Bændablaðið - 13.05.2010, Side 3
ZADITEN 0,25 mg/ml, augndropar, lausn í stakskammtaílátum. Hver dropi inniheldur 9,5 míkróg af ketótifen hýdrógen fúmarati. Lyfjaform: Augndropar, lausn í stakskammtaílátum.
Gagnsæ, litlaus til daufgul lausn. Ábendingar: Til meðferðar á einkennum árstíðabundinnar ofnæmistárubólgu. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir, aldraðir og börn (3 ára og eldri): Einn
dropi af Zaditen í tárupoka augans tvisvar sinnum á dag. Innihald stakskammtaíláts nægir til að meðhöndla bæði augun. Innihaldið helst dauðhreinsað þar til innsiglið er rofið. Til þess að
forðast mengun á ekkert að snerta dropastútinn. Frábendingar: Ofnæmi fyrir ketótifeni eða einhverju hjálparefnanna. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Ef Zaditen er notað
samtímis öðru augnlyfi, verður að láta líða að minnsta kosti 5 mínútur á milli þess að lyfin eru notuð. Notkun ketótifens í inntöku getur aukið áhrif lyfja sem hafa bælandi áhrif á miðtauga-
kerfið, andhistamína og áfengis. Þó þetta hafi ekki komið fram eftir notkun Zaditen augndropa, er ekki hægt að útiloka möguleika á slíkum áhrifum. Meðganga og brjóstagjöf: Gæta skal
varúðar þegar lyfinu er ávísað handa barnshafandi konum. Konur með barn á brjósti mega nota Zaditen. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Sjúklingar sem finna fyrir sjóntruflunum
eða syfju eiga ekki að aka eða stjórna vélum. Aukaverkanir: Við ráðlagða skammta hafa eftirfarandi aukaverkanir verið tilkynntar: Aukaverkanir í augum: 1-2%: sviði/stingir, örsmá þekjusár
í hornhimnu. 1%: þokusýn eftir að lyfinu hefur verið dreypt í auga, augnþurrkur, óþægindi í augnlokum, tárubólga, særindi í augum, ljósfælni, blæðing undir táru. Almennar aukaverkanir:
1%: höfuðverkur, syfja, húðútbrot, exem, ofsakláði, munnþurrkur og ofnæmisviðbrögð. Handhafi markaðsleyfis: Novartis Healthcare A/S. Umboðsaðili á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, 210
Garðabær. Ath. textinn er styttur. Nánari upplýsingar fást hjá Novartis í síma 535 7000. Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota Zaditen.
- GEGN FRJÓKORNAOFNÆMI
ZADITEN fæst í handhægum
einnota hylkjum
ZADITEN AUGNDROPAR
VÆNTANLEG Í SUMAR