Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1932, Blaðsíða 28
26
en þaS er sett í formolblönduna. Þess vegna á 4% formolblanda
aS vera tilbúin í glasi i hverjum skurðarsal.
Þvag, mænuvökvi og aSrir líkamsvökvar, sem rannsaka á fyrir
frumum, verða að koma ferskir til rannsóknar, áSur en frum-
urnar leysast upp.
Bakteriologiska ræktun út frá blóSi sjúklingsins er bezt aS gera
þannig, aS steypa agarplötur við rúmstokkinn. En þar sem ekki
er unnt að koma því viS, má sá út í 10% pepton-kjötseyði, sem
læknar geta fengið afhent í rannsóknastofunni.
Autovaccine er búið til í rannsóknastofunni, þegar ástæða þyk-
ir til, einkum gegn furunculosis. Til þess nægir að senda ögn
af greftri í dauðhreinsuðu glasi.
Allar rannsóknir fyrir næmum sjúkdómum, eru gerðar ókeypis,
en um önnur verk gilda eftirfarandi taxtar:
Histologisk rannsókn ............................... kr. IQ.00
Smásjárrannsókn í þvagi ............................. — 4.00
Einföld þvagrannsókn ...............................— 2.00
Ormarannsókn í saur ................................ — 5.00»
Blóðrannsókn í saur ................................ — 2.00*
Smásjárrannsókn á hárum ............................— 5.00
Differentialtalning í blóði (,,blóðmynd“) ........ — 8,00
Blóðsykursrannsókn ................................. — 10.00
Mænuvökvarannsókn (eggjahvíta, sykur, frumutalning,
bakteriologisk rannsókn) ......................... — Í0.0O
Mjólkurrannsókn, einföld smásjárrannsókn . .:....... — 4.00
---- talning á gerlum ............. — 15.00
Vaccineframleiðsla (autovaccine) ................... — 20.00
Einföld smásjárrannsókn ............................ — 4.00
Sýklarannsókn með ræktun ...........................— 5.00
Ýms fróðleikur.
Intoxicationes acutae.
Ekki er ávalt létt að ákveða, að um bráða eitrun sé að ræða.
Sjúklingarnir hafa oft tekið inn eitrið til þess að stytta sér ald*-
ur, og er því lítt mark takandi á framburði þeirra, þó við með-
vitund séu, og gefið gætu upplýsingar. Auk þess hafa þeir oft
falið eða eyðilagt glös eða hylki, sem eitrið var í, til þess að
villa aðstandendum og lækni sýn.
Sumar eitranir gefa allskýr klinisk einkenni (strychnin, mor-