Bændablaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Þriðjudagur 8. júlí 2008
Landsmót hestamanna stóð yfir á Gaddstaðaflö-
tum við Hellu alla síðustu viku. Um sex hundruð
hross komu fram í kynbótasýningum, gæðin-
gakeppni, tölti og skeiði. Þrátt fyrir hvassviðri
í byrjun vikunnar ríkti mikil gleði á mótinu og
hrossin voru glæsileg sem aldrei fyrr. Setning
mótsins sl. fimmtudagskvöld var mjög hátíðleg,
en menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gun-
narsdóttir, setti mótið formlega. Landsmótinu
var ekki lokið þegar Bændablaðið fór í prentun
þannig að við vísum til vefsíðu Landsmóts hvað
úrslit varðar, www.landsmot.is.
Hulda G. Geirsdóttir var á staðnum og tók með-
fylgjandi myndir fyrir Bændablaðið.
Gleði á Landsmóti hestamanna
Guðlaugur Antonsson, hrossaræktar-
ráðunautur BÍ, tók þátt í setningu móts-
ins og stendur hér keikur með fána BÍ,
en hesturinn Kostur frá Tókastöðum
lætur sér fátt um finnast.
Einar K. Guðfinnsson, opnaði
íslenska hestatorgið formlega
og klæddist við það tilefni nýjum
hátíðarbúningi hestamanna.
Hinn þrautreyndi hestamaður Þorvaldur
Ágústsson á Hvolsvelli var að sjálfsögðu
mættur í brekkuna.
Rangárrokið hvein á köflum og hér er Páll Bragi Hólmarsson á
flugskeiði gegn vindinum á hesti sínum Fjarka frá Feti.