Morgunblaðið - 24.12.2011, Qupperneq 3
ENGLAND
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Í fyrsta sinn síðan árið 1929 trónir Manchester
City í toppsæti efstu deildarinnar á Englandi
nú þegar jólin ganga í garð. City, sem hefur
verið í forystusætinu nær allt tímabilið, hefur
tveggja stiga forskot á granna sína í Manchest-
er United og eftir úrslit síðustu leikja eru flest-
ir sparkspekingar þeirrar skoðunar að það
stefni í einvígi Manchester-liðanna um Eng-
landsmeistaratitilinn í ár.
Tottenham, Chelsea, Arsenal og Liverpool
eru líklega annarrar skoðunar en þau hafa ekki
sýnt sama stöðugleika og City og United og
fyrir vikið hefur bilið aukist á milli þeirra og
hinna liðanna.
Fagnar Ferguson 70 ára afmælinu í
toppsætinu?
Manchester City spilar næstu tvo leiki sína á
útivelli, gegn WBA og Sunderland, en Eng-
landsmeistarar United eiga aftur á móti tvo
heimaleiki, gegn Wigan og Blackburn, og bind-
ur sir Alex Ferguson, stjóri United, vonir við
að sínir menn verði komnir á kunnuglegar slóð-
ir, það er í toppsætið, þegar nýtt ár gengur í
garð. Það yrði líklega besta afmælisgjöfin sem
hann fengi frá lærisveinum sínum en Ferguson
fagnar 70 ára afmæli sínu á gamlársdag og
þann dag mætir United botnliði Blackburn.
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Man-
chester City, heldur því nú fram að sínir menn
séu komnir í það hlutverk sem grannarnir í
United hafa verið í mörg undanfarin ár, það er
að andstæðingarnir óttist að mæta þeim.
„Mér finnst það sama vera að gerast hjá
okkur og gerðist hjá Manchester United. Öll
liðin sem mættu United gerðu það með ótta.
Þau þorðu ekki að sækja fram á völlinn lang-
tímum saman og kannski er þetta að gerast
þegar liðin mæta okkur,“ segir Mancini. „Ég er
ánægður að vera á toppnum um jólin og ég er
sérlega ánægður fyrir hönd stuðningsmanna
félagsins. Þeir geta átt góðan jóladag,“ segir
Ítalinn.
Gengi Manchester United á útivelli á þessu
tímabili hefur fleytt liðinu á þann stað sem það
er en það hefur unnið jafnmarga leiki á útivelli
á þessu tímabili og alla leiktíðina í fyrra. Í níu
útileikjum hefur United unnið sjö og gert tvö
jafntefli. Á sama tíma í fyrra voru meistararnir
aðeins með 13 stig af 27 mögulegum á útivelli
en núna eru stigin 23 af 27 mögulegum.
„Þetta eru ótrúleg umskipti. Í fyrra töpuðum
við aðeins tveimur stigum á heimavelli allt
tímabilið en áttum í basli á útivelli. Núna höf-
um við þegar tapað fimm stigum á heimavelli
en við höfum náð að bæta fyrir það á útivelli,“
segir Wayne Rooney, framherji United.
Rooney hugsar sér gott til glóðarinnar en
framundan eru tveir heimaleikir.
„Við eigum frábæra möguleika á að vinna
þessa tvo leiki. Við verðum að halda áfram að
sækja að City og vera klárir ef þeim verður
eitthvað á í messunni,“ segir Rooney.
Reuters
Efstir Roberto Mancini er með sína menn í Man-
chester City í toppsætinu fyrir jólatörnina.
