Fréttatíminn - 15.06.2012, Síða 58
H ann verður náttúrlega átt-ræður núna í júli kallinn og við ætlum að vera fyrstir en
síðan verður sýning í Listasafninu
í haust,“ segir Njörður og bætir við
að „skemmtilegast við þetta er að
sýningin er í fullu samráði við Erró.
Þetta eru þessar klassísku teikni-
myndir og hasarfígúrur og eru úr
hans prívat upplagi. Verkin koma
öll frá honum og hafa ekki verið í
höndum neinna annarra.“
Verkin sem um ræðir eru frá tutt-
ugu ára tímabili, frá 1990 til 2010 og
hafi einhverjir alið sér þann draum
í brjósti að eiga Erró upp á vegg þá
gæti tækifærið gefist núna þar sem
myndirnar eru á nokkuð viðráðan-
legu verði að mati Njarðar.
„Þau kosta eitthvað í kringum
hundrað til tvöhundruð þúsund
þannig að verðin eru alls ekki út úr
kortinu og það er raunhæfur mögu-
leiki fyrir marga að eignast nú verk
eftir hann. Ég held mér sé óhætt
að fullyrða að þetta sé ódýrara en
annars staðar í Evrópu.“ Helmingur
söluhagnaðar rennur síðan í sjóð
Guðmundu S. Kristinsdótt-
ur, sem Erró stofnaði fyrir
áratug og er notaður til að
styrkja ungar og efnilegar
íslenskar listakonur.
Sýningin er haldin á
nokkuð óvenjulegum stað,
í Brekkugerði 19. Högna
Sigurðardóttir arkitekt
teiknaði húsið og Njörður
segir það sérlega ánægju-
legt að tengja Erró og
Högnu saman með þessu
móti en þau eru nánast
jafnaldrar, hafa þekkst um
langt árabil og hafa bæði verið bú-
sett í París mestan hluta ævi sinnar.
„Þannig að okkur datt í hug að
halda þetta hér. Þetta er skemmti-
legur vinkill og gaman að
gera eitthvað öðruvísi,“
segir Njörður.
Njörður segir líka fara
vel á því að kynna saman
verk eftir þessa tvo þekkt-
ustu listamenn Íslendinga
á franskri grundu. Bæði
hafa þau hlotið fjölda
alþjóðlegra viðurkenn-
inga og Erró hefur meðal
annars verið sæmdur
orðu frönsku Heiðurs-
fylkingarinnar í tvígang.
Högna tók sæti í hinni
virtu Frönsku byggingarlistaraka-
demíu árið 992 og mati sérfræðinga
hefur íslensk arfleifð þeirra Errós
og Högnu sett afgerandi mark á
vinnubrögð þeirra.
Erró er um þessar mundir fjarri
daglegu amstri á siglingu um
heimsins höf en þegar Fréttatíminn
ræddi við hann í fyrra sagðist hann
ætla að fara að skapa sér svolítið
meiri tíma til að vinna. „Það fer svo
mikill tími í þetta sýningavesen.
Það er að svo mörgu að huga í
kringum sýningar.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Sígildar myndir á
viðráðanlegu verði
Erró SöluSýning á áttræðiSafmæli
Njörður Ingi Snæhólm er á fullu við að koma verkum Errós fyrir á veggjum hússins að
Brekkugerði 19 en fornvinkona Errós, Högna Sigurðardóttir, teiknaði húsið. Ljósmynd/Hari
Erró er að verða áttræður, er enn í fullu
fjöri og ætlar að reyna að skapa sér
meiri tíma til að vinna að list sinni.
Myndlistarmaðurinn Erró verður áttatíu ára í júlí og af því tilefni opnar sölusýning á grafíkverkum úr
einkasafni hans á laugardaginn. Myndirnar á sýningunni eru frá tuttugu ára tímabili og „eru þessar
klassísku teiknimyndir og hasarfígúrur,“ eins og Njörður Ingi Snæhólm, sýningarhaldari orðar það.
