Bændablaðið - 13.01.2011, Qupperneq 23
: ! + ,
!
,#
+"'
)"+""
,
"
, !
,
+'
Stærð 6-12 mánaða.
Yfirvídd að neðan 41 cm
Yfirvídd undir höndum 35 cm
Ermalengd 21 cm
Lengd frá hálsmáli og niður 70 cm
Efni
Plötulopi 100 g tvöfaldur
Litur A 1427 , 3 plötur
Garn.is Mohair 1 þráður rautt, 2 dokkur
Lopi litur H hvítt no 01, 1 plata.
Garn.is Mohair hvítt 1 dokka
Lopi litur B Svart no 59
Garn.is Mohair svart 1 dokka.
Hringprjónn no 8, 80 sm og sokkaprjónar nr
8 fyrir ermar.
Aðferð:
Byrjað er að neðan.
Bolur, ermar og axlastykki eru prjónuð í hring.
Mynstur og úrtaka prjónuð eftir teikningu.
Litur A og H alltaf prjónaður sléttur.
Litur B prjónaður brugðinn þar sem stendur
Bbr, sléttur þar sem stendur Bsl.
Poki:
Byrjað að neðan.
Fitja upp 89 lykkjur og tengja í hring.
Prjóna 32 sm þá eru búin til göt fyrir miðju að
framan og aftan fyrir bílbeltið.
Fellt er af fyrir 6 lykkjum og þær svo fitjaðar
upp aftur í næstu umferð.
Eftir það eru prjónaðar 2 brugðnar lykkjur fyrir
ofan miðju gatsins að framan alla leið upp
en þar eru saumaðir í saumavél tveir saumar
með millibili sem er svo klippt upp og settur
rennilás.
Prjóna áfram þar til bolurinn mælist 46 sm þá
eru teknar úr 10 lykkjur jafnt yfir og prjónað
áfram þar til bolurinn mælist 54 sm.
Þá eiga að vera 79 lykkjur á prjóninum.
33 sem eru bakið 6 lykkjur sem eru settar á
hjálparprjón undir ermi, 16 lykkjur fyrir boð-
ung 2 brugðnar 16 fyrir hinn boðunginn 6
lykkjur á hjáparprjón .
Ermar:
Fitja upp 13 lykkjur á 2 sokkaprjóna nr 8 og
prjóna garðaprjón fram og til baka 6 garða.
(þetta er flipi sem er látinn snúa fram á erm-
inni.)
Fitja upp 13 lykkjur í viðbót og tengja í hring
með öllum 5 sokkaprjónunum.
Prjóna 15 umferðir og auka þá út um 2 L sitt-
hvoru megin við miðlykkju á undirermi eftir 7
umferðir og aftur eftir 3 umferðir.
Þá eiga alls að vera 32 lykkjur á prjónunum.
Prjónið þar til ermin mælist 21 sm.
Setja 6 lykkjur á miðri undirermi á hjálp-
arprjón.
Geyma og prjóna hina ermina eins.
Axlarstykki:
Sameina á hringprjón nr 8 bol frá miðju eins
og fyrr sagði 1 brugðin 16 boðungur í vikið þar
sem 6L voru settar á hjálparprjón er ermin 24 l
prjónuð við með lit A bakið 33 lykkjur og ermi
í hitt vikið 24 l , hinn boðungurinn næst og svo
1 brugðin.
Mynstur og úrtökur prjónaðar eftir teikningu.
Þegar því er lokið á hálsmálið að vera 45 lykkj-
ur.
Þá eru felldar af 2 brugðnu lykkjurnar og
prjónað fram og til baka.
Hetta:
Prjónið nú fram og til baka með lit A , 3
fremstu og 3 öftustu lykkjurnar eru prjónaðar
með garðaprjóni eða perluprjóni hitt slétt.
Auka út um 14 lykkjur eina í hvert bil milli
svörtu randanna í mynstrinu.
Prjónið þar til hettan mælist 19 sm. þá eru
lykkjurnar lykkjaðar saman byrjað fremst og
endað aftast .til að loka kollinum.
Rós
Fitjið upp með hvítu 4 loftlykkjur og tengið í
hring. Fitjið upp 3 loftlykkjur og gerið 1 fasta-
pinna í hringinn, alls 3 sinnum. Nú eiga að vera
3 loftlykkjubogar í hringnum, farið ofan í 1
loftlykkjubogann með 1 fastalykkju 5 stuðlum
1 fastalykkju og eins í næstu 2 loftlykkjuboga.
Snúið stykkinu við og (farið utan um 1 fasta-
pinnann sem var gerður þegar þið gerðuð 3
loftlykkjuboga) heklið 1 fastapinna fitjið upp 4
loftlykkjur og farið í 3 stuðull (miðjan) gerið 1
fastalykkju þar fitjið upp 4 loftlykkjur og farið á
milli 1 og 2 loftlykkjuboga gerið þetta svo loft-
lykkjubogarnir verði 6. Slítið frá hvítagarnið og
byrjið með rauðu. *1 fastalykkja frá réttu og
6stuðlar 1 fastalykkja* alls 6 sinnum snúið við
og búið til 6 loftlykkjuboga frá röngu. Snúið
aftur við á réttuna og heklið 1 fastalykkju 7
stuðla 1 fastalykkju í alla loftlykkjubogana alls
6 sinnum festið saman með 1 keðjulykkju og
slítið frá enda. Gangið frá endum og saumið
rósina á hettuna.
Frágangur:
Gangið frá öllum endum.
Saumið pokann saman að neðan.
Takið garðaprjónsflipann fremst á ermunum,
brjótið hann upp framan á erminni og saumið
hann fastan á hliðunum þá er hægt að bretta
hann yfir og mynda nokkurskonar vettlinga
eða loku svo litlum höndum verði ekki kalt.
Fallegra er að hekla fastahekl neðst á ermi yfir
þær lykkjur sem fitjaðar voru upp þegar búið
var að hekla flipann, ekki nauðsynlegt.
Lykkjið saman undir ermum .
Saumið eins og áður sagði meðfram brugðnu
lykkjunum að framan þannig að hægt sé að
klippa upp á milli saumanna.
Heklið fastahekl með rauðu í aðra hverja
lykkju 3 umf. Í annari umferð eru búin til 6
hnappagöt með jöfnu millibili eða
heklið fastahekl með svörtu í aðra hverja
lykkju allan hringinn og saumið í rennilás .
Heklið meðfram götunum fyrir bílbeltið til að
styrkja þau.
Þvoið og leggið til þerris.
Hlýr og góður kerrupoki
C+;
,8H
F '
<+ + # 1
!
' C # + +
# 677
, 3
, ' C+ ,
+
F
,+ F F N Y&
L
B
0Y+H
YL &+Y E$ 00 Y9
< !
T> < "",#!T
90 ."",
YL
."",,
Y8 '
."",
3YD / B3
! T* //
0 (
Z !+ ! "
, TB$/
0
< !
!+ TD-
-
'
< !+ ! !+ T%
- < !
!+
, T*/
(
< !
!+, T?/
Z!+, T2
0 Q#
Stefnir á að komast í splitt í vetur!
: &
A -
+
#' &0 *
#+ "% !
-_ #" '&
!* % &
' !
9 %0& **',
O*1''?
-6
'C
'9**',
*1''?
-#
*',
#
,07*99-$.
9'0
,*',
G%
!" ##$#