Allt stefnir í einvígi
Manchester City fagnar jólum á toppnum í fyrsta sinn í 82 ár Meistarar
Manchester United bíða færis að velta nágrönnum sínum í City af stalli
Mánudagur 26. desember
13.00 Chelsea – Fulham
15.00 Bolton – Newcastle
15.00 Liverpool – Blackburn
15.00 Manch.Utd – Wigan
15.00 Sunderland – Everton
15.00 WBA – Manch. City
19.45 Stoke – Aston Villa
Þriðjudagur 27. desember
15.00 Arsenal – Wolves
17.00 Swansea – QPR
19.30 Norwich – Tottenham
Föstudagur 30. desember
19.45 Liverpool – Newcastle
Laugardagur 31. desember
12.45 Manch.Utd – Blackburn
15.00 Arsenal – QPR
15.00 Bolton – Wolves
15.00 Chelsea – Aston Villa
15.00 Norwich – Fulham
15.00 Stoke – Wigan
15.00 Swansea – Tottenham
Sunnudagur 1. janúar
12.30 WBA – Everton
15.00 Sunderland – Manch. City
Mánudagur 2. janúar
15.00 Aston Villa – Swansea
15.00 Blackburn – Stoke
15.00 QPR – Norwich
15.00 Wolves – Chelsea
17.30 Fulham – Arsenal
Þriðjudagur 3. janúar
19.45 Tottenham – WBA
19.45 Wigan – Sunderland
20.00Manch.City – Liverpool
Miðvikudagur 4. janúar
20.00 Everton – Bolton
20.00 Newcastle – Manch. Utd
Leikir í ensku úrvalsdeildinni um jól og áramót
Markahæstir
» Robin van Persie, framherji Arsenal, er
markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeild-
arinnar. Van Persie hefur skorað 16 mörk en
næstir koma Sergio Agüero (Man. City),
Wayne Rooney (Man. Utd) og Demba Ba
(Newcastle) en þeir hafa allir skorað 13
mörk. Heiðar Helguson (QPR) er í 10.-13.
sæti á markalistanum með sjö mörk.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011
– Vilhjálmur Einarsson, frjálsíþróttir
– Vilhjálmur Einarsson, frjálsíþróttir
– Vilhjálmur Einarsson, frjálsíþróttir
– Valbjörn Þorláksson, frjálsíþróttir
– Vilhjálmur Einarsson, frjálsíþróttir
– Vilhjálmur Einarsson, frjálsíþróttir
– Guðmundur Gíslason, sund
– Jón Þ. Ólafsson, frjálsíþróttir
– Sigríður Sigurðardóttir, handbolti
– Valbjörn Þorláksson, frjálsíþróttir
– Kolbeinn Pálsson, körfubolti
– Guðmundur Hermannsson, frjálsíþróttir
– Geir Hallsteinsson, handbolti
– Guðmundur Gíslason, sund
– Erlendur Valdimarsson, frjálsíþróttir
– Hjalti Einarsson, handbolti
– Guðjón Guðmundsson, sund
– Guðni Kjartansson, knattspyrna
– Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrna
– Jóhannes Eðvaldsson, knattspyrna
– Hreinn Halldórsson, frjálsíþróttir
– Hreinn Halldórsson, frjálsíþróttir
– Skúli Óskarsson, kraftlyftingar
– Hreinn Halldórsson, frjálsíþróttir
– Skúli Óskarsson, kraftlyftingar
– Jón Páll Sigmarsson, kraftlyftingar
– Óskar Jakobsson, frjálsíþróttir
– Einar Vilhjálmsson, frjálsíþróttir
– Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrna
– Einar Vilhjálmsson, frjálsíþróttir
– Eðvarð Þór Eðvarðsson, sund
– Arnór Guðjohnsen, knattspyrna
– Einar Vilhjálmsson, frjálsíþróttir
– Alfreð Gíslason, handbolti
– Bjarni Friðriksson, júdó
– Ragnheiður Runólfsdóttir, sund
– Sigurður Einarsson, frjálsíþróttir
– Sigurbjörn Bárðarson, hestaíþróttir
– Magnús Scheving, fimleikar
– Jón Arnar Magnússon, frjálsíþróttir
– Jón Arnar Magnússon, frjálsíþróttir
– Geir Sveinsson, handbolti
– Örn Arnarson, sund
– Örn Arnarson, sund
– Vala Flosadóttir, frjálsíþróttir
– Örn Arnarson, sund
– Ólafur Stefánsson, handbolti
– Ólafur Stefánsson, handbolti
– Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrna
– Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrna
– Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti
– Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
– Ólafur Stefánsson, handbolti
– Ólafur Stefánsson, handbolti
– Alexander Petersson, handbolti
róttamenn ársins
ksmenn Vilhjálmur Einarsson og Ólafur
ánsson hafa verið kjörnir oftast allra.
