Baldur - 08.01.1955, Blaðsíða 2
2
BALDUR
Útgefendur: Sósíalistafélögin á Vestfjörðum.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Ólafsson.
Árgangurinn kostar kr. 20.00. Gjalddagi 1. júlí.
Lausasöluverð 1.00 króna.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiini
Málgagn sósfalista á Vestfjörðum.
Frá því Baldur fyrst hóf göngu
sína, hefir hann litið á sig sem
málgagn sósíalista og annarar
alþýðu á Vestfjörðum, og reynt
að rækja það hlutverk eftir því,
sem unnt hefir verið.
Meðan blaðið var fjölritað, eða
fram til ársins 1942, reyndist
þetta ógerlegt, enda var það þá
eingöngu selt í lausasölu hér inn-
anbæjar. En þegar blaðið fór að
koma út prentað, bötnuðu skil-
yrðin á margan hátt, þó hafa
verið ýmsir erfiðleikar í vegi. En
þeir eru einkum þessir:
Blaðið hefir komið mjög óreglu-
lega út, oftast nær, og þar af
leiðandi orðið að eyða mestu af
rúmi sínu í þau mál, sem ísa-
fjörð varðaði sérstaklega, þó hef-
ur það ætíð reynt að taka þátt
í umræðum um almenn landsmál,
eftir því sem rúm þess hefur
leyft.
Það hefur reynzt mjög erfitt
að fá Vestfirðinga utan Isafjarð-
ar til að skrifa í blaðið og senda
því fréttir, en til þess að fólk í
hinum ýmsu byggðarlögum á
Vestfjörðum líti á blaðið, sem
sitt málgagn, verður það að hafa
möguleika á að skrifa um þau
mál, sem þar eru efst á baugi, en
það er ekki hægt nema með að-
stoð einhvers í hverju byggðarlagi,
Útbreiðsla blaðsins hefur held-
ur ekki verið eins góð og æski-
legt væri, stafar það m.a. af
fyrrgreindum ástæðum og einnig
vondum samgöngum, einkum á
veturna, en þá er oftast bezt
regla á útkomu þess.
Á ráðstefnu, sem sósíalistar á
Vestfjörðum héldu hér á ísafirði
Á jólunum í vetur var kveikt
hér á þremur nýjum jólatrjám
auk þeirra tveggja, sem áður
hafa verið, hjá Skátaheimilinu og
á Austurvelli. Þessi nýju jólatré
voru á Sjúkrahússtúninu, Silfur-
torgi og á hafnargarðinum í
Neðsta. Umhverfis jólatréð á
Silfurtorgi voru hengdir greni-
sveigar prýddir marglitum ljós-
um. Að öllum þessum stóru jóla-
trjám var mikil prýði og settu
þau sérstakan hátíðasvip á bæinn.
Veður var líka sérstaklega gott
alla hátíðisdagana, jörð hvít af
snjó, logn og örlítið frost, en
í vor, var rætt um útgáfu Bald-
urs og nauðsyn þess að hann
verði raunverulegt málgagn sós-
íalista á Vestfjörðum.
Á þeirri ráðstefnu var eftir-
farandi samþykkt:
„Sósíalistafélögin á Vestfjörð-
um taki að sér útgáfu Baldurs,
vinni að því að gera hann að
málgagni sósíalista á Vest-
fjörðum og reyni að útbreiða
blaðið eftir megni.
Einnig sjái sósíalistafélögin
utan lsafjarðar til þess, að
blaðinu verði sendar reglulega
almennar fréttir og greinar um
þau mál, sem efst eru á baugi
á hverjum stað, og hjálpi til
þess að gera blaðið þannig úr
garði, að almenningur finni að
það sé hans málgagn. Verði
stefnt að því, að blaðið fái
umboðsmenn í hverju byggðar-
Iagi á Vestfjörðum“.
