þessu sama fólki í kirkjunni."
Bjarni segist alltaf hafa myndlist-
ina til hliðsjónar við kvikmynda-
gerðina. „Það má segja að ég styðj-
ist alltaf á einn eða annan hátt við
myndlistina í kvikmyndagerðinni
en ég er ekki með neina kvikmynda-
menntun. Ég veit heldur ekki hvort
ég á mér einhverjar fyrirmyndir
en þetta er allavega mikil tilrauna-
mennska og leit en ég held að ég
fari ekki að líkja mér við einn eða
neinn í þessu.“
Aðspurður um framhaldsnám
segir Bjarni ekkert ákveðið í þeim
efnum. „Ég spái í því öðru hverju.
En svo hef ég unnið mjög mikið
með öðrum listamönnum bæði í
kvikmyndagerð og öðru eins og við
uppsetningar á sýningum og smíði
á annarra manna listaverkum og
mér finnst það bara vera svolítið
framhaldsnám. En það er aldrei að
vita hvað maður gerir.“
Að sögn Bjarna er draumurinn
ekkert endilega sá að geta lifað á
listinni heldur fyrst og fremst vín
og villtar meyjar. „Nei, nei en auð-
vitað væri gott að geta lifað á þessu
en ég hef aldrei kvartað yfir því þó
svo maður fái kannski ekki alltaf
peninga beint í þau verkefni sem
maður er að gera en þá nær maður
að afla fjár einhvern veginn í öðr-
um verkum."
Aldrei heimsótt uppáhaldsstaðinn
„Ég hef ferðast mikið í kringum
þessar tökur eins og við tökur
á Bítlamyndinni sem var mjög
skemmtilegt. Síðan var mjög
skemmtilegt verkefni sem ég gerði
ásamt öðrum sem hefur fengið
vinnuheitið Shame Story sem við
höfum að vísu ekki klárað ennþá
en þetta er lítil saga sem gerist sam-
tímis í Reykjavík og Aþenu. Þetta
verk er á 20 ára planinu hjá okkur.
Við erum með vissar hugmyndir
um að það eigi ekkert að vinna all-
ar hugmyndir of fljótt. Stundum á
bara að melta þetta aðeins og þetta
er okkar framlag til þessarar til-
raunar, að láta hugmyndina gerjast,
en við stefnum á að klára þetta á
næstu 20 árum.
Annars hef ég heimsótt marga
áhugaverða staði. Það er til dæm-
is mjög fallegt í Loðmundarfirði
en ég held að ég verði að segja að
uppáhaldsstaðurinn minn núna sé
staður sem ég hef aldrei heimsótt,
en er að fara til eftir nokkra daga.
Það er Skálanes sem er eiginlega
orðið uppáhaldsstaðurinn minn
þó ég hafi ekki barið það augum
enn. Skálanes er yst í Seyðisfirði,
náttúru- og fuglaparadís og þar
ætla ég að eyða sumrinu og koma
með brjálaðar afurðir til baka. Ég
ætla að vera þar í allt sumar ásamt
syni mínum og vinna með fugli og
mönnum og gera myndlist inn á
milli. Það er svona helst á döfinni.
Pakka saman íbúðinni og fylla jepp-
ann af bensíni og þeysa út úr bæn-
um. Síðan ætla ég að koma aftur
og fara til Feneyja á Bíenalinn og
vinna að smá kvikmyndaverkefni
fyrir Snorra Ásmundsson, forseta-
frambjóðanda með meiru, en svo
sný ég aftur í kyrrðina á Skálanesi
og held áfram að skapa.“
hilda@bladid.net
Hispanitas
‘ValmíM
Skóverslun
Kringlunni 8-12
Sími 553 2888
Þægilegir
Stærð 35-42 Verð 8995
'Í