Kári Steinn er 25 ára gamall lang-
hlaupari úr Breiðabliki. Hann
þreytti sitt fyrsta maraþonhlaup í
Berlín í haust en þar gerði hann sér
lítið fyrir og sló 26 ára gamalt Ís-
landsmet og tryggði sér keppnisrétt
á Ólympíuleikunum í London 2012 í
fyrstu tilraun. Kári er í 79. sæti yfir
bestu maraþonhlaupara í Evrópu á
árinu 2011 með þessum árangri sín-
um í Berlín. Hann setti líka Íslands-
met í hálfu maraþoni í Reykjavík-
urmaraþoninu í ágúst.
Kári Steinn
Karlsson
Kolbeinn er 21 árs gamall, framherji
íslenska landsliðsins í knattspyrnu
og hollensku meistaranna Ajax. Kol-
beinn skoraði 16 mörk í hollensku
úrvalsdeildinni á árinu, ellefu fyrir
AZ og fimm fyrir Ajax í fyrstu átta
leikjum sínum þar en Ajax keypti
hann af AZ í sumar. Hann var valinn
í úrvalslið Evrópukeppni 21-árs
landsliða þar sem Ísland hafnaði í 5.
sæti og skoraði sigurmark A-
landsliðs Íslands gegn Kýpur í und-
ankeppni Evrópumótsins.
Kolbeinn
Sigþórsson
Ólafur er 24 gamall kylfingur úr
Nesklúbbnum. Hann lék mjög vel
með landsliði Íslands á Evrópumóti
áhugamanna í Portúgal og náði
besta árangri Íslendinganna. Ólafur
sigraði á sterku áhugamannamóti í
Norður-Karólínu, lék á 11 höggum
undir pari, og tryggði sér með því
keppnisrétt á móti á bandarísku
PGA-mótaröðinni, fyrstur íslenskra
kylfinga. Þar vakti hann athygli fyr-
ir frammistöðu sína og var einu
höggi frá því að komast áfram.
Ólafur Björn
Loftsson
Sara er 21 árs, miðjumaður landsliðs
Íslands í knattspyrnu og sænsku
meistaranna Malmö. Sara sló í gegn
á fyrsta tímabili sínu í Svíþjóð, varð
meistari með Malmö og varð sjötti
markahæsti leikmaður úrvalsdeild-
arinnar með 12 mörk. Þá gerði hún
fjögur mörk í Meistaradeild kvenna
þar sem lið hennar er komið í 8-liða
úrslit. Með landsliðinu var hún í lyk-
ilhlutverki á besta ári þess frá upp-
hafi þar sem það sigraði þrjú af
sterkustu landsliðum heims.
Sara Björk
Gunnarsdóttir
Þóra er 30 ára gömul, markvörður
landsliðs Íslands í knattspyrnu og
sænsku meistaranna Malmö. Þóra
var í stóru hlutverki hjá Malmö sem
varð meistari annað árið í röð og er
komið í 8 liða úrslit Meistaradeildar
kvenna, og hjá landsliði Íslands sem
átti sitt besta ár frá upphafi. Þóra
átti drjúgan þátt í sigrum Íslands
gegn þremur af sterkustu lands-
liðum heims, Svíþjóð, Danmörku og
Noregi, og varði m.a. vítaspyrnu
gegn Dönum.
Þóra Björg
Helgadóttir