í samræmi við þessa samþykkt,
þykir rétt að það komi fram í
blaðinu sjálfu, að það er málgagn
sósíalista á Vestfjörðum og gefið
út af sósíalistafélögunum þar.
Á Vestfjörðum eru nú starf-
andi fjögur sósíalistafélög, á
Þingeyri og í Mýrahreppi í
Dýrafirði, á Suðureyri í Súganda-
firði, í Bolungarvík og á Isafirði.
Er hér með skorað á þessi félög
að hefjast nú handa og gera allt
sem þeim er mögulegt til að
áðurnefnd samþykkt verði fram-
kvæmd, einkum hvað snertir út-
breiðslu blaðsins og tengsl þess
við hin ýhisu byggðarlög. Jafn-
framt er þess vænzt að alþýða
á Vestfjörðum leggi hönd á
plóginn.
það er jólaveður, sem vert er um
að tala.
Þá má líka geta þess, að á
forhlið Alþýðuhússins og í
gluggana á turni slökkvistöðvar-
innar voru sett ljós í öllum regn-
bogans litum, auk þess sáust lítil
jólatré úti hjá einstaka húsi.
Ekki þarf að efa, að þessi jóla-
skreyting hefur glatt bæjarbúa
og komið þeim í hátíðaskap. Þó
var þar ein undantekning. Rétt
fyrir jól var tilraun gerð til að
eyðileggja jólatréð á Silfurtorgi
að næturlagi. Voru þar að verki
tveir ungir menn, sem báðir eru
NÍIR BORGARAR:
Friðlín fædd á ísafirði 4. febr.
1954, skírð 30. nóvember 1954.
Foreldrar: Eva Júlíusdóttir' og
Amar Jónsson, ísafirði.
Jón fæddur á ísafirði 21. sept.
1954. Foreldrar: Jóhanna Bárðar-
dóttir og Grímur Jónsson, Isa-
firði..
Snæbjörn fæddur á ísafirði 21.
sept. 1954. Foreldrar: Fríða Gísla-
dóttir og Pétur Blöndal Snæ-
björnsson, ísafirði.
Kristinn Búnar fæddur á ísa-
firði 29. júlí 1954. Foreldrar:
Gréta Jóna Jónsdóttir og Her-
mann Sigurðsson, Isafirði.
Harry Samúel fæddur á ísafirði
17. ágúst 1954. Foreldrar: Þor-
björg Samúelsdóttir og Stígur
Herlufsen, ísafirði.
Hrólfur fæddur á ísafirði 23. apr.
1954. Foreldrar: Sesselja Ásgeirs-
dóttir og Ólafur Halldórsson, Isa-
firði.
Þórliallur Jónas fæddur á ísa-
firði 15. sept. 1954. Foreldrar:
Þorgerður Ragnarsdóttir og Krist-
ján Jónasson, ísafirði.
Grétar Alfons fæddur í Hnífs-
25. júlí 1954. Foreldrar: Helga
Alfonsdóttir og Halldór Jakob
Þórarinsson, Hnífsdal.
Halldór fæddur á ísafirði' 26.
júní 1954. Foreldrar: Þórunn Frið-
rikka Vernharðsdóttir og Sigurð-
ur Anton Ólafsson, Hnífsdal.
Freyja Margrét fædd í Reykja-
vík 25. júlí 1954. Foreldrar: Stein-
unn Gestsdóttir og Bjarni Gests-
son
Ingibjörg Margrét fædd á ísa-
firði 15. júní 1954. Foreldrar:
Ingibjörg Elín Valgeirsdóttir og
Jónas Pétursson Isafirði.
Kristjana Margrét fædd á Isa-
firði 31. marz 1954. Foreldrar:
Hjaltlína Agnarsdóttir og Jóhann-
es Bjarnason, ísafirði.
María fædd á Isafirði 20. sept.
1954. Foreldrar Herborg Vern-
harðsdóttir og Ingólfur Hálfdán
Eggertsson, ísafirði.
Öll skírð 25. des. 1954.