Verkin þykja á nokkuð viðráðanlegu verði og leggja sig einhvers staðar á bilinu 100-200 þúsund.
Sölusýn-
ingin opnar
að Brekku-
gerði 19
laugardag-
inn 16. júní
klukkan 14
og stendur
til 2. júlí.
Sólstöðuhátíð víkinga
í Hafnarfirði 14.- 17. júní 2012
Nú líður að því að 16. hátíðin verði sett og að vanda verður hún fjölbreytt. Dágóður hópur
erlendra víkinga kemur til okkar, sumir í sextánda skiptið. Stór hluti þeirra er frá Færeyjum
og einn besti handverksmaður Grænlands verður með á hátíðinni. Þá má geta þessa að
Víkingahljómsveitin Krauka kemur fram á hátíðinni en meðlimir hennar eru frá öllum
Norðurlöndunum og forsprakki þeirra er okkar maður Guðjón Rudolf. Víkingahljómsveitin
Rósin okkar og víkingahljómsveit Fjörukráarinnar munu koma fram af og til á hátíðinni.
Víkingarnir eru sögumenn, götulistamenn, handverksmenn sem bæði höggva í steina og
tré eða berja glóandi járn, bardagamenn og bogamenn, svo eitthvað sé nefnt.
Víkingahópurinn Rimmugýgur og fjöldinn allur af víkingum víðsvegar af landinu hefur boðað
komu sína hingað til okkar. Á þriðja hundrað víkingar verða á svæðinu þegar mest lætur og
fjölhæfir eru þeir eins og sjá má af upptalningunni hér fyrir framan.
Dansleikir eru fastir liðir meðan á hátíðinni stendur. Hjómsveitin Dans á Rósum mun spila
föstudags- og laugardagskvöld en fimmtudags- og sunnudagskvöld munu ýmsir víkingar
sem á hátíðinni verða stíga á stokk og láta ljós sitt skína, eins munu þeir hita upp fyrir
dansleikina.
Að lokum vil ég þakka þeim sem stutt hafa þetta framtak í gegnum árin en lógóin þeirra
má sjá á dagskránni. Þeir hafa ekki brugðist og eru búnir að standa með okkur í gegnum
öll árin, verður þeim seint fullþakkað.
Það er von mín að þessi hátíð eigi eftir að halda uppi merki víkinga og halda áfram að
gleðja þá gesti sem á hátíðina koma.
Gleðilega Sólstöðuhátíð Víkinga
Jóhannes Viðar Bjarnason
Fjölskylduhátíð
Nánari upplýsingar er að finna á heimsíðu okkar www.fjorukrain.is
Sólstöðuhátíð víkinga er fyrir alla fjölskylduna
14. til 17. júní 2012
Víkingamarkaður, handverks- og
bardagavíkingar, fornir leikir, glíma, bogfimi og
axarköst, fjöllistamenn, víkingaskóli fyrir
börn, brúðkaup að hætti víkinga,víkingatónlist,
eldsteikt lamb, víkingaveislur, kvöldvaka að
hætti víkinga, dansleikir, o.fl. o.fl.
HOTEL
& Restaurants
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
SUMARDAGAR Í BÍÓ PARADÍS!
16. JÚNÍ KL. 20
UNG GOODBYEFIRSTLOVE
Myndin sem
slegið hefur í
gegn í Evrópu
og vestanhafs
á undanförnum
vikum!
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 sýningar á 11.900 kr.
með leikhúskorti
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 15/6 kl. 19:30 Mið 20/6 kl. 19:30 AUKASÝN. Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 16/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 23. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní.
Afmælisveislan (Kassinn)
Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Fös 15/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins
(Kassinn)
Fös 22/6 kl. 19:30
Aeðins þessi eina sýning!
Vesalingarnir HHHHH og 9 grímutilnefningar
- SÍÐUSTU SÝNINGAR!
58 menning Helgin 15.-17. júní 2012