Morgunblaðið - 11.08.2012, Side 11
alltaf svo skítugur á höndunum í
gullsmíðavinnunni.“
Gerir uppsteyt gegn
hefðbundinni hönnun
„En sumarið sem ég var
fimmtán ára ákvað ég að prófa að
vinna hjá pabba á verkstæðinu og
það kom mér á óvart hvað þetta
var gaman. Ég vann því öll sumur
á gullsmíðaverkstæðinu eftir það
og líka í kringum jólin, og endaði
svo á að fara í gullsmíðanám. Ég
sé ekki eftir því.“ Berglind segir
nafnið á skartgripalínu hennar,
Uppsteyt, koma þannig til að hún
sé í hönnun sinni einfaldlega að
gera uppsteyt gegn hefðbundinni
skartgripahönn-
un. „Ég fer út
fyrir rammann
og geri aðeins
öðruvísi hluti. Ég
kom með þessa
Uppsteytlínu rétt fyrir
jólin árið 2009 og byrjaði
með hana í verslun Jens í
Kringlunni, en núna er hún
í átta verslunum á Íslandi. Ég
byrjaði með nokkur sett, eyrna-
lokka, armbönd, hálsmen og
hringa sem tóna saman, en svo
bæti ég alltaf í og þróa línuna, af
því tískan breytist og það er nauð-
synlegt að hafa einhverja
hreyfingu.“
Vatnið sem bylgjast
og bærist rétt fyrir gos
Sýningin Brand New Copen-
hagen er einnig keppni þar sem
einn sigurvegari er valinn úr hópi
ungu gullsmiðanna.
„Hver hönnuður vel-
ur einn hlut frá sér
sem fer fyrir dóm-
nefnd en hún saman-
stendur af fagfólki líkt
og Metta Saabye, Aag-
ard frá Aagard, Henning
Kern frá Dyrberg/Kern og
Lyngård frá Ole Lyngård. Ég
sendi hálsmen með bláum steini
en hugmyndina að hönnun þess
sótti ég í Geysi og vatnið í hvern-
um sem bylgjast og ólgar rétt áð-
ur en hann gýs,“ segir Berglind og
bætir við að þetta árið hafi danska
stúlkan Louise Degn unnið keppn-
ina.
Berglind segir að á sýning-
unni sjái hún vel hvað sé í gangi,
hver tískubylgjan sé núna í skart-
gripum. „Það er líka dýrmæt
reynsla að taka þátt, því það er
mikil vinna að undirbúa svona sýn-
ingu og heilmikil reynsla að
standa á básnum sínum og kynna
það sem maður er að gera og tala
við fólk frá mörgum ólíkum lönd-
um. Vonandi kemur einhver sem
vill taka línuna mína til sölu í sinni
verslun,“ segir Berglind og bætir
við að skartgripalínan hennar
Uppsteyt, sé til sölu í einni versl-
un í London og annarri í Man-
chester. „Við erum að vinna í því
að komast á fleiri skartgripasýn-
ingar og við höfum líka talað beint
við verslanir. Við erum í útrás.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2012
TT tímar í boði:
6:15 A mánu-, miðviku- og föstud
7:20 C mánu-, miðviku- og föstud
10:15 D mánu-, miðviku- og föstud Barnapössun
14:20 G mánu-, miðviku- og fimmtud
16:40 H mánu-, miðviku- og fimmtud Barnapössun
17:40 I mánu-, miðviku- og fimmtud Barnapössun
18:40 J mánu-, miðviku- og fimmtud
18:25 TT3 mánudagar, fyrir 16-25 ára. 70 mínútur
19:40 TT3 miðvikudagar, fyrir 16-25 ára. 70 mínútur
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Velkomin í okkar hóp!
Fundur fyrir alla TT flokka sunnudaginn 26. ágúst kl. 16:30
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Viltu léttast og styrkjast og losna úr vítahringnum?
TT tímar í boði á Akranesi:
6:30 S1 mánu-, miðviku- og fimmtud
17:30 S2 mánu-, miðviku- og fimmtud
16:15 S3 mánu-, miðviku- og föstud
TT námskeiðin hefjast 26. ágúst
Lengri námskeið - betra verð. 16 vikur 3x í viku 49.900. 8 vikur 3x í viku 29.900
Námskeiðum fylgir frjáls mæting í tækjasal
Innritun í síma 581 3730
Stjórn Minningarsjóðs
Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar
auglýsir eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum.
Markmið sjóðsins er stuðningur við nýjungar í læknis-
fræði, einkum á sviði heila- og taugasjúkdóma, hjarta-
og æðasjúkdóma, augnsjúkdóma og öldrunarsjúkdóma.
Með umsóknum skulu fylgja greinargerðir um vísinda-
störf umsækjenda, ítarlegar kostnaðaráætlanir og
upplýsingar um það, hvernig þeir hyggjast verja
styrknum. Umsóknir skulu staðfestar með undirskrift
umsækjanda og meðumsækjanda/enda, ef einhverjir eru.
Umsóknarfrestur er til 31. október nk. og ber að senda
umsóknir í pósthólf 931, 121 Reykjavík, merktar
„Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar.“ Stefnt er að því að tilkynna um úthlutun
í lok nóvember nk.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
STÓRÚTSALA
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ, ALLT AÐ
70% AFSLÁTTUR
SUMARKÁPUR – SPARIDRESS
GALLAFATNAÐUR – BOLIR OG M.FL.
Línan góða Hér má
sjá sýnishorn úr
Uppsteyt-línunni.
Umbúðir sem Berg-
lind hannaði líka og
Geysishálsmen til
hægri.
Skart
Hringur
og arm-
band fyr-
ir ofan.
Flottir Þess-
ir eyrnalokk-
ar eru svalir.