W
komnir af óvitaaldri. Sennilega
hafa þeir verið ölvaðir, en það
afsakar ekki ómenningu þeirra og
lubbaskap, enda áreiðanlega vitað
hvað þeir voru að gera. Er það
einkennileg ónáttúra að hafa gam-
an af aú eyðileggja það, sem
gert er aimenningi til ánægju og
miklum tíma og fé kostað til.
Væri san rarlega ástæða til að
birta nöf i slíkra pilta, þó að það
verði ekki gert að þessu sinni.
Svanfríður fædd á ísafirði 18.
marz 1954, skírð 26. des 1954.
Foreldrar: Málfríður Halldórs-
dóttir og Arnór Stígsson, ísafirði.
Elísabet María fædd á ísafirði
16. nóv. 1954, skírð 31. des 1954.
Foreldrar: Ingileif Guðmunds-
dóttir og Ástvaldur Björnsson,
ísafirði.
Guðrún Hansína fædd á Isafirði
25. ágúst 1954. Foreldrar Ásgerð-
ur Kristjánsdóttir og Guðmundur
Eðvarðsson, ísafirði.
Gunnar Benedikt fæddur á ísa-
firði 4. sept. 1954. Foreldrar:
Halldóra Benediktsdóttir og Bald-
vin Árnason Ísafirði.
Guðmundína fædd á ísafirði 14.
nóv. 1954. Foreldrar: Pálína Páls-
dóttir og Sturla Ólafsson, ísafirði.
Guðrún Ásgerður fædd á Isa-
firði 25. apríl 1954. Foreldrar:
Elín ólafsdóttir og Jens Markús-
son, Isafirði.
Öll skírð 1. janúar 1955.
Halldór fæddur á Isafirði 14.
október 1954. Foreldrar: Ólafía
Elísabet Agnarsdóttir og Ebenez-
er Þórarinsson, Tungu Eyrarhr.
Guðmundur Stefán fæddur á
ísafirði 30. október 1954. For-
eldrar: Málfríður Finnsdóttir og
Marías Þ. Guðmundsson, Isafirði.
Lilja Svanhvít fædd á Isafirði
9. ágúst 1954. Foreldrar: Jóhanna
Vilhjálmsdóttir og Stefán Jóns-
son, Isafirði.
Öll skírð 2. janúar 1955.
Dánardægur.
Aðalsteinn Jónasson bóndi á
Laugabóli í Ögursveit andaðist
þar 27. nóv. s.l. Hann var fæddur
á Birnustöðum í Ögursveit 17.
apríl 1888.
Vigfús Sigurðsson vistmaður á
Elliheimili Isafjarðar andaðist 22.
nóv. s.l. Hann var fæddur 26. sept
1864 í Flatey á Breiðafirði.
Adolph Schmidt, 56 ára gamall
vélstjóri frá Hamborg í Þýzka-
landi, varð bráðkvaddur um borð
í þýzku skipi, sem statt var á
Húnaflóa 2. des. s.l. Hann var
jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju.
Hjúskapur.
Gefin verða saman í hjónaband
á Suðureyri n.k. sunnudag Sig-
ríður Friðbertsdóttir og Albert
Karl Sanders skrifstofumaður ísa-
firði.
Þann 25. desember s.l. voru
gefin saman í hjónaband af
sóknarpresti, séra Sigurði Krist-
jánssyni, Sesselja Brynjólfsdóttir
og Garðar Jónsson, Isafirði; Bára
Magnúsdóttir Isafirði og Ámi
Brynjólfsson Akureyri.
Þann 1. þ.m. voru gefin saman
í hjónaband af sóknarpresti, séra
Sigurði Kristjánssyni, Anna Sól-
veig Bjarnadóttir og Kári Sam-
úelsson Isafirði; Jónína Nielsen
hjúkrunarkona og Gunnlaugur Ó.
Guðmundsson, póstmaður, Isa-
firði.
Jðlaskreyting og lubbamennska.