Morgunblaðið - 24.12.2011, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTAMAÐUR
ÁRSINS
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Kjöri íþróttamanns ársins 2011
verður lýst í byrjun nýs árs, nánar
tiltekið fimmtudaginn 5. janúar.
Það eru Samtök íþróttafrétta-
manna, SÍ, sem kjósa íþróttamann
ársins og er þetta 56. árið sem þau
standa fyrir kjörinu. Samtökin
voru stofnuð árið 1956 af Frímanni
Helgasyni, Halli Símonarsyni, Sig-
urði Sigurðssyni og Atla Stein-
arssyni, en Atli er einn eftirlifandi
af stofnendunum fjórum.
Í Samtökum íþróttafréttamanna
eru 22 meðlimir um þessar mundir
og allir nýttu atkvæðisrétt sinn.
Þeir eru frá Morgunblaðinu,
Fréttablaðinu, RÚV, Stöð 2, DV,
Skinfaxa og Fótbolta.net. Aðeins
þeir sem eru í fullu starfi sem
íþróttafréttamenn eru gjaldgengir
í samtökunum og í kjörinu.
Vilhjálmur kjörinn oftast
Nú liggur fyrir hverjir höfnuðu í
tíu efstu sætunum og hér fyrir ofan
má sjá hverjir það eru, í stafrófs-
röð. Athygli vekur að á listanum í
ár er aðeins einn þeirra sem var í
hópi tíu efstu í fyrra. Það er Aron
Pálmarsson sem hafnaði í 4. sætinu
árið 2010.
Í þau 55 skipti sem Samtök
íþróttafréttamanna hafa staðið að
kjörinu hafa 36 íþróttamenn orðið
fyrir valinu. Oftast hefur Vil-
hjálmur Einarsson þrístökkvari
hreppt útnefninguna, fimm sinn-
um. Ólafur Stefánsson handknatt-
leiksmaður hefur fjórum sinnum
hlotið þessa vegsemd en þeir Einar
Vilhjálmsson spjótkastari, Hreinn
Halldórsson kúluvarpari og Örn
Arnarson sundmaður hafa verið
kjörnir þrisvar hver.
Áður en kjöri íþróttamanns árs-
ins verður lýst mun ÍSÍ afhenda
viðurkenningar til þeirra íþrótta-
karla og -kvenna hjá sér-
samböndum sínum sem þótt hafa
skara fram úr á árinu 2011. Þetta
verður í sextánda sinn sem Samtök
íþróttafréttamanna og ÍSÍ standa
að sameiginlegri hátíð sem nær há-
punkti þegar íþróttamaður ársins
2011 verður útnefndur.
Frjálsíþróttafólk í 21 skipti
Íþróttamenn úr níu íþróttagrein-
um hafa verið útnefndir íþrótta-
maður ársins. Frjálsíþróttamenn
hafa oftast orðið fyrir valinu eða 21
sinni. Handboltamenn hafa 11
sinnum verið valdir, sundmenn og
fótboltamenn hafa átta sinnum ver-
ið valdir, kraftlyftingamenn þrisv-
ar sinnum og í eitt skipti hafa
körfuboltamaður, júdómaður,
hestamaður og fimleikamaður hlot-
ið sæmdarheitið.
Handboltamenn og fótbolta-
menn hafa hlotið þessa viðurkenn-
ingu frá 2002. Ólafur Stefánsson
fjórum sinnum, Eiður Smári Guð-
johnsen tvisvar sinnum og þau
Guðjón Valur Sigurðsson, Margrét
Lára Viðarsdóttir og Alexander
Petersson í eitt skipti hvert.
Alls hafa 32 karlar verið kjörnir
íþróttamenn ársins en aðeins fjór-
ar konur hafa hlotið þennan eft-
irsótta titil. Sú fyrsta var hand-
boltakonan Sigríður Sigurðardóttir
árið 1964. Sundkonan Ragnheiður
Runólfsdóttir varð fyrir valinu
1991, Vala Flosadóttir stang-
arstökkvari árið 2000 og knatt-
spyrnukonan Margrét Lára Við-
arsdóttir árið 2007.
Sex karlar og fjórar konur eru á
meðal tíu efstu að þessu sinni.
Þetta er þriðja árið í röð og í sjötta
skiptið alls sem fjórar konur eru á
listanum en til þessa hafa karlar
ávallt verið í meirihluta.
Aðeins einn eftir af
tíu efstu frá í fyrra
Kjöri íþróttamanns ársins lýst 5. janúar Mikil endurnýjun frá kjörinu í
fyrra Aðeins einn þeirra sem var í hópi tíu efstu í fyrra er á listanum í ár
Morgunblaðið/Kristinn
2010 Alexander Petersson handboltamaður er núverandi handhafi titilsins
Íþróttamaður ársins og er hér við hliðina á verðlaunagripnum stórbrotna.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011
1956
1957
1958
1959
1960
1961
1962
1963
1964
1965
1966
1967
1968
1969
1970
1971
1972
1973
1974
1975
1976
1977
1978
1979
1980
1981
1982
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
Íþr
Afrek
Stefá
Anna er 26 ára gömul, línumaður í
landsliði Íslands í handknattleik og
Val. Hún var valin besti leikmaður
Íslandsmótsins 2010-2011 en þar
varð hún Íslandsmeistari með Val,
og hún var líka valin besti varn-
armaður mótsins. Anna var í stóru
hlutverki í landsliði Íslands sem lék í
fyrsta skipti í lokakeppni heims-
meistaramótsins og kom þar veru-
lega á óvart með því að sigra Svart-
fjallaland, Þýskaland og Kína og
hafnaði í 12. sæti.
Anna Úrsúla
Guðmundsd.
Aron er 21 árs gamall, miðjumaður í
landsliði Íslands í handknattleik og
þýska stórliðinu Kiel. Aron var lyk-
ilmaður í íslenska landsliðinu sem
hafnaði í 6. sæti í heimsmeist-
arakeppninni í Svíþjóð. Hann hefur
einnig verið í talsverðu hlutverki hjá
Kiel sem varð þýskur bikarmeistari
2011 og síðan heimsmeistari fé-
lagsliða. Liðið hefur síðan unnið alla
leiki sína í Þýskalandi á yfirstand-
andi tímabili og er þar með umtals-
verða yfirburði.
Aron
Pálmarsson
Ásdís er 26 ára gömul, spjótkastari
úr Ármanni. Hún hafnaði í 13. sæti á
heimsmeistaramótinu í Daegu 2011
þegar hún kastaði 59,15 metra og
var hársbreidd frá því að komast í
úrslitakeppnina. Sá árangur tryggði
henni keppnisrétt á Ólympíu-
leikunum 2012. Ásdís keppti jafn-
framt á nokkrum stórmótum þar
sem aðeins þeim bestu í hverri grein
er boðin þátttaka. Hún er með 28.
besta árangur í Evrópu á þessu ári
og er í 41. sæti á heimslistanum.
Ásdís
Hjálmsdóttir
Heiðar er 34 ára gamall, framherji
enska úrvalsdeildarliðsins QPR og
íslenska landsliðsins í knattspyrnu,
sem hann reyndar hætti með frá og
með haustinu 2011. Heiðar hefur
verið í stóru hlutverki með QPR á
árinu. Veturinn 2010-11 skoraði
hann 13 mörk og tók þátt í að
tryggja liðinu sigur í ensku B-
deildinni, og núna í vetur er hann
langmarkahæsti leikmaður liðsins í
úrvalsdeildinni með sjö mörk í ellefu
leikjum.
Heiðar
Helguson
Jakob er 29 ára gamall bakvörður í
landsliði Íslands í körfuknattleik og
sænska meistaraliðinu Sundsvall
Dragons. Jakob var valinn besti leik-
maðurinn og besti bakvörðurinn í
sænsku úrvalsdeildinni tímabilið
2010-11 en hann átti stóran þátt í að
tryggja Sundsvall meistaratitilinn
með frammistöðu sinni í úrslitaleikj-
unum um vorið. Þá var hann valinn í
úrvalslið Norðurlandamótsins sum-
arið 2011 þar sem Ísland hafnaði í
þriðja sæti.
Jakob Örn
Sigurðarson
SigmundurMár Her-
bertsson körfu-
boltadómari mun
dæma Evrópu-
leik á milli lið-
anna BK Vent-
spils frá
Lettlandi og ZZ
Leiden frá Hol-
landi þann 17. janúar á næsta ári.
Sigmundur hefur dæmt nokkra leiki
á Evrópumótunum í vetur og nýver-
ið dæmdi hann í Litháen í Evr-
ópudeild kvenna og í Hollandi hjá
körlunum.
Spænska knattspyrnuliðið Atle-tico Madrid réð í gær Diego Si-
meone, fyrrverandi fyrirliða argent-
ínska landsliðsins, í starf þjálfara.
Hann leysir Gregorio Manzano af
hólmi en forráðamenn Madridarliðs-
ins ákváðu að segja honum upp
störfum eftir tap gegn Albacete í
vikunni þegar þau áttust við bik-
arkeppninni.
Arnar Sigurðs-son úr
Tennisfélagi
Kópavogs og
Hjördís Rósa
Guðmundsdóttir
úr Badmin-
tonfélagi Hafn-
arfjarðar hafa
verið útnefnd tennismaður og tenn-
iskona ársins 2011. Þetta er í fimm-
tánda skipti sem Arnar hlýtur til-
nefninguna og jafnoft hefur hann
verið Íslandsmeistari utanhúss eða
allt frá árinu 1997. Arnar var tvö-
faldur Íslandsmeistari utanhúss á
árinu í einliða- og tvíliðaleik. Þetta
er í fyrsta skipti sem Hjördís Rósa
hlýtur þessa tilnefningu enda er hún
einungis 14 ára gömul. Hjördís Rósa
náði þeim merka áfanga að vera fjór-
faldur Íslandsmeistari innanhúss og
utanhúss í einliðaleik, þ.e. í U14,
U16, U18 og meistaraflokki kvenna.
Möguleiki er á því að Liverpoolendurheimti fyrirliðann Ste-
ven Gerrard þegar liðið tekur á móti
Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á öðrum degi jóla.
Gerrard hefur verið frá keppni
vegna meiðsla síðustu tvo mánuðina
en er allur að koma til. ,,Gerrard hef-
ur æft vel. Við munum athuga
ástand hans á leikdegi,“ sagði Kenny
Dalglish, knattspyrnustjóri Liver-
pool, í gær.
Fólk sport@mbl.is